

Sikke en fin hjemmeside den lille charmetrold har :) Håber alt godt for jer i fremtiden..
mvh. Camilla og Esther
hæ Daníel Friðrik
Ég hlakka til að sjá þig eftir nokkra daga. Kveðja E.D.I
Hmm þetta fyrra kvitt okkar var frekar skrítið en við ætluðum bara að minna ykkur á að það er bara mánuður eftir!!!!!!!
Hlökkum svaka mikið til að sjá ykkur.
Kveðja við öll
Hæ Daníel Friðrik og allir hinir!
Mikið vildi ég að ég gæti verið hjá ykkur núna, en njóttu þess að láta ömmu og afa dekra við þig... hverja mínútu sem þau eru hjá þér:)
Kysstu alla frá mér - Kristín frænka.
Hæ sæti - mikið er gaman að skoða nýju myndirnar.. það hefur greinilega verið æðislegt í tívolíinu og allt þetta vatnssull maður!! Nú fer aldeilis að styttast að maður fái ykkur heim, mikið hlakka ég til, en væri alveg til í að koma fyrst til ykkar:)
Knús á alla línuna, K2.
Hæ hæ fjölskylda, þetta eru nú flottar myndir af ykkur í tívolíinu. Það er nú varla hægt að sjá hvort Daníel Friðrik eða Böggi skemmti sér betur við að sulla í vatninu, en þetta hefur örugglega verið mjög gaman það hefði ekki verið amalegt að vera þarna með ykkur.
kveðja Fanney og Ingibjörg Ásta:)
Svaka partý hefur þetta verið í tívolíinu og í dýragarðinum maður minn. Við þyrftum endilega að skella okkur einhvern tíman saman í svona. En hvað kom eiginlega fyrir hausinn á þér? Svaka kúla! Hlakka til að sjá ykkur í sumar.
Kveðja Viktor og foreldrarnir
hæ Daníel :) við vorum að skoða síðuna þína !
Þú verður endileg að íta á eftir mömmu þinni og pabba að kíkja í heimsókn til okkar í sønderborg áður en þið farið til íslands :)
Kv Hafdís Ragna og Prinsessan
Hæ snúlli... bara aðeins að kíkja við hjá ykkur! Það er orðið svo langt síðan maður hefur frétt af ykkur og þá er gott að kíkja á síðuna. Hlakka svo mikið til að fá ykkur heim í sumar, þó að við verðum ekki á sama landshlutanum!!
Heyrumst vonandi fljótlega, knús á alla - K2.
Sæl Fjölskylda, það er munur það eru alltaf jólin hjá ykkur og prinsinn 1 árs, en maður sér nú allavegana á myndunum að hann stækkar og brallar margt þó alltaf séu jólin í vefdagbókinni. Smá svona fréttir bara fyrir Bögga, það var allt hvítt á egilsstöðum í gær en sól og blíða á fáskrúðsfirði. Kveðja F.B.
Sæll flotti maður! Púff það er ein mynd þarna á páskadag þar sem þú ert alveg sláandi líkur honum pabba þínum, ekki það að það sé eitthvað verra. Flottir þið félagarnir að skála í páskaeggjum. Hlakka til að fá ykkur heim!!!!!!! Það verður gaman að hafa mömmu þína á næsta borði við sig næsta vetur. Óskaðu henni til lukku með það frá okkur hér.
Kveðja Birna og kallarnir
Halló sæta fjölskylda!
Gaman að kíkja inn á síðuna ykkar. Var að reyna að forvitnast hvenær þið flyttuð á klakann.
Sendi smá meil á ykkur.
kv frá Nesk
Auður og Daði
HÆ hæ! Alltaf gaman að tékka á fréttum en mér sýnist eitthvað lítið hafa gerst frá því um jólin ;) Annars vildi ég bara kvitta fyrir mig og vona að þið hafið það gott í Danska :) Kveðja, Tinna.
Sæll frændi;) Takk kærlega fyrir afmæliskveðjuna;) Mér þykir vænt um að þið hafið munað eftir deginum;)
Ég hlakka svo til að sjá ykkur í sumar! Hafið það sem allra best! :o)
Þín frænka, Gulla;*
Vá vá!! fullt af nýjum myndum, þú ert nú meiri rúsínan!
Gaman að sjá hvað þú stækkar, hlökkum til að fá ykkur heim.
Annars er allt gott að frétta af okkur en við erum reyndar búin að vera lasin frá því í seinustu viku, Sandra með hlaupabólu og Högni kvefaður með eyrnabólgu en við erum að verða góð og eins gott því að við erum að fara út í Orlando í dag í 35 stiga hita...ekki slæmt, sumarið er ekki alveg komið hér eins og hjá ykkur en kannski getum við tekum smá sól með okkur til baka.
Hafið það gott, kveðjur úr hjallanum
Meiri töffarinn og tekur þig vel út á myndunum. Verklaginn með hjólbururnar og efni í afbragðs smið miðað við myndbandið.
