
Vá hvað mamma þín var dugleg að setja inn allar þessar myndir ! Það hefur verið æðisleg ferðin á Akureyri og þú góður í bílnum greinilega. Alger draumastrákur ! Sjáumst vonandi fljótlega :)
Ásdís og co.
Hallú sæti súlu-sund-strákur!
Vá bara myndaveisla... Frábærar myndir af þér sæti frændi!
Greinilega mikið um að vera í Maí-mánuði ;)
Hlökkum til að sjá þig á morgun litli kall.
Knús og kramalam
Ósk frænka og familí
kvitt kvitt, rosa flottar nýjar myndir. Verðum að fara að sjá litla (stóra) gaurinn, orðið allt of langt síðan. kv. Hildur og Brynhildur Katla
Hann er nú meiri gleðigjafin þessi litli sponni :) ..dásamlegar myndir , meiri lukkan að eiga þennan strák að :)
Elsku Jakob Ernir frændi minn,
Mikið var gaman að heyra í pabba þínum í gær. Þú ert alveg svakalega flottur strákur og góður líka heyrði ég :-) Vonandi sé ég þig í eigin persónu einn góðan veðurdag.
Kær kveðja,
Inga Rósa og fjölskylda
Jæja, fara ekki að koma inn nýjar myndir af sætasta frænda okkar?
Vá, hann er alltaf brosandi (og þessu líka risa fallega brosi). Til hamingju með framtennurnar kútur;) Þvílíkt sem hann er líkur móðurfjölskyldunni (ég sé Ósk, Gerði og þig í honum Hrund ;) ).
Knús til mömmunnar og hlakka til að sjá ykkur.
Halló, halló sæta famelí....
Flottar myndir, enda bara myndir af flottu fólk ;o)
Jakob svo sætur alltaf hreint, fyndnar svefnmyndirnar!! Það er bara verið að nota allt rúmið.. hehe...
Knus og kram á ykkur
Venlig hilsen fra Odense
kvitt kvitt, rosa skemmtilegar myndir, greinilega nóg að gera hjá sumum að stækka og þroskast. Þetta er bara yndislegt. Vonandi sjáumst við sem fyrst kv. Hildur og co
Þú ert nú meira krúttið og vá hvað þú ert rosalega duglegur strákur ! Skemmtilegar nýju myndirnar. Flottur í regngallanum, en ég vona sömuleiðis að þú getir ekki notað hann of mikið þetta sumarið, he he :0)
kv Guðrún og Ernir
Halló sæti frændi!
Frábærar nýju myndirnar! Hann er nú meira módelið, alveg einstaklega smart með smá mat á kinnum!
Jakob og Matthildur dásamleg saman!
Gaman að sjá þig í dag litli kall, bráðum verða foreldrar þínir hlaupandi á eftir þér að gefa öndunum!
knús og kram
kveðja Ósk frænka og co
kvitt kvitt
hlakka til að hitta ykkur fljótlega öll sömul
kv VKE
þvílíkt fallegur hann Jakob....ótrúlegt eintak :)
Hæ sæti!
Það er nú meira hvað þú ert duglegur litli kallinn minn! Þið Matthildur verðið farin að hlaupa um á svipuðum tíma... Þú ert bara krúttkall!
knús á þig besti frændi
kveðja Ósk frænka
Þú ert nú meira krúttið og ekkert smá duglegur að vera farinn að skríða.
Bestu kveðjur úr Kópavoginum
Kristín Inga og Bryndís Anna
Sætasti broskarlinn, alltaf svo kátur og glaður ;)
Yndislegt að fá að hitta hann, og ykkur öll að sjálfsögðu þó að Jakob hafi nú stolið senunni!
Flottur í skriðinu og ekki langt þar til hann verður farin að ganga með þessu áframhaldi og stífum æfingum sem hann setur sjálfur!!
