Katrín og Litli bróðir
 

Gullkorn

7. september 2014

Silja: Fiiðrildi Katrín: Fiðiriðrldi Silja: Fiðrildi Katrín: Fiðririðldi Silja: Fiðrildi Katrín: fluga

 

4. desember 2013

Katrín var að leggja af stað í leikskólann og ætlaði að kveðja pabba sinn og segir:  "Jæja, pabbi núna lúlla.  Pabbi ekki kúka buxurnar! bæ!"

 

26. nóvember 2013

Mamma var eitthvað leið.  Pabbi spyr hana hvað sé að.  Þá segir Katrín og stýkur hönd mömmu sinnar:

"Hvað er að ástin mín? Hvað er að?  Allt í lagi mamma mín, allt í lagi".

 

26. nóvember 2013

Katrín kemur til pabba síns og segir: "Pabbi, borða núna Cheerios". 

Pabbi svarar: "Nei Katrín mín, það er fiskur í matinn".

Katrín verður ofsa reið og fer að gráta: "Neeeeeeiiii, ekki síkur(fiskur)!!".