

Langt síðan ég hef kvittað fyrir mig hér - en ég kíki auðvitað reglulega á sætuna mína. Finnst svo svakalega langt síðan páskarnir voru þegar ég er að skoða myndirnar - Karen orðin svo fullorðinsleg í dag miða við í those days;) Vona að þið hafið það gott - væri nú gott að koma í nýjar kartöflur í haust til ykkar... en later - Knús í kaf Þórey og co
HÆ hæ!
Þú ert bara æði og komin með svo mikið hár!
Rosalega flott og sæt stelpa.
Kv. úr Reykjavík; Fjóla og Stefanía Lilja
Löngum hefur það verið alþekkt að þær konur sem bera nafnið Karen séu ögn "þversum", en að þær fari alfarið afturábak er nýlunda! Oftast reyna þær að sækja framávið. Nafna þarftu að koma á námskeið?
Söknum þess að sjá þig svona sjaldan.
Amma og Afi á AK.
Vá hvað þú ert alveg eins og pabbi þinn í sumarstólnum þínum litla mús.
Gátum ekki orða bundist ;o)
kv, úr Grímsey :o)
Hæ mamma skilaði kveðjunni frá þér. Ég er búinn að fylgjast með dömunni dafna hérna á síðunni í nokkra mánuði og alveg meirihátta gaman, þarf bara að fara að kíkja á ykkur!!!! Daman er alveg æðisleg svo er bara alltaf svo mikið um að vera hjá ykkur sem er alveg meirihátta. Héðan af króknum er allt fínt að frétta bara nóg að gera og drengirnir dafna mjög vel. Endilega vertu í bandi ef þið eigið leið hjá og sama hér. Hafið það æðislega gott :)) Kveðja af Króknum
Hæ elsku dúllurnar mínar og til hamingju, Lísí með daginn um daginn....Leitt að missa af ykkur, við vorum í bústað og e-ð. En við komum í tónleikaferð til Akureyrar bráðum, 12.júní minnir mig... stoppum voða stutt og gistum ekki, en ef þú ert laus þá ertu velkomin á tónleikana....
Karen Helga litla er ekkert lítil lengur, er orðin svo stór og dugleg, hárprúð og alltaf jafn fögur... vá hvað tíminn líður hratt...
halló snúllurassgatabollumúsin þín!!! :) rosalega ertu komin með fallegt hár skvísa... og ekkert smá dugleg að pissa í klóstið haha dúlla! æðislegar sumarmyndir af þér, hlökkum til að koma norður í sumar og knúsa ykkur.. kv. frá Stokks ;)
Hæ hæ sætu,
Við mæðgur vorum að kíkka á nýjar myndir, maður sér mun á snúllunni í hverri viku - algjör rúsína.
Vorum fastar í mallinu áðan út af hrikalegum Tornado en hefði getað verið föst á verri stað;-) Annars er bara blíða á okkur um 30 gráður, sól og sund alla daga.
Knús frá okkur, H&E
Hæ fallega fjölskylda!
Vá hvað Karen Helga er orðin stór og mannaleg og endalaust mikið krúúútt!!! :) og það sem mig langar að prófa að kyssa þessar sætu bollukinnar og knúsa hana smá...vonandi hittumst við nú eitthvað áður en bollukinnarnar hverfa! ;) Mig langar líka í Lísuknús! :)
Hafið það gott elsku dúllurnar mínar...
Krammer,
Eva
Æ hvað það var nú gaman að skoða nýjar myndir af snúllunni og margar myndir, hún er orðin svo stór, virkar það allavega á standa í lófanum myndinni ;) Sakna ykkar sætu, knús XXX
Hæ Lísa mín, jeminn hvað þú átt fallegan gullmola. Hún er svo kát og yndisleg á myndunum...prufaði að slá inn eitt orð og það var rétt lykilorð :þ vonandi að það sé í lagi!!!
Kærar kveðjur frá Akureyri
Iris, Ísak Logi og Kolbrún Anna
Bara flottust í baði og sundi:-)
Knús á línuna:o*
hejsa!!
Vissi ekki baun hvert e-mailið þitt er, svo ég ákvað að senda þér línu hér, frænka. Ég sá uppl um síðuna ykkar á síðunni Páls Andrésar hennar Marýjar. Nú ertu komin með mailið mitt og þá bíð ég eftir mailinu ykkar svo við getum farið að skiptast á fréttum!! Hlakka svakalega til að heyra frá þér og bið kurteislega um leyniorðið á síðunni ykkar svo ég geti skoðað myndir af "nöfnu" minni.... hehehehe það má alltaf vona....
Knús, Íris.