Knús og kram frá Odense
Vá hvað þú hefur stækkað síðan ég kíkti hingað síðast sem er reyndar mjög langt síðan ! Ekkert smá flottar allar þessar myndir, og ekkert smá duglegur strákur, flottur matarkall :)
Hafið það gott sæti :)
Kveðja Sigrún
Hæ hæ
Þú ert nú meiri broskallinn. Alltaf kátur greinilega. Algjört krútt. Biðjum að heilsa múttu
hæ hæ sætilíus, rosa gaman að hitta þig í dag :0)
Gaman að sjá hvað þú ert rosalega duglegur strákur :0)
hittumst aftur sem fyrst, kv Guðrún og Ernir
Hæ sætilíus ! Nú gengur þetta ekki lengur, ég verð að fara að kíkja á þig áður en þú fermist, vonandi fer þessi endalausa ritgerðavinna í skólanum að klárast (eitthvað sem þú þarft ekki að hafa áhyggjur af fyrr en eftir svona 15 ár í fyrsta lagi ;)) Skila saknaðarkveðju til ma og pa líka :)
Ásdís og co.
Ómæ, ómæ, hvað ég hlakka til að hitta ykkur...
Jakob Ernir er ofurtöffari, bara flottastur ;o)
Próflestrarkveðja frá Odense
Heyja litli frændi,
þú ert nú meira krúttið... matargat og kroppalingur! Svo flottur með hárið útí loftið... sýnir þinn innri töffara ;)
Frábært hvað hoppugræjan er vel notuð!
Þú ert bara yndislegur litli kallinn minn og ert sko bara dýrkaður og dáður af okkur hér á Breiðvangnum!
knús og margir kossar á þig
kveðja frænka
Þú ert nú meiri sjarmörinn :) Gaman að skoða nýju myndirnar af þér, "hefur jafnvel kannski eh af leiklistarhæfileikum móður þinnar" :) kv. Guðrún og Ernir
Kvitt, kvitt. Æðislegur hann litli frændi, eins og alltaf.
Hæ sæti!
takk fyrir samveruna í dag! þú ert nú meira yndið, svo glaður og sætur baukur! mig langar svo að sjá fleiri myndir!!!!
knús og kossar á þig sæti litli goggi minn
kveðja Ósk frænka
Gullmolinn!!
Bara sætastur á svæðinu, flottur í lopapeysunni.
Ó hvað ég hlakka til að hitta ykkur og knúsa Jakob í kaf... Það verður bara frábært, og gaman þegar þau hittast öll frændsystkinin ;o)
Knús á liðið frá Odense
Heyrðu ja og svo er hann svo líkur Markúsi frænda líka :) ...aldeilis snilld !!
Elsku Hrund ..takk fyrir komuna í gærkv og skemmtilegt kvöld. Sá er aldeilis að stækka og ekki komin með neinar smá tennur og stúturinn hennar óskar er flottur og veistu hvað ...hann er að verða svo líkur þér mín kæra og Gerði og Ósk ..hlakka til að sjá ykkur á þriðjudag :)
Jesssi minn...
ég er bara nokkuð góður myndasmiður... enda módelið svo viðráðanlegt, engir stjörnustælar og svona...
Jakob Þú ert bara dýrð og dásemd! frábært að sjá þig í dag, svo sætur og flottur!
knús á þig goggalíus
kveðja Aðal-gogginn
Sæll sæti frændi!
Vá hvað það er gaman að fá þig í gogga-klúbbinn!!! þú ert greinilega jafn hæfileikaríkur og ég ;) ekki slæmt ekki slæmt!!
Það hefur komið sér vel að hafa svona góðar gáfur get ég sagt þér!
það eru fundir hjá mér á fimmtudögum þar sem meðlimir æfa sig (vanalega hef ég sagt meðlimur hóst!) svo að gott að við höfum hvort annað til að hvetja goggann í sjálfum okkur ;)
Hlakka til að sjá þig á eftir litli kall!
knús á þig
kveðja Aðal-Gogginn