Síðan okkar
 

Gestabók

Anna Björg

Frábærar nýju myndirnar og já það sést að veturinn er kominn á Íslandi, eða allavega í Hafnarfirði. Hérna í Lundi er sko ennþá bara haust, liggaliggalá.
Gott að allt er með kyrrum kjörum á Íslandi, það breytist ekki neitt (nema að Helgi stækkar og stækkar) en ég hef miklar áhyggjur af jólasveininum í Blómavali, mér sýnist hann vera á leiðinni að hengja sig. Hann greinilega alveg kominn með nóg af því að hanga í þessum kaðli ár eftir ár.
Með kveðju frá Lundi,
Anna

Skrifağ şann 1. November 2007 16:40.

Magga og Langamma í Boston og litli Elmo

Hæ hæ Helgi,
gaman að skoða nýju myndirnar þínar, svo gaman að sjá þig alltaf brosandi með krúttlega grallarabrosinu þínu.
Gaman að þú hafir hitt Markús félaga þegar þú fórst að gefa öndunum. Gott hjá þér líka að byrja jólin snemma, þú ert maður að mínu skapi.
Bestu kveðjur frá Boston,
Magga, Langamma og litli Elmo,

p.s Gummi er að ná í mömmsu þína út á flugvöll rétt í þessu;)

Skrifağ şann 31. October 2007 22:43.

Rebekka

Hæ sæta fjölskylda, gaman að hitta ykkur á fótboltaleiknum, hittumst vonandi fyrr en seinna. Hafið það gott, koss og knús, Rebekka og fjölskylda

Skrifağ şann 20. October 2007 00:17.

Gerður

Gaman að sjá nýjar myndir :)

kvitt, kvitt og knús
Gerður

Skrifağ şann 19. October 2007 15:41.

Anna Björg

Hæ hæ og til hamingju með nýja rúmið Helgi!
Alltaf gaman að sjá nýjar myndir og sjá hvað Helgi er orðinn stór og alltaf jafnsprækur.
Við hlökkum til að sjá ykkur og knúsa um jólin.
kveðja frá Lundi,
Anna

Skrifağ şann 18. October 2007 20:10.

AMMA 'ASA

Halló ömmusnúlli bara smá kveðja til þín fallegasti ,hittumst 13 sept þín amma sem elskar þig svo mikið.

Skrifağ şann 5. October 2007 00:11.

Kristín Hrund

Hæ sæti strákur
Rosalega eru fínar allar myndirnar af þér... þú ert orðinn svo stór strákur og mikill gæji:) Gummi og Helga til hamingju með myndasamkeppnina... enda eru brúðkaupsmyndirnar alveg æðislegar af ykkur, ekkert smá sæt og fín.
Kær kveðja Kristín, Diddi, Ísak Leó og Emilía

Skrifağ şann 24. September 2007 07:26.

Hrafnkell, Daníel og hinir..

Hæ frændi,
Rosalega mikið af skemmtilegum myndum, mamman á skilið hrós fyrir duglegheit.
Mikið ofsalega er flott klósettmyndin af þér Helgi, hún er uppáhalds hjá okkur fjölskyldunni;)
Svo finnst okkur myndin af ömmu Ásu við grillið, alveg eins geta heitið "Helgi við grillið" svo sterkur er ættarsvipurinn..
Og til hamingju með ljósmyndakeppnina fallega fólk.

Saknaðarkveðjur,
Vísitölufjölskyldan í vestri

Skrifağ şann 23. September 2007 19:52.

Andrea(systir sigga jóa)

Hæ hæ sæti strákur, ekkert smá flott síða sem þú átt. Annars er bara alltaf gaman að hitta þig þegar ég sé þig á Heiðarborg, tekur alltaf svo vel á móti mér, kallar ,,Anda, Anda, koddu" og svo er maður knúsaður, þú ert bara dúlla. En mig langaði bara að kvitta fyrir mig, hlakka til að sjá þig næst
Kveðja Andrea(Anda)

Skrifağ şann 16. September 2007 21:01.

Linda pinda

Hae saeti minn
Heyrdu eg gleymdi ad skrifa sidast en mer finnst myndirnar ur bryllupinu geggjadar, enda flottar fyrirsaetur :)
Goda helgi,
Linda

Skrifağ şann 14. September 2007 16:11.

