Ásdís Eva, Berglind Sara og Camilla Rán
 

Vefdagbók

 

bara ađ kíkja viđ

hæbb það eru komnar nýjar myndir frá spánarferðinni. Mamma á eftir að sortera þær og bæta öðrum myndum inn...það hlýtur að fara að koma hjá henni

Annars erum við systu búnar að vera veikar, Berglind fyrir helgi og ég núna á sunnudag og mánudag. En við erum komnar á ról og mættar í skóla og í Dórukot.

Ég get varla beðið lengur held hreinlega að ég sé spenntari fyrir fyrsta afmælisdegi Berglindar (á morgun!) en mínum eigin hehehe

Verð að fara heyrumst seinna, Ásdís Eva

16. October 2007 - 09:21

 
 

Komnar heim en Ásdís Eva farin aftur

Já það er aldeilis margt sem á daga okkar hefur drifið unanfarnar 3 vikur eða svo. Við mæðgurnar fórum sumsé til Spánar með Heiðu og strákunum hennar. Að var alveg hreint rosalega gaman (stundum svolítið erfitt að vera bara 2 með öll 4 börnin og ekki hægt að segja...æ talaðu við pabba þinn ) En þetta gekk allt saman ótrúlega vel. Við fórum til dæmis í vatnsrennibrautargarð (þar sem ég hélt að ég væri að upplifa síðasta dag lífs míns). Ásdís og Óli drógu mig með sér í rennibraut sem heitir Boomerang..og frá mínum bæjardyrum séð trúði ég því að ég myndi skjótast út úr brautinni og enda sem ein stór klessa á gangstéttinni fyrir neðan. heiða var líka svo almennileg að taka af mér vídeó þar sem ég er eiginlega að öskra úr mér lungun...en ég lifði þetta sem betur fer af og væri einginlega til í þetta aftur

Að auki fórum við í tívolí þar sem ég var líka dregin í flest adrenalín tækin...Heiða var yfirleitt fljót að bjóðast til að passa Berglindi þegar ásdís og óli báðu um þessi tæki

Svo fórum við í dýragarð þar sem ásdís hélt á krókódíl, var með slöngu um hálsinn, páfagauk á öxlinni og sat á fílsbaki...held að þetta hafi verið einn af skemmtilegustu dögunum í hennar huga.

Eftir að við komum heim var ásdís eva heima í viku en þá keyrði hún með Ásgeiri frænda sínum og pabba sínum í sveitina til ömmu möggu þar sem hún ætlar að vera í viku. Pabbi hennar kemur fyrr heim svo hún verður EIN í sveitnni og hlakkaði mikið til.

Á meðan þau eru fyrir norðan notuðum við Berglind tímann og fórum með ömmu, afa, Magna, Ericu, Kjartani Frey og Katarinu Ísey í fjallgöngu upp í Naustahvilft. Þannig að þetta er búin að vera ljómandi fín verslunarmannahelgi

Bless í bili, Harpa og co

6. August 2007 - 13:10

 
 

Klikkun!!!!!

Hæhæ

Hef ekki mikinn tíma til að spjalla en ég (harpa) og Heiða vinkona fengum klikkaða hugmynd í gær (10. júlí). Hún var sú fara karlalausar með börnin í 2 vikur til Spánar þann 12. júlí.  Um kvöldir fannst okkur þetta vera algert rugl og vorum að spá í sleppa þessu. Í morgun 11. júlí klukkan 10:30 bókuðum við svo far til Alicante kl. 6:30 þann 12 júlí. Þannig að þegar við sögðum krökkunum frá þessu þá voru24 tímar þangað til við verðum lent í Alicante. er þetta klikkun eða er þetta klikkun.!!!! Við gátum samt eiginlega ekki sleppt þessu þar sem okkur bauðst frítt húsnæði og við þurftum að borga u.þ.b. 50.00 kr. per fjölskyldu í flug...Þannig að læt ykkur vita þegar við komum heim

11. July 2007 - 15:34

 
 

Útskrift, ballettsýning, tennur ofl.

Hæ hæ allir

 Nú er nú aldeilis margt sem á daga okkar hefur drifið.

1. Miðvikudaginn 23. maí var Ásdís Eva útskrifuð úr leikskólanum sínum með við höfn. fékk afhenta mynd af öllum árgangnum og disk með myndum af starfinu í leikskólanum. Þetta var aldeilis skemmtilegt

2. Um hvítasunnuna fórum við í sumarbústað í Borgarfirðinu öll fjölskyldan og hittum Karen frænku (vá hvað Ásdís Eva saknaði hennar mikið), Addý, Magna, Ericu, Kjartan Frey (hans hefur líka verið mjög sárt saknað) og litlu keisaraynjuna sem er by the way alger rúsína. Þetta var alveg ljómandi góð helgi þó tæpt hafi staðið að við kæmumst vegna veikinda Berglindar Söru. Við teljum reyndar að hún hafi bara haft gott af þessu og það hafi verið hressandi að vera úti við í blíðunni í Borgarfirðinum.