Kveðja
Gummi og Katrín
Blessaður sætasti
Þú ert svakalega flottur strákur. Ég held að þið Almar væruð nú glæsilegir saman, báðir miklir prílarar og flottastir. Það styttist nú í að þið komið á Íslandið okkar. Þar er voða gott að vera, sérstaklega þar sem ömmur og afar eru líka og þeir geta knúsað mann endalaust. Hafið það sem allra best og gangi ykkur vel á næstu mánuðum.
kv. Karen og co.
Sæl kæra fjölskylda,
Gaman að sjá myndir og frétta aðeins af ykkur. Bestu hamingju- óskir með brúðkaupið og skýrnina í fyrra. Daníel Friðrik þú ert "flottur" strákur. Af okkur er allt gott að frétta, ætlum að koma í heimsókn til Danmerkur í sumar.
Bestu kveðjur til ykkar,
Gugga og Viðar (áður Sonderborg)
Halló flotti strákur!
Gaman að skoða af þér myndirnar, þú ert orðinn svo duglegur, það verður nú meira fjörið þegar allur hópurinn hittist vonandi í sumar!! Alma Rún er aðeins farin að æfa sig með hjóðin í bílunum, hún vonast eftir því að getað farið í bíló með þér :) skilaðu kveðju til foreldra þinna og njóttu sumarsins í DK.
Kveðja Imba og Alma Rún
Hæ hæ kæra fjölskylda, já og gaman að heyra aðeins af ykkur, vissi ekki af þessari síðu fyrr en núna :( en já við þurfum endilega að hittast áður en þið farið á klakann, verðum í bandi með það hafiði það gott og allt það kveðja úr sönderborg Dagga
Hæ hæ!
Hrikalega er orðið langt síðan ég kíkti hér við síðast. Fullt af flottum myndum af flottum strák fyrir mig að skoða.
Þið braggist greinilega vel í Odense. Það væri nú gaman að sjá ykkur áður en þið farið endanlega á klakann aftur.
Kær kveðja frá okkur hérna í Sønderborginni, Begga & co.
Má ég leika með þér einhvern tíma með hjólbörurnar þínar flottu?
Hæ Daníel Friðrik.
Þú ert nú búin að stækkar mikið, og þú er nú alltaf jafn sætur. Mér hlakkar alveg rosalega mikið til að koma til þín í sumar og vera hjá þér í 10.daga, það verður sko stuð hjá okkur.
Kv. Ingibjörg Ásta
Hæ sæti.. gaman að kíkja á nýjustu myndirnar. Þú ert nú orðin svo mannalegur! Mikið er ég glöð að þið eruð að koma heim eftir nákvæmlega 3 mánuði... þetta er alveg að gerast! Við kíktum aðeins á myndbandið þar sem þú varst í hláturskastinu, jeminn, það er SVO fyndið... við hlógum og hlógum..:)
Knús úr Firðinum, Kristin og co.
Altaf jafn gaman að kíkja á þig litli prins. Greinilega gaman í Póllandi. Kíkið endilega á nýju síðuna okkar.
Katrín mín til hamingju með afmælið þitt.
Kv Svava og co
Elsku Daníel Friðrik ofurtöffari og foreldrur!
Rosalega er gaman að sjá nýjar myndir af þér kallinn minn, og nýja klippingin er alveg súper. Ég sakna þó flottu slöngulokkanna að aftan. Elsku Katrín mín til hamingju með árin 25!!!! Vona að dagurinn hafi verið ljúfur. En ég sá á síðu sonar míns að þú ert eitthvað að spá í að heyra í mér á skypinu. Við þurfum einmitt að fara að heyrast. Kannski endar bara með því að við mælum okkur mót!!!! Ánnars fer ég nú bara að hringja í ykkur. Sakna ykkar, er farin að æfa rækjusalatið... það verður að vera perfect!!! Knús og kossar
Birna og kallarnir
Sæl öll sömul, það er nú gaman að fá að sjá nýjar myndir hér inn á síðunni hjá þér Daníel Friðrik, það er ekki hægt að sjá annað en að það hafi verið gaman í ferðalaginu hjá ykkur.kveðja úr sveitinni
Sæll litli fallegi prins*
Gaman að skoða myndirnar af þér:) Þú ert alltaf að stækka =) Ég hlakka svo til að sjá ykkur! Ég vona að það verði sem allra fyrst :)
Skilaðu kveðju til Mömmu og Pabba frá mér :o)
1000 kossar og knús.. Þín Gulla frænka :)
Hæ elsku frændi - mikið hefur nú verið gaman hjá ykkur í Póllandi, og þú svona stilltur í ferðalaginu...! Svo ertu nú ekkert smá flottur með nýju klippinguna - bara krútt!!
Knús frá Fáskrúðsfirði, Kristín, Kristey og Natalía.