Þórunn Elísa og Heiða Björk Sævarsdætur
Þórunn Elísa og Heiða Björk Sævarsdætur
 
 
 

Fæðingarsagan

Búið var að ákveða að ég myndi ekki ganga frammyfir settan dag. Daman var orðin svo stór og legbotninn kominn í 41-42 á viku 39 svo ákveðið var að ég myndi leggjast inn á miðvikudagskvöldið 8.des. á miðnætti fæ ég svo fyrstu stílana, byrjaði strax að fá frekar óreglulega samdrætti en náði að sofna. vaknaði svo kl 4 og fór að pissa en þá var eiginlega bara ekki aftur snúið, legvatnið fór að leka :D úff hvað ég var fegin að vatnið fór sjálft en að það þyrfti ekki að sprengja belginn. ég var svo sett í monitor þegar vatnið fór og þá byrjuðu reglulegir verkir og frekar harðir! ég fékk verkjalyf, prufaði nálastungu, heita bakstra og baðið. allt þetta virkaði í smá tíma, verkirnir duttu aldrei niður, komu hver á fætur öðrum. þegar útvíkkunin var orðin 3-4 ákvað ég að fá mænudeyfingu, ætlaði sko ekki að fara leika einhvern súperman þarna. þegar ég fékk deyfinguna rauk útvíkkunin uppí 10 á smátíma, allir voru mjög hissa á því, því þetta gekk svo hægt í byrjun. Ég byrja að rembast en lítið gerist svo fæðingalæknir og allt hans lið er kallað til. Hún lá svo skakt í grindinni að það varð að taka hana með sogklukku og vá ég hélt ég dræpist. á meðan fæðingarlæknirinn togaði af öllu afli lá svæfingarlæknirinn á mér og ýtti.. en eftir góða stund kom þessi fallega dama í heimin, hún var strax tekin og örvuð því hjartslátturinn hafði dottið aðeins niður en hún fékk topp einkunn eftir smástund. ég fékk hana svo til mín og vá þetta var besta tilfinning í heimi, hún var svo fullkomin. hún var alveg eins og ég svona strx eftir fæðingu. ég var klippt svo það fór góður tími í að sauma mig saman, svo missti ég líter af blóði. þegar ég fór af fæðingarbekknum og yfir í hjólastól þá steinlá yfir mig. ranka svo við mér uppí rúmi þar sem nokkrar ljósur standa yfir mér. vá hvað þetta var óþægilegt!

Fæðingin tók samtals 7 og hálfan tíma. ljósan sem var með okkur heitir Helga Höskulds og er algjört gull.

 

Sævar stóð sig eins og hetja allan tíman og gerði allt sem hann gat gert og er ég endalaust stolt af honum :*

 

Daman var 4300gr og 52cm, höfuðmálið var 38cm... stór og guðdómlega falleg stelpa sem ber nafnið Þórunn Elísa :)