Jóhann Frans Ólason
 

Fyrsta vikan

Ekki var fyrsta vikan lengi að líða. Ég stóðst 5 daga skoðunina með stæl og var eina barnið á ganginum sem grét ekki.......ja fyrr en pabbi fór svo að klæða mig.

Núna gengur mér roslalega vel að drekka hjá mömmu og nú ætla ég bara að fara að stækka. Ég sef líka aðeins betur á nóttunni sem betur fer fyrir mömmu og pabba þó að ég vakni nú alveg tvisvar þá er ég fljótur að sofna aftur.

Það hefur verið bullandi gestagangur og ég kynnst fullt af fólki. Núna um helgina var Björgvin Ingi bróðir minn í heimsókn og hann er sko skemmtilegur skal ég segja ykkur, ég á semsagt rosa hressa bræður.

Næstu helgi, 5.des sem er afmælisdagurinn hennar mömmu ætla ég að láta skíra mig. Við ætlum bara að hafa það hérna heima í Vallenginu og bjóða bara nánustu fjölskyldu.

Jæja ég ætla að fara að sofa í hausinn á mér núna en ég kem með nokkrar línur á næstu dögum.

Þangað til næst

Litli Prins Ólason

28. November 2009 - 23:45



Athugasemdir

Arna á Bakka

Ég er svo spennt fyrir nafninu.. Þið verðið að muna að senda sms um leið og það er opinbert;) heh

29. November 2009

Nafn


Texti