3. mánudaginn 4. júní og þriðjudaginn 5 júní. var Ásdís að dansa æá ballettsýningu og stóð sig mjög vel

4. Þriðjudaginn 5 júní fór ég með Ásdísi Evu í vorskólann þar sem við hittum tilvonandi kennara og bekkjarfélaga. Í ljós kom að Margrét Halldórs verður kennarinn hennar og hin heilaga þrenning verður saman í bekk jiibbíí

5. þriðjudaginn 5. júni fannst svo þriðja tönn Berglindar Söru  hún er í efri góm og við sjáum ekki betur en þeim eigi eftir að fjölga nokkuð hratt á næstunni.

6. fimmtudaginn 7. júní fór Ásdís Eva í óvissu-útskrifarferð inn í skóg þar sem hún/þau hittu alvöru álfadís (eftir því sem ég kemst næst!!) Hún gaf öllum krökkunum óskasteina sem Ásdís Eva er mjög dugleg að prófa (hún er að vísu ekki alveg sannfærð um að hann virki... í það minnsta ekki nógu fljótt fyrir óþolnmóða unga skvísu)

7. síðast en ekki síst fór hún Berglind Sara svo af stað í dag 10. júní. og nú þykir ótrúlega skemmtilegt að mjaka sér að sjónvarpsskápnum og taka allt úr neðstu hillunni . Hún verður svo sennilega farin að standa upp í rúminu bráðlega, hún er í það minnsta mjög dugleg að æfa sig í því!!

 Jæja verð að fara, heyrumst!

Harpa og co

10. June 2007 - 18:21

 
 

Myndir og myndbönd!!!

Hef því miður engan tíma til að spjalla..vildi bara láta við af því að það eru komnar nýjar myndir og myndbönd (myndirnar eru undir heitinu páskar 2007 ofl)

 

Bæ í bili

Harpa og co

29. May 2007 - 12:46

 
 

uppfćrla á annars lítt uppfćrđri dagbók

Jæja það er víst heldur langt síðan ég skrifaði hér inn síðast

Það sem hefur helst á daga okkar drifið síðan þá er að

við fórum í helgarferð til Reykjavíkur...keyrandi sem er ekki uppáhaldsferðamáti Berglindar Söru. Höfðum það mjög gott þar vorum í íbúð í Ásholtinu, þvældumst hingað og þangað um borgina. Fóum í þrítugs afmæli Katrínar á laugardeginum sem var mjög gaman og ætluðum svo heim á sunnudegi en þegar við vorum komin upp í Mosfellsbæ var orðið ófært vestur svo við stoppuðum eina auka nótt og fórum svo heim á mánudegi.

Berglind Sara fékk fyrstu tönnina 3. apríl (og er enn bara með eina tönn!!!)

Við fórum í sveitina um páskana...Ásdís fílaði sig algerlega í botn og vildi helst gista í fjósinu hjá kúnum og kálfunum, þegar hún var ekki hjá þeim var hún úti að leika við Týru. Fyrir okkur hin voru páskarnir eitthvað á þessa leið: borða-sofa-borða-ganga frá-borða-sofa.....

Berglind Sara fór til læknis í síðustu viku því hún var svo til hætt að borða og drekka og ég var farin að hafa þó nokkrar áhyggjur af henni. Í ljós kom að hún er sennilega með sveppasýkingu í vélindanu, hún fékk lyf við því (sem henni finnst hræðilega vont) og er nú töluvert betri en við eigum að fara með hana u.þ.b. 2x í mánuði í vigtun til að fylgjast með því að hún sé að þyngjast eðlilega.

Nýjustu fréttirnar er svo þær að við Ásdís Eva lágum í leiðinda ælupest í gær og vorkenndum sjálfum okkur óendalega mikið, en við erum betri í dag þó matarlistin hjá Ásdísi Evu sé ekki mikil ennþá.

 Jæja þá eru helstu fréttirnar komnar á blað og ég lofa að REYNA að láta ekki líða svona langt að milli aftur

 Gleðilega júróvisjón-hátíð...áfram Eiki!!!

Harpa og co

10. May 2007 - 13:15

 
 

Tíminn líđur!!!

