

Langsamlega svalasta myndin af svartklæddu hjónunum úti að labba með svarta vagninn. Þið eru óvenjulega töff hjón!!!!
Sjáumst á eftir og takk enn og aftur fyrir...
Love,
Þóra
Sælir bræður. Nú vill frúin í Mosó fara að skoða nýjar myndir af ykkur!! Viljið þið biðja móður ykkar um að setja inn myndir, finnst svo gaman að skoða myndir af ykkur sætu bræður :)
(engin pressa samt) ;)
Blessaðir,
langaði bara að segja ykkur að þið eruð laaaaaaaaang skemmtilegustu frændur í heimi.
Pís,
Baldvin Snær
Hæ Hæ krúttin mín vá ég ætlaði ekki að trúa því þegar ég var að skoða myndirnar hvað þeir hafa stækkað og Egill Kári bara orðinn algjör gaur!!!! þeir verða nú að fara að hittast nafnarnir sem fyrst, erum búnar að vera alltof lélegar að hittast með krílin!!! rosa skemmtilegar myndir
Knús á alla í fannafoldinni
Tóta
nú verða amma og afi komin heim á morgun og hlakka gífurlega til þess að hitta strákana sína, koss og knús til ykkar allra
kveðja
Amma og afi logafold
Þið eruð svo mikil dúllufjölskylda að það er ekki eðlilegt.. alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af ykkur. Líka mömmu og pabba :)
Sammála mömmslunni með hittinginn um daginn, mig hlakkar strax til næsta.
Knús
Hæ elsku Arna -
Mikið var gaman að fá lykilorðið hjá þér. Ég er búin að sitja og skoða allar myndirnar á síðunni og þetta eru þvílíkt myndarlegir strákar sem þú átt; þú getur aldeilis verið stolt af þeim. Svo eru þeir ekkert smá líkir - greinilega steyptir í sama mót! :o)
Ég á eftir að kíkja inn á síðuna ykkar reglulega. Hafið það alltaf sem allra best!
Bestu kveðjur frá Svíþjóð,
Anna Ýr og fjölskylda
Hæ hæ Þökkum fyrir kveðjuna frá ykkur. Ekkert smá sætir stákar sem þið eigið, og ótrúlega líkir maður. Það væri bara gaman að láta verða að því að hittast. Ef þið eigið leið yfir heiðina þá er alltaf heitt á könnunni hér í sveitinni.Kv Steini Bryndis og drengirnir.
Hæhæ - gaman að skoða allar myndirnar af sætu strákunum ykkar og til hamingju með flotta húsið! Við erum greinilega í sama gír og þið með sjóræningjaafmæli og allan strákapakkann :)
Bestu kveðjur frá Kaupmannahöfn,
Hildur, Mummi, Daníel & Kári
Elsku frændur,
bara að kvitta fyrir innlitið. Þið eruð alltaf jafn stjarnfræðilega skemmtilegir báðir tveir.
Knús,
Baldvin Snær - sem er orðinn 4 mánaða gamall!!!!
Hæ elsku Arna og takk kærlega fyrir síðast, það var svo gaman að hitta ykkur og hlakka mikið til næsta hittings :) Alltaf gaman að skoða myndirnar af ykkur krúttlega fjölskylda og innilega til hamingju með alla september afmælisstrákana :)
Bestu kveðjur úr Mosó,
HK
Pabbi var að njósna um ykkur! Langaði bara að láta ykkur vita!
Kv,
Bræðurnir Ormson
Hæ, sætu bræður!!! Bara að kvitta fyrir innlitið við nefnilega steingleymdum því um daginn ;)
Kveðja úr Selvaðinu
Gaman að skoða síðuna ykkar, myndarlegir bræður :-)
Kveðja,
Yrsa og Æsa
Afi sendir kveðju til strákanna sinna frá London,
hlökkum til að hitta þá aftur
kveðja frá afa og ömmu
Hæ bara að kvitta fyrir innlitið elskurnar. Alltaf sami myndarskapurinn á vélinni. Kyss kyss
Signý sjúklingurinn í Berjarimanum.
Hæ öll. Bara að kvitta fyrir innlitið.
Kveðja frá Mývó
amma er bara að kíkja á strákana sína, alltaf gaman að skoða myndir af þeim
kveðja
Amma
Hæ frændur,
bara að kvitta fyrir innlitið. Mamma þykist ætla að vera skipulagðari þessa vikuna og vera dugleg að koma í heimsókn....
Kveðja,
Baldvin Snær
Hello bara innlitskvitt hérnamegin, annars bíð ég spennt eftir afmælismyndunum ég veit að það var tekin ein af mér.
Takk fyrir flotta afmælisveislu:) Kveðja Helga, Gulli og nýliðinn
Halló frændur,
langaði bara að kasta á ykkur kveðju og segja ykkur hvað þið eruð frábærir.
Knús,
Baldvin Snær
Hæ, sætu bræður. Til hamingju með nýja frændan, hann er svaka krúttubolla!!!
Og takk fyrir samveruna á laugardaginn
kv. frá pæjunum í selvaðinu
Innilega til hamingju með 1 árs afmæli Egill Kári!! Hvað gerðir þú svo í tilefni dagsins??
Kveðja,
Selvaðsliðið
Elsku Egill Kári,
Innilega til hamingju með fyrsta afmælið þitt:) Megi gæfan fylgja þér:) Kveðja frá öllum í Baughúsum.