Brynjar Helgi og Anna Rakel
 

Velkomin á heimasíðuna okkar J

APRÍL 2011 - NÝJAR MYNDIR

Ekki gleyma gestabókinni.......


Um okkur :

Ég heiti Brynjar Helgi Gunnarsson en ég var skírður heima hjá ömmu og afa þann 12 ágúst.

Ég kom í heiminn á Landspítalanum þann 06.06.2006 en ég lét sko ekki bíða eftir mér þar sem áætlaður fæðingardagur var ekki fyrr en 17 júní.  Ég vóg 3060 gr og var 51 sm með mikið hár og stór dökk augu.

Litla systir mín kom í heiminn þann 17.01.2011 en við erum ekki búin að finna nafn á hana og köllum við hana því litlu prinsessuna okkar.

Prinsessan kom í heiminn á 34. vikur en áætlaður fæðingardagur var ekki fyrr en 26. febrúar 2011. Hún vóg 2200 gr og var 45,5 sm.  Hún fæddist með mikið ljóst hár og stór dökk augu eins og ég.

Mamma okkar heitir Lovísa Anna og pabbi Gunnar Örvar. Við búum í Garðabæ með mömmu og pabba.  Við eigum einn hálfbróðir sem heitir Guðlaugur Þór, hann er 13 ára.




 

Mamma og pabbi ætla að vera rosalega dugleg að setja inn myndir af mér þannig að þið getið fylgst með hvað ég dafna vel.

Barn í tvíburamerki:


Barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum eins og svipu sé veifað, þó svo að flestar hreyfingar séu uppávið. Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað. Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer létt með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel. Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinu að það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart. Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn (sem það fann) og fært mömmu sinni að ?gjöf?. Sætt, ekki satt? Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu viss um að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð (íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini. Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara. Tvíburinn er fyndinn og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt að örva. Vertu viss um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lestur þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun af því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tvíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Langsokk. Hallaðu þér aftur, dragðu andann djúpt og taktu þátt í fjörinu.