
Sindri Pálsson
Hæ hæ, ég heiti Sindri Pálsson, mamma mín er Guðný Þórsteinsdóttir og pabbi minn er Páll Guðbrandsson.
Ég kom í heiminn kl. 0015 sunnudaginn 11. ágúst og var fyrsta barn dagsins. Ég var langur og grannur eins og pabbi og fallegur og fíngerður eins og mamma. Ég fæddist með mikið dökkbrúnt hár sem mamma og pabbi binda enn vonir við að verði að lokum kastaníubrúnt!

Fyrir þá sem ekki vita þá fæddist ég með ský á augasteinunum (cataract) og þurfti ég að fara til London í aðgerð þar sem augasteinarnir voru fjarlægðir. Það gekk rosalega vel og ég fæ gleraugu sem munu gera mér kleift að sjá ágætlega ef allt gengur vel
Ekki hika við að skrifa í gestabókina mína.
kv. Drengsi