Ásdís Eva, Berglind Sara og Camilla Rán
 

Útskrift, ballettsýning, tennur ofl.

Hæ hæ allir

 Nú er nú aldeilis margt sem á daga okkar hefur drifið.

1. Miðvikudaginn 23. maí var Ásdís Eva útskrifuð úr leikskólanum sínum með við höfn. fékk afhenta mynd af öllum árgangnum og disk með myndum af starfinu í leikskólanum. Þetta var aldeilis skemmtilegt

2. Um hvítasunnuna fórum við í sumarbústað í Borgarfirðinu öll fjölskyldan og hittum Karen frænku (vá hvað Ásdís Eva saknaði hennar mikið), Addý, Magna, Ericu, Kjartan Frey (hans hefur líka verið mjög sárt saknað) og litlu keisaraynjuna sem er by the way alger rúsína. Þetta var alveg ljómandi góð helgi þó tæpt hafi staðið að við kæmumst vegna veikinda Berglindar Söru. Við teljum reyndar að hún hafi bara haft gott af þessu og það hafi verið hressandi að vera úti við í blíðunni í Borgarfirðinum.

3. mánudaginn 4. júní og þriðjudaginn 5 júní. var Ásdís að dansa æá ballettsýningu og stóð sig mjög vel

4. Þriðjudaginn 5 júní fór ég með Ásdísi Evu í vorskólann þar sem við hittum tilvonandi kennara og bekkjarfélaga. Í ljós kom að Margrét Halldórs verður kennarinn hennar og hin heilaga þrenning verður saman í bekk jiibbíí

5. þriðjudaginn 5. júni fannst svo þriðja tönn Berglindar Söru  hún er í efri góm og við sjáum ekki betur en þeim eigi eftir að fjölga nokkuð hratt á næstunni.

6. fimmtudaginn 7. júní fór Ásdís Eva í óvissu-útskrifarferð inn í skóg þar sem hún/þau hittu alvöru álfadís (eftir því sem ég kemst næst!!) Hún gaf öllum krökkunum óskasteina sem Ásdís Eva er mjög dugleg að prófa (hún er að vísu ekki alveg sannfærð um að hann virki... í það minnsta ekki nógu fljótt fyrir óþolnmóða unga skvísu)

7. síðast en ekki síst fór hún Berglind Sara svo af stað í dag 10. júní. og nú þykir ótrúlega skemmtilegt að mjaka sér að sjónvarpsskápnum og taka allt úr neðstu hillunni . Hún verður svo sennilega farin að standa upp í rúminu bráðlega, hún er í það minnsta mjög dugleg að æfa sig í því!!

 Jæja verð að fara, heyrumst!

Harpa og co

10. June 2007 - 18:21



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti