Katrín Ásta og Telma Lind
 

Systurnar Katrín Ásta og Telma Lind.

Katrín Ásta kom í heiminn 2. mars 2010 kl 16:03. Hún var tæpar 14 merkur og 48 cm.

Telma Lind kom í heiminn 6.desember 2012 kl 19:07. Hún var tæpar 15 merkur og 50,5 cm.

Við erum agalega sætar og duglegar systur :)  

Fiskur

19.febrúar til 20. mars

Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.

 

 Bogmaðurinn

22. nóvember - 21. desember

Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.



Pabbi okkar heitir Jóhann Ingi Jóhannsson og mamma okkar Sólveig Lára Kjærnested. Þau eru svo stolt og ánægð með okkur og finnst við vera laaaannnng fallegastar :)

 

PABBI ER MAÐURINN

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og
annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!!!!!

MAMMA MÍN ER KONAN

Mamma er konan sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsa
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu
leyfir mamma það ekki því hún er svo
vön að hugsa vel um barnið sitt.
Mamma er alltaf til staðar með
út rétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast
með manni þegar gaman er að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!!