

Halló litli prins! Loksins fær maður að sjá nýrri myndir af þér. Þú ert nú naumast myndarlegur. Vona að þið hafið það voða voða gott á nýja heimilinu, svolítið stærra en Sönderborgin. Vonandi fer maður svo að heyra hljóðið í ykkur fljótlega.
Hæ hæ litli snáði!!! Til hamingju með flutninginn og gaman að heyra að allt gengur vel :) Æðislegar myndir og hlakka til að sjá fleiri af þér :) Knús til þín, mömmu og pabba og hafið það rosa gott!!
Hæ hæ litla fjölskylda
Það er nú gott að það sjá myndirnar en ég er nú ekki alveg nógu og sátt með þessar myndir því að myndin af mér sem ég er sofandi átti bara að vera svo persónulegt en ekki er það nú NEI...
En ég vona bara að ykkur líki vel á nýja staðnum.
Bið að heilsa bæbæ
Kossar og knús
Ingibjörg Ásta frænka.
Hæ elsku dúllurnar mínar - frábært að sjá nýju myndirnar:) Vona að þið farið að fá síma og nettenginu... þið eruð algjörlega sambandslaus. Vona að maður fái að sjá ykkur sem allra fyrst. Hafið það gott á nýja staðnum og Katrín... nú er bara að fara að bretta upp ermarnar og byrja á xxxxx:=)
Knús til ykkar allra frá okkur hérna á Völlunum.
Hæ fjölskylda og gaman að sjá myndir af prinsinum, hlakka til að sjá fleiri, hafið það sem allra best. Bestu kveðjur frá öllum í Mýrinni.
Takk fyrir allar fínu myndirnar, þær eru virkilega fínar. Innilega til hamingju með nýja heimilið, við eigum vonandi eftir að heimsækja ykkur þangað. Þið kyssið prinsinn frá okkur, kær kveðja Elín, Valli, Natalía og Kristey.
Halló litli snúður!!
Nú held ég að hún mamma þín ætti nú að fara að komast að í tölvunni til að setja inn myndir af þér, þorrblótið búið og allt. Það var bara frábært að sjá þig njóta þess að sofa á fyrsta þorrblótinu þínu, svo mikill engill.
Kær kveðja frá Sønderborg, Begga
Hæ hæ... kíkti í smá heimsókn... hafið það gott á nýja staðnum og svo sjáumst við nú kannski í sumar!
kv. Auður
Væri nú gaman af fara að sjá nýjar myndir af litla prinsinum :) þarf maður kannski bara að koma til Danmerkur að skoða hann? ;)
Kveðja Helga
Til hamingju :). Ég er á leiðinni til Danmerkur í sumar, vonandi get ég hitt á ykkur. Knús, Lísa
Sæll elsku karlinn minn, mikið ert sætur og nú vil ég fara að sjá nýrri myndir af þér svo maður geti séð hvað þú hefur stækkað.
Knús til mömmu og pabba.
Bara að kvitta fyrir heimsókninni, varð að kíkja aðeins við ;) Gangi ykkur allt í haginn, maður sér ykkur von bráðar hér á nafla alheimsins.
Hæ hæ Katrín, Böggi og Daníel! Þetta eru fínar myndir, hann er algjör dúlla. Vona að þið hafi það sem allra best úti. knús og kossar kv.aldís
p.s verðið dugleg að sitja inn myndir..
Maður er alltaf að vonast til að það séu komnar nýjar myndir :) Bið að heilsa í bæinn!
komið öll sæl og til hamingju með nýja heimilið vona allt gangi vel hjá ykkur það gerir það allavega hjá okkur hér. Takk fyrir sendinguna hún Alma Rún er voða fín í gallanum. Kveðja Imba
Hæ hæ þið öll.