Sælar elskurnar
Innilega til hamingju með múttuna á heimilinu : )
Hafið það ofsa gott í dag sem og alla daga
kossar og knús
Björk og Embla
Elsku Lísa til hamingju með daginn. Þetta er ekki hægt nú verð ég að fara að koma í heimsókn. Verð í bandi eftir helgi :-)
Elsku besta Lísa mín!!
Innilega til hamingju með daginn! Er búin að hugsa til þín í allan dag og hvað það er hræðilega langt síðan við sáumst! Vonandi sjáumst við í sumar. Það er ekki ljóst hvort ég kemst á klakann en það kemur í ljós fljótlega. Þá verðum við að hittast! Annars komið þið bara hingað í heimsókn í baunalandið :) Er þaggi?
Hafið það rosa gott í kvöld og njótið Eurovision, við bíðum sko spennt hérna megin!! :)
Afmælisknús og kossar,
Eva og Co
Þá sjaldan maður lætur vita af sér;)
Mér fannst ég nú bara verða að kvitta þar sem maður er kannski ekkert alltof duglegur við það!
En hvað þú ert sæt litla prinsessa... svo ekki sé talað um mömmu þína;) Alltaf svo sætar og fínar! Það er greinilega helling búið að gerast síðan við sáum þig síðast... en þá varstu nú samt líka stór og dugleg!
Vonandi förum við brátt að hittast.. við treystum á að mamma þín og pabbi stefni allavega á eina suðurferð í sumar:) Lítur ekki vel út með norðurferð á okkur... allavega ekki núna í sumar!!
Kossar og knús á línuna frá okkur öllum sem erum að verða svo stór:)
XXX
Hæhæ sæta skvísa
Ég var nú að hugsa um það á mömmumorgninum í morgun að maður er nú eiginlega farin að sakna ykkur frekar mikið þar. Enn að vísu vorum við bara ótrúlega margar því það voru 5 mömmur í dag, þannig að nýtt met slegið, hehe.
Enn vonandi getið þið eitthvað mætt áður enn farið verður í sumarfrí.
Kveðja Sigrún, Víkingur og co.
p.s. Lísa takk æðislega fyrir bolinn, Sigrún er alveg í skýjunum með hann
Hæ hæ sæta:) Jæja nú verðum við að fara að hittast:)
Pabbinn er kominn í land en við erum að fara út í næstu viku. En endilega heyrið í okkur ef þið farið í kaupsaðaferð um helgina:)
Kv Elma, Siggi, Amelía Ýr, Sonja Björg og Guðmundur Steinn
Hæhæ sæta stelpa, váááá hvað þú ert lík honum pabba þínum!:D
Bara krúttleg!
Annars biðjum við að heilsa, vildum rétt skilja eftir okkur smá spor***
elsku fallega fjölskylda, yndislegar myndir af ykkur og Karen Helga svo yndisleg, Lísa þú ert ekkert smá dugleg að setja nýjar myndir inn og fréttir af ykkur. Æðislegt að fá að fylgjast með ykkur hér og vonandi sjáumst við nú kannski í sumar, hvernig væri það?:-)
knús úr borginni
Dröfn og skvísurnar
p.s Lísa ég var að senda þér póst:-)
Hæ hæ dúllur. Þetta gengur ekki lengur. Okkur er farið að langa svo til að hitta ykkur. Nú verðum við að fara framkvæma það :o)
Kveðja af víkinni...
Hæhæ sæta mús !
Mér finnast foreldrar þínir kræfir að hafa þig bleyjulausa uppí sófa, það gengi aldrei á þessu heimili ;)
Væri gaman að sjást eitthvað í sumar :)
Bkv- Lára Kristín, Hólmgeir og Rakel
Erum að mæta í fjörðinn á morgun með flottu skóna handa þér;-)
Knús á línuna
Hæ sæta fjölskylda!
Alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af ykkur og lesa fréttir ;)
Karen Helga er greinilega dugleg og skýr stelpa!
Knús á ykkur,
Eva og co
hæ sæta skvís voða flottar myndirnar þínar vildum bara kvitta fyrir innlitið skilaðu góðri kveðju og hafðu það rosa gott kv Bryndís og Hrannar pé
Hæhæ kæra fjölskylda og gleðilegt sumar eða hvað????? Er að vafra um síðurnar sem ég er vön að skoða og ákvað að kvitta fyrir mig í þetta sinni, enda er maður alveg hættur að sjá ykkur síðan sumir fóru aftur á vinnumarkaðinn. hehhehehe. En ég bið að heilsa og vonandi sér maður ykkur fljótlega :) kv. Hófí.
Komið þið sæl.
Gaman að skoða myndirnar af Karenu Helgu.it hér hjá Björgu og er að skoða myndirnar.
Bestu kveðjur. Liesel og Björg
Gleðilegt sumar kæra fjölskylda
Bestu kveðjur frá BLÖ
Erla og co