

Hæ sætastur... takk fyrir síðast á laugardaginn, frábær dagur ; ) Nú fer alveg að styttast að þú fáir kærustu ; ) Bið að heilsa mömmu og pabbi, kossar og knús..
Halló flottastur,takk fyrir síðast.Frábærar myndir af þér og mömmu og pabba þínum.Sjáumst vonandi fljótlega, Andri Þór biður að heilsa frænda sínum. Kv. Ásdís, Hrafn og Andri
Elsku Lóa og Gunnar
Til hamingju með drenginn, hann er algjör krúttsprengja skal ég segja ykkur. Alveg fullkomin. Hann á nú ekki langt að sækja "lúkkið" heldur ;)
Gangi ykkur allt í haginn og aldrei að vita nema ég fái að kíkja á þig og prinsinn með Monu við tækifæri ;)
Hæ sæti strákur!!!! Ég get séd tad ad tú ert búin ad stækka sídan seinast enn ég er tví midur búin ad gleyma lykilordinu...!!! Væri mamman til í ad senda mér tad í maili?
Hlakka til ad geta almennilega skodad myndirnar og séd hvad ber á ykkar daga... taa taa
hæ frændi ! var að horfa á myndirnar með ömmu lóu þú ert æðislegur kær kveðja úr þykkvabæ.ásta frænka
jæja nú verðum við að fara að kíkja í heimsókn þú er orðin svo stór stækar allt of hratt !!!
kv dóra frænka og jón andri
Hæ Brynjar Helgi! Mikið eru þetta nú flottar myndir af þér, þú ert nú heldur betur búinn að stækka mikið. Allt of langt síðan ég hef séð þig, vona bara að ma og pa fari nú að drífa sig í heimsókn til okkar, annars get ég líka sótt ykkur :).
Bið að heilsa, Magnús frændi
Hæ sæti, guð hvað minn hefur stækkað... verð svo að fara að koma og kíkja í heimsókn og fá að knúsa þig... Bið að heilsa, þangað til næst... Erla og bumbustelpa
sæll frændi hvernig er það með mömmu þína á ekki að fara að setja nýjar myndir svo við getum séð hvað þú ert búin að stækka mikið !!!
kv jonny
hæ elsku besti Brynjar Helgi , æðislegar nýju myndirnar af þér : ) þú ert svo hrikalega fallegur og bara orðin fullorðinn... flottastur með puttann :) kossar til þín
Elsku Brynjar Helgi! VÁ hvað þú hefur stækkað, ég þarf greinilega að vera duglegri en foreldrar þínir í ferðalögum og skreppa í bæinn og knúsa þig sem allra fyrst, bara á morgun. Gaman að sjá allar nýju myndirnar af þér og öll svipbrigðin þín. Sjáumst fljótt, knús og kossar frá Brynju frænku og co
Sæll vinur, til hamingju með skírnina og að eiga besta fólkið fyrir foreldra. Bestu kveðjur frá Akureyri...
Hæ flotti frændi, gaman að skoða nýju myndirnar, mamma þín er dugleg í þessu . Sjáumst vonandi í vikunni.
kveðja frændi
Halló sæta fjölskylda. Innilega til hamingju með þennan fallega og flotta strák. Það er ekkert smá að drengurinn er mannalegur og flottur hjá ykkur :)
Til hamingju líka með fallega nafnið hans.
Knús og kram Inga Birna
hæ sætastur, guð hvað minn er orðinn stór og alltaf jafn fallegur ; ) Verð svo að fara að koma og fá að knúsa þig, kossar og knús og bið að heilsa mömmu og pabba.
Hæ elsku prins, gaman að skoða allar fínu myndirnar af þér. Bíð eftir að þú komir nú í heimsókn til okkar á skaganum svo ég fái að knúsa þig.
Kveðja frá Hafdísi
Hæ Brynjar Helgi!
Til hamingju með nafnið þitt sem er rosalega flott og flott síða hjá mömmu þinni og pabba.
Kveðja,
Hrönn, Siggi, Aron Már og Andri Snær!
hæ elsku sætasti litli vinur minn, þú ert svo lang mesti krúttilíus, við alltaf að kikja á fínu síðuna þína : ) það er svo langt síðan ég pantaði að fá að hitta þig og alltaf hittist illa á kannski við fáum að hittast núna um helgina ? kossar og knús þinn Röggi Þór og mamma
bara kvita varð að kíkja á sætasta frændan
sjáumst fljótlega koss og knúss dóra frænka
jaaaaahéérna hvað þú ert fallegur gutti elsku Brynjar! Til hamingju með skírnina þína, fallega nafnið og mömmu og pabba!
Hlökkum svo til að hitta þig sem fyrst.. eigum von á því að koma í bæinn allavega tvisvar fyrir jólin :o)
Koss og knús og kreist og kremj..... tosaðu mömmu og pabba svo í almennilegt ferðalag austur! Það væri snilld!!!!!
Unnar frændi, Alda "frænka" og Davíð stóóóri frændi :o)
Elsku litli Brynar við viljum óska ykkur til hamingju með þessa heimasíðu og nafnið Brynjar Helgi
Bestu kveðjur. Dagur Logi, Pálmi Fannar,
Valdís og Sigurður.
Innilega til hamingju með flotta nafnið þitt flotti strákur. Rosalega eruð þið nú sæt fjölskylda. Hlökkum til að sjá fleiri myndir, sérstaklega úr skírninni fyrst við vorum að ferðavesenast þá.. Knús og kossar til ykkar allra:)
Hæ hæ elsku Brynjar Helgi sætibollus!!!
Til hamingju með skírnina og fallega nafnið þitt litli sæti prins! Þú ert orðinn ekkert smá stór og sperrilegur. Hlökkum til að fylgjast með þér hér fyrst mamma og pabbi eru svona dugleg með myndavélina. Við verðum að hittast fljótlega!
Kv. Inga, Gummi og lilla dúll
Hæ elsku sæti krúttilíus : ) flottar nýju myndirnar af þér þú ert alveg svakalega orðinn stór og mannalegur! oh hvað mig hlakkar til að hitta þig bráðum og sína þér allt dótið mitt kær kveðja þinn vinur Röggi Þór
hæ elsku Brynjar Helgi og innilega til hamingju með þetta fallega nafn, og nýju síðuna þína, þú ert alveg æðislega krúttulegur og okkur fynnst rosalega gaman að fá að skoða þig hérna, hlökkum til að sjá ykkur, kv. Þorbjörg og Garðar
Hæ elskurnar! Takk fyrir síðast - alveg frábær dagur.
Fínar myndir af flottum strák með flottasta nafnið. Lofa að kíkja daglega á síðuna þína elsku frændi. Knús og kossar frá Brynju frænku og co
til hamingju með síðuna og takk fyrir síðast.
koss og knúss dóra frænka og nonni frændi
Halló litli moli velkominn í heiminn og til hamingju með fallega nafnið þitt bestu kveðjur í ma og pa kv Freyja og Örvar
Hæ elsku vinir! Æðislega var gaman að fá að vera með í veislunni ykkar. Stórglæsilega að þessu staðið!! Og bestu veitingarnar... Jeremías minn!! Óléttum konum finnast kökur BESTAR Í HEIMI!! hehehe... Og nafnið toppaði auðvitað allt saman!! Brynjar Helgi Gunnarsson.. Það er enginn nema meistari sem ber svona nafn.
Knús og kossar til ykkar allra :* Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst!!
Hæ sæti og til hamingju með fallega nafnið þitt, passar þér ekker smá vel ; ) Verðum svo að fara að hittast, biðjum að heilsa mömmu og pabba