

Hæ hæ
Mikið rosalega var gaman að hitta þig Kolla í bænum um daginn. Auðvitað er aldrei ró á ykkar heimili og bara allt á fullu að mála og breyta :o)
kveðja frá Ásu og co.
Hæ, hæ, gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu. Vonandi verður heilsan góð svo að þú getir klárað skólann og ormurinn einnig, þegar hann verður mættur á svæðið ;O) Bara mundu Kolla að fara vel með þig og láta aðra fjölskyldumeðlimi stjana í kringum þig.....
Bestu kveðjur úr borg óttans !!!!
Harpa, Bárður, Jóhannes Karl og Sigdís Eva.
ps. það eru komnar inn nýjar myndir eftir hálfsárs hlé ;O)
Gleðilegt nýtt ár kæra fjölskylda, og takk fyrir allt liðið. Hitti gamalt skíðastóð í Rvk. í liðinni viku og það var mikið rætt um hugsanlega fyrirhugað reunion í sveitinni ykkar í sumar. Ég mæti allavega:)
Kv. Kobbi.
Hæ allir. Fréttum að þú værir lassaruss elsku Fróði! Sökknuðum ykkar í gær á 13 ándanum! Sendum batakeðjur til þín og mund að skilja pestina eftir í bænum:-Þ Knús og kossar
Fimm fálkar
HÆ öll
Gleðileg jól og takk fyrir gamla árið. Hittingar urðu engir því er nú verr og miður. Stefnum á að gera betur á nýju ári.....
Knús og kossar í kotið að vestan
Króknes familían
Hæ, og takk fyrir komuna í afmælið mitt! Það var virkilega gaman að hitta ykkur.
Vonandi sjáumst við fljótlega aftur!
Gleðilegt ár!
Knús // Erica & co.
Hlakka til að hitta ykkur
kossar og knús
Sæl og blessuð öll!!
Til hamingju með afmælið Fróði.....ótrúlegt að sjá myndaseríuna...hlutirnir gerast hratt, það er sennilega góða loftið fyrir norðan hehehhe.
Það er engin smá orka í fjölskyldunni, próf, bakstur og sendiferðir. Þetta hefur allt gengið vel svo nú er hægt að slappa af :)
Hafið það gott.........
Sællt veri fólkið,biðst afsökunnar á gleymsku minni,en Fróði minn,til hamingju með afmælið,elsku frændi,sé á myndum að allt tókst vel,og Fróði ánægður með alla pakkana,mikið er Máni orðinn stór,og mér sýnist hann vera góð fyrirmynd,svo hlakkar okkur til að fá ykkur suður,vonandi sé ég þá alla fjölskylduna.Kveðja frá Meló
Hæ hó hæ hó
Steingleymdi afmælinu....ekki hugsað um neinn nema sjálfan sig á þessum bæ......kunnum ekki á heiminn utan veggja heimilisins........ En allavegana innilega til hamingju með afmælið Fróði sjáumst fljótlega...kv frá okkur öllum
Þið eruð alveg æði.
Greinilega mikið stuð á bænum :)
Hafið það gott.
Knús,
Anna.
Elsku afmælis strákur-Fróði. Innilegar hamingju óskir með 2 ára afmælisdaginn. Vonum að þú eigir góðan dag sæti. Bestu afmæliskveðjur frá okkur í mosó:-))
Elsku Fróði,
innilega til hamingju með afmælið!!
Kveðja Hlíðarvegsfamelían
Hæ, hæ öll norðan heiða. Innilega til hamingju með daginn Fróði og fjölskylda. Gaman að sjá þig blómstra Kolla, en passaðu bara uppá heilsuna hjá þér og kúlubúanum, ekki baka yfir þig ;O)
Bestu kveðjur úr borg óttans,
Harpa, Bárður, Jóhannes Karl og Sigdís Eva (skæruliði)
Takk fyrir sendinguna elskuleg frábærar SÖRUR forskot tekið á sæluna ummmmmmmmmm,
ástarkveðja mamma
Smjatt Patt...þetta var sko kærkominn desert sem við fengum í kvöld...ekkert er betra en randalína ala Kolla skolað niður með ískaldri mjólk :) Love it an Love you
Takk fyrir okkur
Kvitt í bók. Alltaf hægt að koma við og skoða nýtt.
