

Halló !! hvar eru allar myndirnar af aðal prinsinum mínum?? bara ekkert nýtt í meira en mánuð. Já Brynjar minn foreldrar þínir eru greinilega ekki alveg að standa sig :) þessa dagana.
EN risa stórt knús og koss til ykkar allra og ég bíð spennt eftir nýjum myndum. Skagakveðja frá Brynju og co
hæ hæ til hamingju með 2ja ára afmælið ég komst ekki ég var í sveitini og er að fara aftur í kvöld en vonandi kemst ég næst........................kv anna lóa :)
Vá hvað þú ert sætur á þessum sumarlegu myndum. Alltaf gaman að kíkja hingað og sjá hvað þú og þínir eru að bralla. Takk fyrir afmælispartýið um daginn, það var æði. Daníel Björn vildi bara alls ekki fara heim það var svo gaman.
Knús til ykkar allra.
Hæhæ sæta fjölskylda og til hamingju með 2ja ára afmælið þitt um daginn Brynjar, þú ert nú alltaf sama krúttið:-)
Skilaðu kveðjur á múttuna...
Kveðja
Sonja, Aníta og Aron
Hæ litli sætasti eðalprins, svo stutt síðan þú fæddist og svo bara liðin tvö ár - þú fermist áður en maður veit af. Mikið var þetta nú flott afmæli hjá þér/ykkur. Ég panta að þú hjálpir mér í garðslættinum þú ert svo flottur með fínu sláttuvélina þína. Risa knús til ykkar og vonandi sjáumst við mjög fljótt.
Skagakveðja frá Brynju og co
Elsku besti vinur:)
Til hamingju með tveggja ára afmælið þitt í dag...
Sjáumst hressir og kátir á morgun :)
Afmælis Risaknús frá okkur :))
Hæ Hæ flotti afmælisstrákur :) Innilega til hamingju með 2 ára afmælið þitt, njóttu dagsins í botn og ég hlakka rosalega mikið til að sjá þig á morgun, loksins kem ég að sjá nýja herbergið þitt ;)
Risaknús og afmæliskveðja frá okkur öllum
Hæ sætastur...
Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Brynjar hann á afmæli í dag...
Þúsund kossar og knús til þín, innilega til hamingju með 2ja ár afmælið í dag...
Hafðu það rosalega gott og láttu settið stjana við þig í tilefni dagsins, sjáumst svo á morgun...
Risaknús frá okkur
Hæ sæta fólk!!! VIð Björg ákváðum að taka okkur smá pásu frá skýrslugerð og kíkja á Brynjar rassgat!! :)
Ástarkveðjur
MOna og co
Hæ litli prins, loksins komnar nýjar myndir af fólkinu flotta :) það hefur verið fjör hjá ykkur litlu frændunum í Húsdýragarðinum og auðvitað prófaðir þú fínu gröfurnar. Fínt að sjá litla lófan þinn - bara nokkuð góður :D
Knús og koss til ykkar allra frá Brynju frænku og co
Halló sæta fólk....
Vildum bara senda ykkur knús.. svo langt síðan við hittumst.
knús knús
Edda og Daníel Orri
Æ voðalega ertu duglegur pjakkur.....fórst í aðgerð og allt ! Það stingur alveg í mömmuhjartað að sjá svona lítinn og sætan sjúkling á spítalanum.
Frændurnir biðja að heilsa.
Kveðja, Júlía
þú ert allveg rosalega tuglegur að fara í aðgerðaina.......
en vona að hendin þín bani fljótlega........kv anna lóa frænga :)
Elsku litli Moli minn, mikið rosalega ertu duglegur og sterkur strákur. Þú er bara algjör hetja :-). Fyrir utan það allt ertu líka mesta krútt ever .
Knús kveðjur frá Rósu og strákunum.
Elsku kúturinn!!
Ofsalega slasaðiru þig mikið! maður fær alveg sting í hjartað að sjá þig þarna á sjúkrahúsinu.... en það er sko greinilegt að þú ert mjög mjög duglegur strákur....algjör hetja eins og svo margir eru búnir að segja við þig...:) Vonandi er höndin að verða betri....
Gleðilegt sumar:)
kv.
