

Hæ Daníel Friðrik
Þetta eru nú flottar myndirnar af ykkur þarna í Póllandi..
Þú ert nú samt alltaf jafn sætur, en vá hvað þú hefur stækkað.
En ég bið bara að heilsa mömmu þinni og pabba..
Hlakka til að sjá þig í sumar..
Kv. Ingibjörg Ásta
Hæ hæ sæti prins:-) va á flakki og vildi kvitta fyrir mig :-) bid ad heilsa mømmu og pabba kvedja Hanna og co.
komið þið sæl öll, til hamingju með daginn (gamla mín:).
kveðja úr sveitinni
Elsku Katrín! Innilega til hamingju með 25 árin! Pældu í því, 1/4 úr öld liðinn og þú ferð að hallast nær 30 árunum frá og með deginum í dag, ha! ;) Njóttu dagsins dúllan mín og láttu strákana stjana við þig :) Kær kveðja, Tinna.
Til hamingju með mömmu þína.Elsa mamma Ásdísar og co Fásk.
Hæ hæ Rosalega ertu mikið krútt, ég rakst á síðunna þína og langaði að kvitta fyrir komuna.
Bið að heilsa mömmu þinni, kær kveðja frá firðinum fagra
Sjáið þið kannski ekki netfangið okkar birtast? Ég sló það samt inn en það er manatrod3@simnet.is
kv. Þorbjörg.
Halló sæti strákur.
Mikið er gaman að skoða myndirnar af þér. Þú hlýtur samt að hafa stækkað eitthvað síðustu vikur eða MÁNUÐI?!
Viltu biðja mömmu þína að senda okkur netfangið sitt. Okkur langar til að skrifa henni smá póst.
Kveðjur frá Egilsstöðum, Þorbjörg og Erlendur.
Hæ Daníel Frikðrik..
Mamma þín og pabbi ættu nú að far að kíkja hvaða mánuður er..
Mig langar svo að sjá nýar myndir af þér.. Þótt að ég sé nú alveg að far að koam til þín ( í júní- júlí) Vááá hvað mig hlakkar til að hitta þig og knúsa og kyssa..
Kv.
Ingibjörg Ásta
Hæ hæ frændi litli, þú hefur aldeilis stækkað frá því ég sá þig í sumar,fékk slóðina hjá Ellu svo ég gæti kíkt við hjá ykkur, myndirnar eru alveg ábærar, verð nú að brosa af sumum, þú ert svo grallaralegur, gaman að sjá hvað þú þroskast á þessum mánuðum, annars bara allt gott af okkur, erum búin að fara í 2 skíðaferðir í vetur,var að kaupa mér ný skíði í gær og klæjar ekkert smá að komast til að prófa þau, vona að páskarnir verði góðir til þeirra iðkunnar, bestu kveðjur til ykkar allra og hafið það sem best, Gunnþóra frænka og co. xxx
Alveg hreint fínar myndir, sé að drengurinn vex og dafnar. Bestu kveðjur af næstu eyju.
Halló sæti: alltaf jafn kátur og hress.
Elsku Katrín mín takk fyrir fallega kveðju á síðunni minni.
Hlakka til að hitta ykkur þegar þið komið heim á klakann.
Ps. pakkinn bíður eftir þér litli prins,
Kv Svava og co
Halló fallegi strákur ;o)
Mig langaði bara aðeins að segja HÆ...
Ég vona að þið hafið það öll alveg ofsalega gott þarna í Danmörkinni og ég vona að ég fái að sjá ykkur næst þegar þið komið heim til Íslands...
Knúsaðu mömmu þína og pabba frá mér
Kveðjur úr snjónum í Reykjavík
Sigga Rósa
P.S. Segðu mömmu þinni að mér þyki alveg OFSALEGA VÆNT um hana ;o)
Sæll litli frændi!
Bara að kvitta fyrir mig, alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af þér og fylgjast með ykkur fjölskyldunni í útlandinu :) Hlakka mikið til að hitta ykkur í sumar austur á héraði :)
Hafið það gott öllsömul, kveðja
Helga frænka
Hæ hæ öll sömul! Var að skoða myndirnar og ákvað að skilja eftir kvitt. Var að skoða myndirnar frá jólunum og ég var orðin svo spent að sjá hvað var í pakkanum sem Daníel var að opna og svo þegar að það komu myndir af ykkur við borðið þá lá við að ég öskraði því að ég hélt að það myndi ekki sjást hvað var í pakkanum en fjúkk það kom svo í ljós hahahahaha
Kveðja Jakó og co
Hey þú flotti kall!
Ertu til í að fara að hnippa í foreldra þína og benda þeim á hvaða mánuður er og þá líka hvenær þau settu síðast inn myndir af þér. Já Birna frænka kann sko ekki að meta svona leti!!! Svo væri nú gaman að fara að heyra í ykkur.