Sá að þið völduð svona líka fínt nafn á strákinn, grunar að D-ið sé komið frá mér, er það ekki annars??? hehe
Annars vildi ég bara segja ykkur að strákurinn er alveg bráðmyndalegur og gott efni með ykkar hæfileika í genunum. Vona bara að þið hafið það gott og bið að heilsa ykkur.
kveðja,
Dabbi frændi.......:)
Hæ öll. Nú væri gaman að sjá myndir af litla kút... kvwðja frá Fáskrúðsfirði
Sæl öll til hamingju með nýja heimilið. Vonandi fer að vera tími til að setja inn nýjar myndir. Ég og Elva Dögg kíkjum reglulega inn á síðuna til að sjá þig, ég get ekki betur skilið en hún sakni þín Daníel Friðrik. Jæja bið að heilsa Fanney
Hæ Daníel Friðrik!
Það eru bara allir að biðja um nýjar myndir, já fyrst við getum ekki hitt þig á Íslandi þá pöntum við bara myndir og hlökkum til að sjá þær því þú ert svo yndislegur! :) Kveðja frá Tinnu
Hæ litli kútur eiga ekki að fara að koma myndar af okkur:D en ég veit að það er mikið að gera hjá ykkur núna að vera að flytja og svona en samt mamma þín verðru að gefa sér smá tíma ´´i að setja myndir inn:D En ég biið bara að heilsa og gangi ykkur vel
að flytja til Odense á morgun.... Mér er byrjað að hlakka til að fá ykkur heim í sumar.:D:D
Ingibjörg Ásta!
Halló, halló litli frændi... nú skaltu biðja mömmu þína og pabba að fara að skella nýjum myndum hér inn... annars veit ég að það er nóg að gera hjá þeim að pakka niður í kassa! Héðan er allt gott að frétta, maður er rétt að jafna sig eftir allan snjóinn - algjörlega komin úr allri æfingu:) Knús til ykkar allra - gangi ykkur vel að flytja um helgina - hlakka til að heimsækja ykkur á nýja staðinn... Kristín, Ingeborg og Arnar.
Halló litla fjölskylda! Fara ekki að koma inn jólamyndir? Langar að fara sjá hvað kúturinn er búinn að stækka. Gangi ykkur annars vel í pökkun og flutningnum og hlakka til að sjá ykkur á nýja staðnum, hvenær sem það verður nú....
Sæll og blessaður Daníel Friðrik! Ég varð nú að kvitta fyrir snuðrinu á síðunni þinni en ég þekki mömmu þína og pabba frá því í "gamla daga" þegar við mamma þín vorum saman í ME! Þú ert ótrúlega stór og myndarlegur prins og ég á án efa eftir að snuðra meira hér eftir ;) Bið kærlega að heilsa í bæinn og vonandi hafið þið það sem allra, allra best!!
Kveðja frá Akureyri,
Auður
Gleðilegt nýtt ár öllsömul og takk fyrir það gamla! :) Vonandi sér maður þig á nýja árinu kútur litli, þú ert svo yndislegur!
Kveðja frá aKureyri
Gleðilegt nýtt ár sæti strákur!!!
Hlakka til að sjá nýjar myndir af þér ;o)
Bið ofsa vel að heilsa mömmu og pabba
Kærar kveðjur frá Eskifirði
Sigga Rósa
Sæl Daníel Friðrik og foreldrar. Þurfti aðeins að kíkja á þig því ég sakna ykkar mikið. það er nú gott að geta farið á síðuna þína til að fylgjast með ykkur. Vonandi gengur vel fyrir ykkur að finna aðra íbúð. Kveðja frá steinholti
Nýjar myndir?
Halló halló!!!
Nú hlýtur að koma að því að maður kíki við hjá ykkur, jólin búin og svona.
Kv. Begga
gleðilegt nýtt ár vonum innilega að árið verði yndislegt fyrir ykkur
hlökkum til að sja ykkur. þú ert ekkert smá sætur litli minn
kv. jona og þórhallur óskar
Elsku Katrín, Böggi og Daníel Friðrik.
Við viljum byrja á að óska ykkur gleðilegs árs og vonandi verður það okkur öllum gott. Svo ég komi mér svo beint að efninu þá bíðum við spennt eftir nýjum myndum af frænda,skilirðu?
Þær systur skilja ekkert í því að við getum ekki skroppið út til ykkar og kíkt á hann! En það verður vonandi fyrr en seinna. Hafið það sem best. Elín, Valli, Natalía og Kristey.