Gísli Marinó og Ómar Elí Sváfnissynir
Gísli Marinó og Ómar Elí Sváfnissynir
 
 
 

Velkomin á síðuna okkar!

 Hérna koma inn nokkrar myndir af okkur bræðrum og stundum nokkrar sögur af afrekum okkar! Endilega skoðaðu þig um Smile

 

Gísli Marinó Sváfnisson fæddist á Landspítalanum þann 14. ágúst 2009 kl. 2:03, aðeins tveimur tímum á eftir áætlun! Ótrúlega stundvís piltur!

Hann mældist 14 merkur og 52 cm við fæðingu og er að sjálfsögðu með fallega rauða lokka.

Ljónið

23. júlí - 22. ágúst


Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.

 

Ómar Elí fæddist á Landspítalanum þann 6. júní 2013 kl. 07:02, tveimur dögum á undan áætlun.

Hann mældist tæpar 16 merkur og 52 cm við fæðingu og er nauðalíkur stóra bróður sínum.

 

Tvíburar

21. maí - 21. júní 

 

Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.

 

Endilega kíkið á sætu myndirnar af prinsunum og verið dugleg að skrifa í gestabókina 

Bestu kveðjur,

Eva, Sváfnir, Gísli Marinó og Ómar Elí

 

 



Heimsóknir í dag: 2
Heimsóknir frá upphafi: 3329