Þangað til, knús og kossar
Birna og kallarnir
Sæl öll sömul varð bara aðeins að kíkja á ykkur, því ykkar er mikið saknað, vonandi ertu duglegur að borða ávexti þó ég sé ekki til að aðstoða þig við það. Kveðja Fanney
Hæ litla systir og co. Langaði aðeins að kíkja við og brosa.. það er nefnilega ekki annað hægt þegar maður skoðar myndirnar af litla sæta frænda - hann er ekkert smá skondinn og grallaralegur.
Hafið það rosa gott og farið svo að kíkja við á skypinu!!! Ég er alltaf að athuga en engin Katrín:(
Knús og kram, Kristín
Hæ hæ! Mætti halda að ég sé alltaf hérna inni, en ég kíki nú annað slagið :)
Hæ allir ! Sakna ykkar svooo mikið. Það verður æði að
fá ykkur heim í sumar, bara 5 mánuðir eftir.
Kveðja frá Ellu gellu og örugglega frá öllum hinum
á bænum sem eru sofnaðir.
Hæ krúttilíus! Maður bara bráðnar að sjá myndir af þér :) Sýnist nú líka vera mikið fjör í kringum þig. Vona að þú hafir það gott og bið að heilsa gamla settinu! Kveðja, Tinna.
Hæ Daníel Friðrik, við erum alltaf að skoða myndirnar af þér, það er nú gaman. Elvu Dögg hlakkar alveg rosalega mikið til að knúsa þig eftir nokkra daga, hún skoðar reglulega tannspjaldið þitt og var mjög glöð í kvöld að sjá hversu margar tennur eru komnar, svo langar hana mikið til að prófa borðið og stólana þína, Ingibjörg Ásta er smá sár að fá ekki að hitta þig eftir nokkra daga, en hún verður hjá Viktor Óla á meðan, þá fær hún að knúsa hann en ekki þú ligga ligga lá...kveðja úr sveitinni
Hæbb! Mamma er hérna inni nánast alla daga að athuga hvort það séu komnar inn nýjar myndir. Henni finnst þú greinilega flottur. Kveðja Viktor Óli
Hæ hæ fallegi frændi:o)
Ég vildi bara kvitta fyrir komuna, það var rosalega gaman að skoða myndirnar af þér. Þú ert greinilega mikill fjörkálfur.
Bestu kveðjur til mömmu og pabba!
Halló litli engill. Það er alltaf jafn gaman að kíkja við á þessari síðu, þú ert bara sætastur....... Tíminn líður hratt og þið verðið flutt heim áður en við vitum af og hlakka ég mikið til að sjá ykkur.
Kær kveðja frá öllum úr hjallanum.
Hææ sæti frændi..
Það er nú flottar nýju myndirnar af þér... Mér hlakkar til að sjá þig í ágúst þegar þú flytur hingað á klakan..:):) Þetta er nú bara svindl ég fæ ekki að koam með mömmu og Elvu Dögg til ykkar:(:(
En maður verður nú bara að sætta sig við þetta..
Kv.
Ingibjörg Ásta:)
Hae fraendi (vona ad thu viljir enn vera fraendi minn)! Nu datt eg aldeilis i lukkupottinn ad sja svona mikid af myndum sem eg var ekki buin ad sja. Thu ert audvitad aedislegur a ollum myndum, algjör sjarmör. Se a myndunum ad thid hafid gert thetta aegilega notalegt hja ykkur um jolin. Vissi ekki ad mamma thin vaeri svona fin klippikona, hefdi nu bedid hana um ad taka i skaerin i november. Annars bid eg ad heilsa hedan fra Frakklandi og vona ad thid hafid thad gott.
Komið þið sæl og blessuð, flottar myndir af ykkur. Hlakka til að sjá ykkur eftir nokkra daga, Elva Dögg er orðin mjög spennt að fara til danmerkur og hitta ykkur öll, síðan er skoðuð á hverjum degi og alls ekki alltaf skrifað í gestabókina. kveðja frá okkur á klakanum
Hæ elsku Katrín og fjölskylda.
Vá hvað mér brá þegar ég skoðaði myndirnar en sonurinn er orðin svo stór og fullorðinslegur, ekki furða þó þú hafir fengið tár þegar hann varð 1 árs gamall. Ég sá hann ekki neitt núna þegar þið komuð og svo þegar ég skoða myndirnar þá finnst mér ég hafa misst af einhverju en ég skal sko hitta prinsinn þegar þið flytjið hiem í sumar. Hlakka bara til
Knús til ykkar kæra fjölskylda.
Jóhanna Hauksd
p.s. ohhh Katrín það var svo gaman að hitta þig þegar þú komst síðast til mín, hlakka til þess aftur.
Flottar allar myndirnar af ykkur öllum, þið eruð yndisleg. knús til ykkar. Hafdís, Viddi og strákarnir 3.