

Já það er aldeilis margt sem á daga okkar hefur drifið unanfarnar 3 vikur eða svo. Við mæðgurnar fórum sumsé til Spánar með Heiðu og strákunum hennar. Að var alveg hreint rosalega gaman (stundum svolítið erfitt að vera bara 2 með öll 4 börnin og ekki hægt að segja...æ talaðu við pabba þinn
) En þetta gekk allt saman ótrúlega vel. Við fórum til dæmis í vatnsrennibrautargarð (þar sem ég hélt að ég væri að upplifa síðasta dag lífs míns). Ásdís og Óli drógu mig með sér í rennibraut sem heitir Boomerang..og frá mínum bæjardyrum séð trúði ég því að ég myndi skjótast út úr brautinni og enda sem ein stór klessa á gangstéttinni fyrir neðan
. heiða var líka svo almennileg að taka af mér vídeó þar sem ég er eiginlega að öskra úr mér lungun...en ég lifði þetta sem betur fer af og væri einginlega til í þetta aftur![]()
Að auki fórum við í tívolí þar sem ég var líka dregin í flest adrenalín tækin...Heiða var yfirleitt fljót að bjóðast til að passa Berglindi þegar ásdís og óli báðu um þessi tæki![]()
Svo fórum við í dýragarð þar sem ásdís hélt á krókódíl, var með slöngu um hálsinn, páfagauk á öxlinni og sat á fílsbaki...held að þetta hafi verið einn af skemmtilegustu dögunum í hennar huga.
Eftir að við komum heim var ásdís eva heima í viku en þá keyrði hún með Ásgeiri frænda sínum og pabba sínum í sveitina til ömmu möggu þar sem hún ætlar að vera í viku. Pabbi hennar kemur fyrr heim svo hún verður EIN í sveitnni og hlakkaði mikið til.
Á meðan þau eru fyrir norðan notuðum við Berglind tímann og fórum með ömmu, afa, Magna, Ericu, Kjartani Frey og Katarinu Ísey í fjallgöngu upp í Naustahvilft. Þannig að þetta er búin að vera ljómandi fín verslunarmannahelgi![]()
Bless í bili, Harpa og co
Skrifa athugasemd