Jóhann Frans Ólason
 

Allt að gerast

Það hefur verið nóg að gera hjá mér síðan síðast. Ég hef verið í smá basli með það að drekka hjá mömmu en það er allt að koma núna og dagurinn í dag sá besti hingað til. Ég á það nefnilega til að taka bara nokkra sopa og hætta svo en málið er að drekka bara nóg og hvíla sig á eftir. 

Ég hef sofið alveg hreint ágætlega og sem eiginlega best á morgnana og daginn. Á kvöldin og nóttunni læt ég aðeins heyra í mér, ekkert mikið samt en nóg til að mamma og pabbi sofi ekki meira en þrjá tíma í einu :)

Hermína ljósa kom í dag kenndi mömmu að baða mig. Ég verð bara að viðurkenna það að það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri en það á sjálfsagt eftir að venjast. Hermína tók svo blóðprufu og stakk mig í ilina. Ég fann bara smá til en grét ekki neitt. Hermína kemur svo í síðustu heimsóknina á morgun.

Amma Óla og Jói afi fóru austur í dag. Það var rosalega gaman að hafa þau hér þessa daga og ég á eftir að sakna þeirra en þau koma nú aftur eftir 2 vikur í skírnina mína sem verður 5.des á afmælisdegi mömmu minnar. Amma Mæja og afi Flóvent komu svo í heimsókn i gær og það var frábært að hitta þau. Ég er greinilega heppinn með ömmur og afa.

Á morgun förum við svo til barnalæknis í svona 5 daga skoðun. Þar verð ég mældur og vigtaður og sjálfsagt eitthvað potað og tosað í mann. Við eigum að mæta kl 09.45 sem er eiginlega slæmur tími því ég sef best á morgnanna.

Þangað til næst

Litli Prins Ólason

24. November 2009 - 23:12



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti