

Í dag 28 Mars 2010 erum við á spáni. Vorum í göngutúr og segjum allt í einu: Jæja Elena eigum við að fara niður á stönd? Já segir hún og svo heyrum við allt í einu hana syngja:
Hér koma Mamma, pabbi, lárus og Elena það þýðir ekkert að slóra. Hvert ætlum við? Niðrá stönd. Hvert ætlum við? Niðrá strönd.
ég sprak úr hlátri. Upprunulega lagið fyrir þá sem ekki vita er úr Dóru og hljómar. Hér koma Klossi og Dóra það þýðir ekkert að slóra. Hvert ætlum við? Heim til dóru......
Í dag 29 sept. 2009 lærið Elena greinilega nýtt orð í leikskólanum. Allt í einu við matarborðið segir hún: Nanana búbú kúkalabbi.
2 ára gömul þá heita ömmur hennar og afar.
Amma Telly (Terry)
Amma Tunna (Gunna)
Afi Ham (Juan)
Afi Lalli
Ætla setja inn nokkra hluti svo ég gleymi þeim ekki.
Þegar það var verið að skíra bróður hennar þá var presturinn að hella vatni yfir höfðuði á honum og Elísabet frænka þeirra hélt á Lárusi Juan og það fór smá vatn á bolinn hennar. Þá segir Elena við mig: Mamma hann er að sulla á Elísabetu.
29 mánaða gömul.
Súrmjólk: sirilok
hættu: hestur
Hún var næstum því dottinn um daginn og þá heyrist í henni: Vá mamma sástu etta?
12 januar 2010.
Elena var að bíða eftir barnatímanum og á undan komu táknmálsfréttir. Hún horfið allt í einu á mig og segir: Mamma hann er að syngja Gulur, rauður,græn og blár. hahaha
28 april 2010.
Elena var að segja ömmu terry hvað puttarnir heita. Hún byrjaði, þumalfingur, vísifingur, lambakjöt, baugfingur,litliputti.
Mai 2010.
Ég og Elena vorum í Zöru og stóðum í lyftunni og þá segir hún: mamma ég pissa á mig. Já segir ég við erum alveg að vera komin á klósettið þú verður að halda í þig. Er mér litið á hana og stendur hún og heldur í buxurnar sínar og bolin og segir: mamma ég halda í mig.
Þegar við erum á göngu hér úti á spáni og það er hundaskítur á stéttinni þá segjum við alltaf "kúkur í lauginni" svo komu amma Gunna og Afi Lalli í heimsókn til okkar og þau 3 voru í göngutúr og elena sér kúk og segir kúkur í lauginni. Og amma Gunna segir nei á stéttinni og Elena var svo hneyksluð að hún átti ekki til orð.
Vorum að horfa á sjónvarpið og allt í einu kemur Denzel Washington á skjáin og Elena segir: Mamma hann er með súkkulaði út um allt.