

tad vantar alveg myndir af kuluni nuna svona undir lokin :)
en spennt ad vita tegar barnid kemur og sem betur fer er tad ekki komid tar sem eg er buin ad vera uti sidan a midvikudag :D haha
Já ég ætlaði nú að skrifa eitthvað hér, en ekki senda autt eins og ég gerði hér að neðan :)
En alla vega vildi bara koma til að óska þér góðs gengis því nú er náttúrulega að verða svo stutt eftir :)
Bíð spennt eftir sms eða hringingu um að prinsinn sé fæddur...hhehehe
Knús og kossar
Helga Fríður
Góða kvöldið,við erum bara aðeins að kíkja á ykkur og sjá hvernig gengur :)
gangi ykkur svo rosa vel þegar kemur að stóru stundinni.
kv frá okkur öllum....
Var nú bara að líta við og athuga hvort þú værir að vinna keppnina:) ég get ekki einu sinni þóst vera þolinmóð því ég er gjörsamlega að deyja hérna úr leiðindum.. þetta má sko alveg bara fara gerast!! ;) Hafðu það gott
kveðja Hildur og bumbi
Jæja þá fer nú alveg að koma að þessu hjá þér Lóa mín. Gangi þér bara sem allra best, veit þetta á eftir að ganga rosalega vel hjá þér, þú ert svo mikið hörkutól;) Sendi fullt af hríðarstraumum á þig..á fullt eftir síðan síðast..hehe.
Knús..Vala og Anja
jæja... ekkert að gerast..;)
Fylgjumst spennt með hérna úr Viðarásnum.
Bestu bestu kveðjur og gangi ykkur vel.
kveðja
Matta litla og co.
farðu nú að skella inn myndunum síðan í matnum í gær og kannski 1 stykki kúlu mynd.. höfum ekki verið duglegar að taka :S. mikð að gera hjá mér og já ..hittist alltaf asnalega á ..
ooog komma svooo í nótt eða á morgun :) gef þér frest til 12 annað kvöld!!:)
herdís og aron
Halló þið öll !!!!
Gangi ykkur alveg rosalega vel á lokasprettinum..... ég held að þetta sé S........... hahahahahahha hlakka til að fá fréttirnar af þér Lóa mín, láttu þér líða vel svona síðustu dagana . Við sem vorum vissar að þetta kæmi síðustu helgi, en vonandi sem fyrst er farin að hlakka svo mikið til, þetta er náttúrulega bara það besta í heimi :)
Hæhæ
Gaman að skoða myndirnar ykkar, finnst Ellen svo lík þér:)
Vonandi fer krílið að koma, þín er sárt saknað í sundinu. Erum orðnar svo fámennar, 5 held ég:)
Vonandi fer krílið nú að láta sjá sig, gangi þér rosalega vel og mun vera fastagestur á síðuna ykkar að fylgjast með:)
Kveðja,
Steinunn&cp
Hæ sætu mínar, oh hvað ég hlakka til fyrir þína hönd að þetta sé allt að nálgast. Fylgist með hér á hverjum degi til að sjá hvort eitthvað hafi gerst :-D Vonum að þetta fari nú allt að klárast og vonum að þér líði vel þennan stutta tíma sem eftir er.
Knús og kram til ykkar frá okkur.
XXX
Úff, nú fer alveg að koma að þessu! Ég hlakka til að koma hér næst og sjá lítið kríli á forsíðunni með Ellen :-)
Ætlaði bara að óska ykkur góðs gengis svona á síðustu metrunum....
Bæjó, Harpa Mjöll
jæja nú fer aaaalveg að koma að þessu.. ef þú ert ekki bara að eiga í þessu töluðu orðum. Hlakka til að sjá myndir, gangi ykkur ofboðslega vel sendum góða strauma. kv.Ester og Stefán á ísó.
