

Þorbjörg Rún:
Hrúturinn
21. mars – 19. apríl
Stjörnumerkið hennar Þorbjargar Rúnar er hrútur og eru foreldrarnir búnir að finna tvær umsagnir fyrir hrútinn sem forvitnilegt er að skoða. Einhvern veginn kom þetta þeim ekki á óvart en spurningin er hvort hún verði svona fjörug en hún á reyndar ættir að rekja til þess ;)
Þessa umsögn er að finna á Bland.is:
Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu.
Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér - það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum.
Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar.
Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.
Og þessi umsögn er á femin.is:
Barn í hrútsmerki er algjör orkubolti, sem þú sérð skjótast hingað og þangað og er alltaf að. VÁ! Vonum bara að þú náir að fylgja því eftir. Þetta barn er frumkvöðull að eðlisfari og elskar að prófa og kanna og býr yfir mikilli orku.
Athafnir eftir skóla eru algjör nauðsyn fyrir þetta barn, t.d. íþróttir og útivera. Íþróttir eru í raun mjög góður kostur fyrir hrútinn því að þetta eru yfirleitt kappsfullir einstaklingar að eðlisfari. Þar sem börn í hrútsmerki eru hvatvís þá eru þessi börn oft svolítið erfið fyrir kennarann að höndla og getur verið erfitt að hafa mörg börn í bekknum sem eru í hrútsmerkinu.
Hrúturinn er alltaf að prófa eitthvað nýtt og er hugrakkur og er því ávallt með marbletti og skeinur eftir klifur í trjám eða öðru slíku. Það er ljós að barn í hrútsmerkinu er ekki fyrir hjartveika foreldra. Mikilvægt er að barnið upplifi sig sjálfstætt og ef þú ert að passa upp á það skaltu reyna að komast hjá því að það sjái það. Þetta barn vill gera allt sjálft.
Að lokum, barn í hrútnum veit ekki hvað það er að hægja á sér, svo að það er betra fyrir þig að venjast snöggum hreyfingum. Gott að fylgjast með sykurinntekt þessara barna og hafa í lágmarki, því trúðu mér þessi börn hafa næga orku fyrir.
Árbjörg Ynja og litli bróðir:
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Stjörnumerki Árbjargar Ynju og litla bróður er vatnsberi og eru einnig tvær umsagnir um vatnsberann hér fyrir neðan.
Þessa umsögn er að finna á Bland.is:
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skilja heim fullorðinna.
Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt.Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum.
Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti.
Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
Og þessi umsögn er á femin.is:
Þú getur búist við að barn fætt í vatnsbera sé ávallt svolítið úr takt við lífið og tilveruna, en það er stór hluti af sjarma þess. Þú getur reiknað með að þessi einstaklingur taki upp á öllu og komi oft á óvart.
Vatnsberinn er frjáls í hugsun og mjög sjálfstæður. Að fljúga flugdreka um hávetur er eitthvað sem vatnsberanum gæti dottið í hug og fundist það fullkomlega eðlilegt.
Barn fætt í vatnsbera er mjög hugmyndaríkt og skapandi og er sífellt að vinna með tæki og tól og mun sennilega vera nettengt frá unga aldri. Tækninýjungar heilla barn í vatnsbera og þú getur bókað að það getur tengt fyrir þig nýja myndbandstækið. Þessi litli vísindamaður gæti sennilega meira að segja búið til eigið myndbandstæki.
Vegna þess hve fróðleiksfús vatnsberinn er ættir þú ávallt að hafa nægar bækur í kringum hann. Vatnsberanum gengur vel í skóla þó svo námsaðferðir virðist stundum vera óvenjulegar. Ritgerðir skrifaðar í hálfleik í handboltanum er eitthvað sem ekki er óvanalegt að sjá.
Sumum finnst barn í vatnsbera vera fáskiptið og utan við sig en það er vegna þess að það hefur sinn háttinn á að gera hlutina. Sannleikurinn er sá að vatnsberanum finnst gaman að vera í kringum önnur börn.