

Jæja það er víst heldur langt síðan ég skrifaði hér inn síðast ![]()
Það sem hefur helst á daga okkar drifið síðan þá er að
við fórum í helgarferð til Reykjavíkur...keyrandi sem er ekki uppáhaldsferðamáti Berglindar Söru. Höfðum það mjög gott þar vorum í íbúð í Ásholtinu, þvældumst hingað og þangað um borgina. Fóum í þrítugs afmæli Katrínar á laugardeginum sem var mjög gaman og ætluðum svo heim á sunnudegi en þegar við vorum komin upp í Mosfellsbæ var orðið ófært vestur svo við stoppuðum eina auka nótt og fórum svo heim á mánudegi.
Berglind Sara fékk fyrstu tönnina 3. apríl (og er enn bara með eina tönn!!!) ![]()
Við fórum í sveitina um páskana...Ásdís fílaði sig algerlega í botn og vildi helst gista í fjósinu hjá kúnum og kálfunum, þegar hún var ekki hjá þeim var hún úti að leika við Týru. Fyrir okkur hin voru páskarnir eitthvað á þessa leið: borða-sofa-borða-ganga frá-borða-sofa.....
Berglind Sara fór til læknis í síðustu viku því hún var svo til hætt að borða og drekka og ég var farin að hafa þó nokkrar áhyggjur af henni. Í ljós kom að hún er sennilega með sveppasýkingu í vélindanu, hún fékk lyf við því (sem henni finnst hræðilega vont
) og er nú töluvert betri en við eigum að fara með hana u.þ.b. 2x í mánuði í vigtun til að fylgjast með því að hún sé að þyngjast eðlilega.
Nýjustu fréttirnar er svo þær að við Ásdís Eva lágum í leiðinda ælupest í gær og vorkenndum sjálfum okkur óendalega mikið, en við erum betri í dag þó matarlistin hjá Ásdísi Evu sé ekki mikil ennþá.
Jæja þá eru helstu fréttirnar komnar á blað og ég lofa að REYNA að láta ekki líða svona langt að milli aftur![]()
Gleðilega júróvisjón-hátíð...áfram Eiki!!!
Harpa og co
Skrifa athugasemd