Guðrún og Nína Dögg
Hæ, þú ert nú ekkert smá duglegur strákur Brynjar minn og líka allra flottastur. Já það er nú satt hjá mömmu þinni að þessar myndir eru ekkert fyrir viðkvæma (snökkt) en vonum bara að allt fari vel litla hörkutól :D
Knús og koss til ykkar frá Brynju og co
hæ hæ þú ert ótrúlega duglegur allgjör hetja!!
koss og knúss
úr grafarholtinu
Hæ Frændi,
Þú ert svo svakalega duglegur strákur...algjör hetja:))
Mar fær sko sting í hjartað að skoða þessa myndir. Allt gekk svo vel svo nú er bara að jafna sig á þessu :))
Þurfum endilega að hittast fljótt aftur, minns varðs svo þreyttur í Húsdýragarðinum að við urðum að bruna.
Verðum í bandi og stefnum á play-date
Risaknús
Edda og Daníel Orri
Mikið ertu duglegur strákur, ég fékk nú bara smá tár í augun að sjá spítalamyndirnar. Það var gott að allt gekk vel. Bið að heilsa mömmu þinni og pabba. Hafið það gott sæta family. Knús og kossar!
Hæ hæ..langt síðan ég hef kikt á síðuna ykkar. Alltaf gaman að skoða prinsinn ykkar sem er að verða frekar líkur pabba sínum.
Hafi það gott í sumar. Bestu kveðjur úr Garðabænum
Hæ sætastur
Flottar nýju myndirnar þínar, eins og alltaf ;) Gott að heyra að þú ert allur að koma til í hendinni og mundu að láta foreldra þína stjana við litla kútinn sinn ;) Vonandi förum við svo að hittast bráðlega og leika okkur saman..
En hafið það gott og láttu þig batna sætastur
kv. af Álftanesinu
Hæhæ elsku Brynjar. Fínar nýju myndirnar þínar, sé að þú hefur verið duglegur að hjálpa mömmu þinni í fluttningunum :)
Láttu þér nú batna í hendinni þinni elsku vinur. Ég hlakka rosalega til að sjá þig og ykkur í fyrsta sinn ;)
knús kveðjur úr Kópavoginum
Þín vinkona Garðarsdóttir (og mamma mín biður líka að heilsa ykkur öllum)
hæhæ sæti strákur. Vildi bara kvitta fyrir mig, alltaf jafn gaman að kíkja á fínu myndirnar af þér:-)
Bið að heilsa henni mömmu þinni :-)
Keðja
Sonja og co
Hæ sæti. Flottar myndir af þér. Alltaf eitthvað að bralla. Vonandi líður þér betur í hendinni elsku litli kall. Það var leiðinlegt að heyra að þú meiddir þig svona illa. Knúskveðjur frá okkur hér í Rofabænum.
hæ hæ flotar myndirnar af þér flotastur bæ bæ kv anna ló
Hæ litla krútt, flottar myndir af þér enda ertu líka flottastur :D Það hefur greinilega verið fjör að fá að taka aðeins til og máta allt úr skápnum þínum - algjör krúsilíus. Vona að allt verði í lagi með litlu hendina þína elsku vinur. Risa knús til ykkar frá skagaliðinu
hæ hæ það er rosa lángt síðan að ég hitti þig en mamma þín fór að horfa á mig á jazzballet sýningu og það var rosa lega gaman en bæ bæ
Hæ Frændi,
Rosalega flott þetta nýja á forsíðunni. ALveg gaman sjá svona "gamlar" myndir,hehe Rifjast margt upp :)
Ótrúlegt að þú skulir ekki fyrir svo löngu hafa verið svona lítll og glænýr,hehe
Og við mömmsurnar með barnavagnana, vá hvað mér finnst langt síðan það var.
Allavega mjög skemmtilegar myndir þínar sæti gaur :)
Sjáumst sem allra fyrst ...
Kveðja Kjúllarnir í Hvarfinu
það var rosa gaman á fimmtudæginn hjá okkur ég var að hjálpa esteri að pasa þig svo kom mamma þín heim með magtónalds og þú borðaði 2 heila hamborgara rosa duglegur:) og fullt af frönskum en verð að hætta að skrifa bæ kv anna lóa