Erla Guðrún

Æðislegar brúðkaupsmyndir af mömmu og pabba Helgi Sigurður, þú varst náttlega bara flottastur þann dag :) og innilega til hamingju með Daníel Sölva litla frænda, alltaf að bætast í strákagengið ;)
knús, Erla frænka

Skrifağ şann 7. September 2007 19:15.

Bjarni, Gyða, bumbubúinn og Jóel Berg

Hæ frændi.
Flottar myndirnar úr brúðkaupinu. Leitt að geta ekki hafa verið viðstödd en svona er það víst stundum.
Við verðum nú að fara að hittast bráðum.
Kv, Hafnarfjarðargengið.

Skrifağ şann 6. September 2007 12:29.

Rakel, Sissi og Bóas

Hæ hæ skemmtilegar myndir hjá ykkur :)
Kveðja Sissi, Rakel og Bóas

Skrifağ şann 29. August 2007 11:13.

Magga, Gummi og Hrafnkell

Hæ frændi,
mikið rosalega eru fallegar myndirnar úr brúðkaupinu, ég gat ekki annað en fengið vatn í munninn við að rifja upp allar kræsingarnar namminamm..
Hrafnkell sefur með Helga-dúkku uppí hjá sér og passar sig að gefa henni að drekka og aðra dudduna sína fyrir svefninn;)
Saknaðarkveðjur,
Magga, Gummi og Hrafnkell besti frændi

Skrifağ şann 14. August 2007 03:03.

Linda

Elsku saeti minn
Rosalega eru detta allt flottar myndir enda fallegt folk a deim :) Geggjadar myndir baedi fra Islandi og Dubai. Hlokkum rosalega til ad sja ykkur bradum.
Luv luv luv,
Linda, Jakob Felix og "svefnburkan"

Skrifağ şann 21. July 2007 21:20.

Magga, Gummi og Hrafnkell

Hæ hæ Helgi sykursæti!
Okkur langar til að byrja á því að óska þér til hamingju með bleyjumissinn, þvílíkt sem við erum stolt af þér ;)
Geggjaðar myndirnar frá Dubai, þetta hefur greinilega verið rosalegt ævintýri og mikil paradís.
Og svo síðast en ekki síst frábærar myndirnar allar af þér Helgi í íslensku náttúrunni, mamma og pabbi ekkert smá dugleg að ferðast með þig, sérstaklega skemmtileg myndin þar sem þú sparkar boltanum ;)

Stórt knús á stólaraðarann.
Magga, Gummi og Hrafnkell

Skrifağ şann 21. July 2007 13:29.

Kristín Hrund

Hæ hæ,
Vááá hvað er flott brúðkaupsmyndin af ykkur hjónum, þið hafið greinilega verið alveg stór-glæsileg og sæt á stóra deginum ykkar. Bíðum spennt eftir að sjá fleiri myndir :-)
Ykkar vinir Kristín, Diddi, Ísak Léo og lilla litla

Skrifağ şann 18. July 2007 13:57.

Gunnhildur

Hæ, takk kærlega fyrir síðast. Rosalega eru þið sæt og flott á brúðkaupsmyndinni, það verður gaman að sjá fleiri :o) Sjáumst vonandi fljótlega.

Skrifağ şann 12. July 2007 10:06.

Gerður

Hæ kæra fjölskylda og takk kærlega fyrir síðast :)
Mikið er gaman að sjá nýjar myndir af Helga Sigurði ofurkrútti og fyrsta myndin af brúðhjónunum lofar aldeilis góðu, spennandi að sjá restina.
Sjáumst vonandi fljótlega ;)
Knús Gerður

Skrifağ şann 11. July 2007 18:40.

Hrafnkell og fjölskylda

Hæ hæ,
velkomin heim frá Dubai, rosalega væri gaman að sjá myndir þaðan!
Annars fáið þið hrós fyrir duglegheit í uppfærslu síðunnar, aðrir mættu taka ykkur til fyrirmyndar hehemm..
sumarkveðjur,
Hrafnkell, ma og pa

Skrifağ şann 11. July 2007 13:22.