Hæhæ
Rosalega gaman að spjalla saman í dag :)
Alltaf nóg að tala um hjá okkur...haha
Vonandi hittumst við á morgun, nema að þú verðir komin upp á deild ;) híhí
Þín Solla
hehe einsog þú hafir ekki fílað malavegin svo barnið kæmi fyrr hehe :) rosa gaman að skoða ykkur :) hafiði það gott sakna ykkar voða voða mikið :) lovja
Hæ hæ
þið eruð svo æðislegar... gaman að sjá myndböndin, en gangi þér vel áfram vel Lóa mín
Er farin að sakna þín Ellen alveg rosalega
kv.Freyja
Gaman að skoða myndirnar ykkar.. Lóa þú lítur ekkert smá vel út.. og gaman að eiga nóg af bumbumyndum, ekki er ég svona dugleg =/ hehe.. vonandi fer þetta bara gerast hjá okkur ;) allavega er ég orðin ansi þreytt á þessari kúlu :) segi bara gangi þér vel.. við fylgjumst svo með ykkur áfram ;)
Jæja núna fer bara alveg að koma að þessu hjá þér Lóa mín. Gangi þér sem allra best og ég hlakka til að sjá krúttið þegar það lætur sjá sig.
Knús..Vala og Anja
Jæja.... Vá litla krílið fer bara alveg að koma..
Ellen mín þetta verður sko spennandi og þú átt sko eftir að standa þig vel í þessu stóru diddu hlutverki...
Jæja Lóa mín nú er bara að að fara að drífa í þessu er að koma eftir nokkra daga...Hoppa og bííííbbbbbb....;)
Knús kveðja
Sylvía og strákarnir (sms)
hæ Ellen Helga.
Þetta er Inga vinkona þín frá Ólafsfirði mig langar svo að skoða síðuna þína ef þú gæfir leyfi viltu þá senda mér lykilorðið á emailið hans pabba. Ég er búin að bíða eftir því að þú komir í heimsókn norður á Ólafsfjörð ég sakna þín og langar til að fara að hitta þig bæ bæ Inga Lilja
hæhæ :) fer að styttast í þetta allt saman..ætlaði bara að segja þer að mer dreymdi í nótt að þu hafir eignast lítinn sætan strák heheh :)
Hæ elskurnar mínar. Vá Ellen þú ert orðin svo stór skvísa, get ekki beðið eftir að knúsa þig. Lóa mín nú styttist þetta óðum og minn hugur er hjá þér þessa síðustu daga. Gangi ykkur hrikalega vel og farðu vel með þig. Það gengur rosalega vel hérna megin og prinsessan sefur og sefur og vaknar og hefur bleiuskipti og drekkur og sofnar aftur :-D Yndislegt líf. Hafið það sem allra best, p.s. er búin að kyssa lærið hennar frá ykkur ;-)
Knús og kram til ykkar frá okkur
ohh ertu að grínast að ég skuli ekki vera fyrir sunnan hjá ykkur sakna ykkar allra er buin að vera skoða og skoða litlu stóru sætu kúlun :) gvuð hvað ég væri til í að koma suður bráðum hafiði það sem allra best elskurnar sakna ykkar Endlaust gangi þér vel á lokasprettinum kv frá Neskaupsstað
Hæ sæta fjölskylda, takk fyrir aðgangin á síðuna það verður gaman að fylgjast með litla krílinu og stóru systur gangi ykkur vel.
hæ hæ gaman að sjá þig Ellen elskan min þú ert svo frábær...
sakna þín endalaust.. ég fer að taka mer frí á sjónum til að bjóða þér hingað norður.. love ya bæ
Jæja svo krílið vildi ekki koma á afmælisdaginn minn :o)
en jæja, þá velur það sér bara einhvern annan góðan dag. Þetta er svo spennandi. Heyrumst fljótlega.
ps. gjafapúðinn er fundinn og bíður spenntur eftir að verða notaður.
Bestu kveðjur úr Selásnum
Matta mega og co.
flottar myndir ;)
mínar koma bráðlega..
ég er líka að senda í framköllun á netinu 100 myndir á 2500 :)
herdís ;*
Hæhæ
Sætar myndirnar ykkar:) Ellen Helga ekkert smá lík mömmu sinni, nákvæmlega eins
Kveðja,
Steinunn úr sundinu
Yndislegar myndir :-) Gott hvað þér líður vel vinkona. Strákarnir mínir biðja að heilsa í bæinn.