


Velkomin á síðuna okkar, við erum Halldór Andri og Hilmir Fannar. Vonum að þið hafið gaman af því að fylgjast með okkur hérna og endilega skrifið í gestabókina og leyfið okkur að vita hverjir eru að fylgjast með okkur hérna ;))
Þeir sem vilja senda okkur jólakort til Sviss þá er þetta heimilisfangið okkar
Gudrun & Omar Halldorsson
Bachweid 4, 6340 Baar, Switzerland.
Um mig - Halldór Andri:
Ég fæddist laugardaginn 1. mars 2008 á Kvennadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss kl 9:06
Ég mældist 53,5 cm. og 4.075 gr. þannig að ég var svakastór strákur strax frá fyrstu mínútu, ekki að ég mæli með því neitt sérstaklega ;).
Allir segja að ég sé líkur öllum en sjálfum finnst mér ég bara vera líkur sjálfum mér og ætla mér að feta ótroðnar slóðir í leit að mínu rétta sjálfi, þessi síða er ætluð ykkar til að fylgjast með ferð minni þangað ;)
Kær kveðja,
Halldór Andri





Um mig - Hilmir Fannar:
Ég fæddist á Landspítalanum 22. Júlí 2009. Ég var 3365 grömm, 52 cm og 34 í höfuðmál. Mamma var komin upp á fæðingadeild um miðnæti og ég kom í heiminn rúmlega klukkustund síðar. Öndunin var aðeins of hröð hjá mér þegar ég kom í heiminn svo ég var inná vökudeild í örfáar klukkustundir en fór svo fljótt aftur í fangið á mömmu minni. Ég er ótrúlega duglegur strákur, líkami minn er þannig gerður að ég þarf að hafa aðeins meira fyrir því að ná þroskaáföngum en ég læt það ekki stoppa mig og held bara ótrauður áfram. Ég er alltaf svo glaður og kátur og bræði hjörtu allra í kringum mig :))





