


Við erum systurnar Þorbjörg Rún og Árbjörg Ynja. Foreldrar okkar eru Emil Gunnarsson og Laufey Björk Sigmundsdóttir, og eru þau ótrúlega stolt af okkur 

Ég heiti Þorbjörg Rún og er fyrsta barn foreldra minna og kom í heiminn 31.03.10 klukkan 8:21, valdi mér flottan fæðingardag
Þegar ég kom í heiminn var ég 51 cm og 3580 g (14 merkur) en ég mætti einni viku fyrir áætlaðan tíma öllum til mikillar ánægju. Móðurfjölskyldan var öll í heimsókn þegar lætin byrjuðu og þannig fékk öll fjölskyldan að vera með frá byrjun. Fæðingin gekk vel, við mættum í Hreiðrið rúmlega fimm og var ég komin þremur tímum seinna. Ég var skírð á Þingeyri á afmælisdegi móður minnar, 23. maí, sem bar upp á Hvítasunnudag.

Ég heiti Árbjörg Ynja en ég kom í heiminn 29.01.12 klukkan 03:29 og lá mér frekar mikið á
Þegar ég fæddist var ég mæld 52 cm og 3875 g, en þar sem ég var með bogin hnén í mælingunni mældi pabbi mig aftur þegar við komum heim og var ég þá 54 cm
Ljósmóðirin var búin að vara mömmu við því að ég gæti átt það til að drífa mig í heiminn en samt kom ég foreldrum mínum í opna skjöldu og munaði ekki miklu að ég fæddist í andyrinu heima. Vegna þrjósku móður minnar náðu sjúkraflutningamennirnir að koma okkur niður á Landspítala og ég fékk að kíkja í veröldina um leið og við komum út úr lyftunni. Ferlið tók því ekki nema rétt tæpa 2 tíma frá fyrstu merkjum og gekk rosalega vel en foreldrar mínir voru þó smástund að ná sér eftir þennan hasar
Ég var skírð á Þingeyri á skírdag, 5. apríl.