
Þegar ég var um tveggja ára aldurinn og mamma var að svæfa mig á kvöldin; við vorum búin að lesa og þá kyssir mamma mig og segir: Góða nótt, kallinn minn. Þá sagði ég til baka: Góða nótt, kallinn minn :)
Þetta sagði ég heillengi við mömmu mína þegar við vorum að fara að sofa
Þegar ég byrjaði að segja nafn systur minnar sagði ég alltaf Ví. Og þegar ég var að kalla á hana hljómaði út um allt; Vííí, vííí
Svo breyttist það í Víf og loks kom svo Líf
Hér er eitt gamalt gullkorn frá Líf; Við vorum stödd í Reykjavík og gistum í íbúð rétt hjá Glæsibæ, Líf var 4 ára. Það var búið að tala um að kíkja í Glæsibæ að versla eitthvað og svo þegar þangað var komið horfir skvísan í kringum sig og segir svo; Er þetta þessi GÆSIBLÆR
Okt. "05
Mér leiddist eitthvað, hafði ekkert að gera, og kom til mömmu og sagði: " Ohh, mamma, ég er svo LEIÐINLEGUR" Ég meinti auðvitað að ég væri svo leiður
Okt. "05
Nokkur skondin orð hjá mér þessa dagana: "Ég er svo fyrstur" = þyrstur
"Krókóbíll" = krókudíll
"Ég er bara aðeins að ganga til" = laga til
"Bara síðasta enn" = bara einu sinni enn 
Nóv. "05
"Mamma, á ég að segja þér hvaða dagur er í dag" Já, endilega, segir mamma.
"Það er sjöttándi júníardagur í dag" Segir Birgir Goði stoltur á svip 
Jan. "06
Birgir Goði er mikill aðdáandi íþróttaálfsins og segir alltaf: "Þríþróttarálfurinn"
Og hvað eru mörg R í því? 
Mars "06
Mamma, ég er svo sterkur, sjáðu hvað ég er kominn með stóra völva.
Apríl "06
Við vorum í Bónus að versla og allstaðar komin páskaegg auðvitað
Þá spyr Birgir mjög spenntur : "mamma, hvenær kemur þessi pásk eiginlega"
Maí "06
Birgir datt beint á magann og meiddi sig mikið, þegar hann hafði jafnað sig aðeins sagði hann: "Mamma, ég finn svo til í hjartanu mínu" Þá sagði mamma: "Dastu beint á hjartað? "Já, og það datt eitt bein úr mér"
Aldeilis meiðsli
Júní "06
Á leiðinn í kvennahlaupið mættum við ömmu Heiðrúnu og hún spyr Birgi Goða hvert
hann sé nú að fara? Þá svarar sá stutti:
"ég er að fara í HANDAHLAUPIÐ"
sept "06
Ég horfi yfir sjóinn og segi við ömmu Heiðrúnu; "Vá, amma, sérðu allt hunangið í sjónum!" Amma horfir og skilur ekkert hvað ég er að tala um. Svo fattar hún að ég er að horfa á ÞANGIÐ 
Einnig tala ég alltaf um "MARBLETTINA" í sjónum þegar ég horfi á marglyttur 
des "06
Mamma spurði Birgi hvað jólasveinarnir heita, hann var fljótur að svara því:
Bjúgnagámur, Pottaslefir, Gáttagefill, Stökkvagefill, Askaslefill og Giljagámur 
apríl "07
Birgir Goði er að læra að spila á spil og við erum mikið að spila Olsen Olsen og Veiðimann. Í staðinn fyrir að segja "Eigum við að spila Veiðimanninn?" segir hann alltaf "Eigum við að spila Hermanninn?" 
júní "07
Birgir var að leika fyrir utan með vinkonu sinni, kemur svo inn og spyr " Mamma, megum við hjóla hringinn í kringum landið?"
Var víst að meina í kringum hverfið