

Ja hérna hvað tíminn líður hratt. Við erum að fara til Rvk á fimmtudag og við verðum sennilega varla komin heim þegar við leggjum af stað norðu (um páskana). Ég held við þurfum að fara að leggja fyrir til að eiga fyrir fermingu eldri dótturinnar ef þessi tími líður áfram eins hratt og hingað til ![]()
Það verður allavega gaman að skreppa suður og hitta fólkið þar..fara í þrítugsafmæli og fleira skemmtilegt ![]()
Annars er svo sem ekki mikið af okkur að frétta, þetta gengur bara allt sinn vanagang. Berlgind Sara er að vísu farin að velta sér af maganum yfir á bakið svo það verður kannski ekki svo langt þangað til hún fer á ferðina hehehe Þá held ég að Ásdís Eva megi passa sig og sitt dót all hressilega því ég hef á tilfinningunni að litla systir hennar eigi eftir að verða hálfgerður skriðdreki![]()
Jæja það er besta að fara að undirbúa Reykjavíkurferð...set hér inn nokkrar nýjar myndir
Kv, Harpa og co
Skrifa athugasemd