Ja hérna hvað tíminn líður hratt. Við erum að fara til Rvk á fimmtudag og við verðum sennilega varla komin heim þegar við leggjum af stað norðu (um páskana). Ég held við þurfum að fara að leggja fyrir til að eiga fyrir fermingu eldri dótturinnar ef þessi tími líður áfram eins hratt og hingað til

Það verður allavega gaman að skreppa suður og hitta fólkið þar..fara í þrítugsafmæli og fleira skemmtilegt

Annars er svo sem ekki mikið af okkur að frétta, þetta gengur bara allt sinn vanagang. Berlgind Sara er að vísu farin að velta sér af maganum yfir á bakið svo það verður kannski ekki svo langt þangað til hún fer á ferðina hehehe Þá held ég að Ásdís Eva megi passa sig og sitt dót all hressilega því ég hef á tilfinningunni að litla systir hennar eigi eftir að verða hálfgerður skriðdreki

Jæja það er besta að fara að undirbúa Reykjavíkurferð...set hér inn nokkrar nýjar myndir

Kv, Harpa og co

13. March 2007 - 10:45

 
 

Fyrsta skíđamótiđ

Góðan daginn öllsömul

Þetta var nú alveg ljómandi skemmtileg helgi. Ásdís Eva tók þátt í sínu fyrsta skíðamóti. Hún "keppti" í stórsvigi á laugardaginn í miður skemmtilegu veðri og svo í þrautabraut á sunnudaginn í ískaldri rjómablíðu. Þetta þótti frekar flott þar sem hún fékk verðlaunapening á laugardag og Glitnis-bakpoka með buffi, brúsa og spilum í á sunnudag. Ég held hreinlega að henni hafi fundist meira til töskunnar koma en peningsins hehehe. Ég er reyndar sátt við það þar sem hún er ekki nema 5 ára Svo má ég ekki gleyma að segja frá því að hún er farin að fara alveg sjálf í allar lyfturnar á svæðinu, hún er mjög svo stolt af því og kemur því hiklaust á framfæri sjálf 

Að öðru leyti er svosem ekki mikið af okkur að frétta en ég stefni að því að koma nokkrum myndum inn í dag

 Bless í bili, Harpa og co

26. February 2007 - 13:53

 
 

Fréttaskot

Hæhæ

Ég fæ víst seint verðlaun fyrir að vera dugleg að skrifa inn á þessa blessuðu síðu eða bæta við myndum Hér er allavega smá tilraun til að bæta það upp. Við Berglind Sara erum búinar að vera á ungbarnasunds námskeiði (hún er búin að fara í 8 skipti en á 2 eftir) Námskeiðið er í raun búið en hún var veik síðustu vikuna svo við megum bæta það upp á næsta námskeiði sem er nú þegar byrjað. Berglindi finnst þetta æðislegt hún brosir, hlær og skríkir allan tímann sem hún er í lauginni. Hún verður sennilega vatnakrabbi eins og systir hennar

Ásdís Eva er enn í ballett og á skíðaæfingum (þegar snjórinn er til staðar) og gengur alveg ágætlega en er með einhverja gelgjustæla um að vilja hætta í öllu...mamma hennar er bara svo erfið því hún segir að þegar búið sé að taka ákvörðun og borga æfingagjöldin verði maður að klára þetta Og þar sem daman er bara 5 þá ræð ég ennþá.

Annars er svosem ekki mikið af okkur að frétta nema að við stefnum að því að fara fjölskylduferð suður til Reykjavíkur í mars og verðum svo fyrir norðan um páskana.

Aldrei að vita nema mér takist að skrifa eins og einn pistil áður en ég fer suður!!!!! Nei djók ekki reikna með því allavega

 Allavega...chiao í bili reyni að koma fleiri myndum inn fljótlega,

Harpa

21. February 2007 - 00:20

 
 

Skírn og fleira

Þá er búið að skíra ungfrúnna og heitir hún Berglind Sara. Ég held að hún hljóti að vera ánægð með nafnið því hún er því sem næst búin að sofa síðan hún var skírð  Stóra systir átti í smá erfiðleikum með að muna þetta nafn því hún var búin að ákveða að litla systir ætti að heita Snæfríður (eins og stelpan í Stundinni okkar). Það var ekki fyrr en á mánudag að þetta var farið að síast inn hjá henni.

Annars er ósköp lítið að frétta af okkur, allir hressir og kátir og ég að reyna að vera skipulögð og byrja að undirbúa jólin (í huganum sko hehehe)

Kveðja í bili, Harpa

Ó já það eru að koma nýjar myndir úr skírninni og þess háttar

16. November 2006 - 12:12