Knús í kotið
Kveðja að vestan
Hæ hó alle sammen.
Gaman að sjá myndir af ykkur í sveitinni.
Rosa notó :)
Bið að heilsa ykkur þangað til við sjáumst.
Knús úr 101 Sódóma Reykjavík :D
Anna.
Leit í myndaalbúmið.Mikið er húsið orðið fallega jólaskreytt,Fróði leggur þetta kannski fyrir sig,í framtíðinni,ásamt mörgu öðru,leiðinlegt fyrir Mána að komast ekki suður,við þökkum mjöööög ánægjulegt símtal,okkur til handa,elskurnar,hlakka til að sjá ykkur fyrir jólin,og kannski í kaffi líka,hver veit?Kveðja frá Meló.
Æðislegar myndir frá Sódóma ferðinni:-) Greinilega mikið gert í þessari Orlofsferð.
Kveðja frá mosó sveitar fólkinu
halló,flottar myndir,voru þær ekki teknar á Sprengisandi,óóó,
Vildi bara kasta kveðju á ykkur. Hafið það gott í borginni. Alltaf gaman að kíkja við, því það eru alltaf fréttir og nýtt í albúminu
Knús og kossar að vestan
Halló sveitafólk. Ætla að kvitta núna, ég kíki oft en kvitta aldrei sorry. Hlökkum til að sjá ykkur um helgina. Kv frá Bardastöðum
Halló,bara að kvitta ,flottar myndir,enda myndasmiðurinn komin með þjálfun.mikið langaði okkur að setjast til borðs með ykkur er sláturgerði var lokið,slefuðum af öfund,en þessi matur er víst bannaður hér á þessum bæ,kveðja frá Meló
Bara að kasta á ykkur kveðjur elskurnar....held ég bíði með að koma í heimsókn fyrst það eru komnir haustgestir til ykkar...úhhh ég bara þoli ekki mýs!! Flottar allar nýju myndirnar og greinilegt að þriðja typpið stækkar og stækkar ...hehehe!! Jæja hafið það gott elskurnar mínar og vonandi förum við nú að hittast maður er bara farin að sakna ykkar!!!
Haustkveðjur úr norðrinu
The Gröndals
Hvað get ég sagt. Það að kíkja á síðuna ykkar er eins og að fá adrenalínsprautu í hjartað. Þvílíkur dugnaður í ykkur alltaf. Þið eruð kyndilberar íslenskrar sveitamenningar. Að eilífu, amen.
Bestu kveðjur úr mengaðri Oslóarborg.
loks erum við í sæmilegu netsambandi höfum það fínt hér í Túnis í ringingu og slagviðri í gær og dag svo þá er bara nudd og innanhúss-spa mjög fínt förum heim á morgun og eins og við allar ferðir finnst okkur best að koma heim hlökkum til að heyra í ykkur og hitta ykkur knús og kossar ammaguðnýogafifinnur
Maður kemst bara í jólastuð við að skoða myndirnar frá ykkur!! Yndislegar myndir af sæta vinnumanninum. Erum viss um að hans fyrstu spor í spjótkassti séu komnar á netið, flottastur Fróði stekkjastaur með rafmagnsstaur sem spjót;-)
Knús frá okkur í mosó sveit.
RG
Algjört krútt þessi strákur og ekkert smá fljótur að stækka......hlakka til að fá þig í heimsókn....
gövöð hvað þetta er æðislegt ekkert smá krútt mynd........maður fær næstum því fiðring....næstum því....ekki nógu langt liðið. Hafðu það gott og taktu því rólega (ekki það að þú getir farið hratt hahaha) kv Jóna