Rebekka

Hæ sæti, bara að kvitta fyrir komuna, en vá Helga þessi brúðarmynd af þér er ofboðslega falleg. Rosalega geislaðir þú á fallega deginum ykkar og það sést á þessari mynd, hún er æðisleg. Koss og knús, vonandi hittumst við fyrr en seinna. Rebekka

Skrifağ şann 9. July 2007 11:52.

amma Ása og afi 'Arni

Elsku fallegi prins okkur langar til að þakka þér fyrir dásamlega ferðaviku sem við áttum saman um vestfyrðina þú varst alveg frábær ferðafélagi ef við tökum ekki ínní öll HJÓLIN sem þú vidir taka traustum tökum og PROFA elsku snúllinn okkar knús og kram tin amma og afi.

Skrifağ şann 6. July 2007 10:03.

Mamma og pabbi á Dubai

Elsku yndislegastur, við erum bara að skoða þig því við söknum þín, ótrúlega gaman að eiga þessa síðu sem rafrænt myndaalbúm.

Knús og kossar úr 40 gráðunum við Persaflóa.

Skrifağ şann 30. June 2007 18:38.

Anna í Lundi

Yndislega fjölskylda,
innilegar hamingjuóskir með gærdaginn. Ég hugsaði til þín Helga mín um það leyti sem þú hefur verið að ganga inn kirkjugólfið. Ég er viss um að þetta hefur verið allt saman glæsilegt hjá ykkur enda eruð þið súpergestgjafar. Vonandi heyri ég í þér í kvöld Helga en ég skil mjög vel að það er nóg að gera við að taka upp pakka, koma niður úr skýjunum og pakka fyrir brúðkeupsferðina. Haldið bara áfram að vera uppi í skýjunum. Góða ferð og njótið hveitibrauðsdaganna.
Ykkar vinkona,
Anna

Skrifağ şann 24. June 2007 16:51.

Gerður

Hæ hæ og kvitt kvitt :)

Gaman að sjá nýjar myndir og hlakka sko til að sjá ykkur á laugardaginn! Já og takk fyrir síðast Helga Nótt - megaskvís hehe

knús Gerður

Skrifağ şann 18. June 2007 13:19.

Harpa Dögg

Hæ elskurnar mínar og takk f síðast
Rosalega fallegt heimilið ykkar og Helgi prins með svona fína svítu..
Svo er bara að koma að stóru stundinni viiiiii hlakka til að sjá marenskökukjólinn ;)
komiði í kaffi sem allra fyrst til okkar.. Tara bíður spennt eftir að leika við sæta herramanninn aftur
Knús frá nágrannaöpunum

Skrifağ şann 12. June 2007 15:24.

Daldís

Hæ hæ heilmikið að frétta hjá ykkur sé ég á síðunni.
Gaman að sjá myndir af nýja heimilinu og hann Helgi Sigurður er nú algjör snúður. Innilega til hamingju með þetta allt saman - ég verð nú kannski í sambandi og fæ að kíkja í heimsókn við tækifæri :) Ég er einmitt að flytja um helgina í Kópavoginn - loksins búin að kaupa.
Bestu kveðjur, Daldís.

Skrifağ şann 12. June 2007 08:56.

Gunnhildur

Hæ, vildi bara kvitta fyrir innlitið...flottar myndir eins og alltaf :o)
Sjáumst fljótlega

Skrifağ şann 11. June 2007 11:18.

Magga og Keli kattarvinur

Hæ hæ sæti duglegi strákur,
rosaleg var gaman að hitta þig aftur og sjá hvað þú ert búinn að þroskast mikið síðan síðast, talar fullt og skilur miklu meira, og svo er svo gaman hvað þú ert mikill boltastrákur alveg eins og Hrafnkell.
Leiðinlegt að heyra með kisu en miklu betra að nú verður Helgi hressari.
Kveðjur úr Hfj,

Skrifağ şann 10. June 2007 21:47.

Rebekka

Hæ sæti strákur, takk fyrir kveðjuna á síðuna, en Helga ég er alveg glötuð að taka myndir af bumbunni, hún er svo stór ;-)
En vonandi næ ég að þrauka og kem í brúðkaupið hjá ykkur, það er allavegana takmarkið mitt. Hlakka mikið til. Við vonandi hittumst fyrr en seinna. Koss og knús, Rebekka

Skrifağ şann 10. June 2007 12:05.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13