Halldór Andri & Hilmir Fannar
Halldór Andri & Hilmir Fannar
Forsíða
Vefdagbók
Albúm
Myndbönd
Ættartré
Tannspjöld
Fyrstu árin
Gullmolar
GAPS
Tíu boðorð handa foreldrum
Fiskurinn (19. febrúar - 20. mars)
Krabbinn (21. júní - 22. júlí)
Gestabók
Tíu boðorð handa foreldrum
Þú skalt elska barnið þitt af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum mætti þínum, en einnig með öllum skilningi þínum.
Þú skalt elska barnið þitt eins og sjálfstæða mannesku en ekki eins og eign þína.
Þú skalt meta ást og virðingu barnsins þíns eins og dýrmæti sem þú getur áunnið þér ekki eins og eitthvað sem þú getur krafist.
Í hvert skipti sem þér gremjast heimskupör og hugsunarleysi barnsins þíns skalt þú muna þínar eigin ávirðingar þegar þú varst á sama aldri.
Mundu að barnið þitt á rétt á því að líta upp til þín eins og hetju og gerðu þitt ýtrasta til að verðskulda það álit.
Mundu að gott fordæmi í reynd er betra en umvöndun í orði.
Þú skalt reyna að vera vegvísir á leiðinni í stað þess að hindra snúning hjólanna.
Þú skalt kenna barni þínu að standa á eigin fótum og heygja sjálft baráttu sína.
Þú skalt hjálpa barni þínu að sjá fegurð lífsins, að temja sér vingjarnlegt viðmót, að elska sannleikann og halda frið við meðbræður sína.
Þú skalt gera heimili þitt að hamingjuríkum og öruggum griðarstað fyrir sjálfan þig, fyrir börnin þín og fyrir vini barna þinna.