Ásdís Eva, Berglind Sara og Camilla Rán
 

Fyrsta skíðamótið

Góðan daginn öllsömul

Þetta var nú alveg ljómandi skemmtileg helgi. Ásdís Eva tók þátt í sínu fyrsta skíðamóti. Hún "keppti" í stórsvigi á laugardaginn í miður skemmtilegu veðri og svo í þrautabraut á sunnudaginn í ískaldri rjómablíðu. Þetta þótti frekar flott þar sem hún fékk verðlaunapening á laugardag og Glitnis-bakpoka með buffi, brúsa og spilum í á sunnudag. Ég held hreinlega að henni hafi fundist meira til töskunnar koma en peningsins hehehe. Ég er reyndar sátt við það þar sem hún er ekki nema 5 ára Svo má ég ekki gleyma að segja frá því að hún er farin að fara alveg sjálf í allar lyfturnar á svæðinu, hún er mjög svo stolt af því og kemur því hiklaust á framfæri sjálf 

Að öðru leyti er svosem ekki mikið af okkur að frétta en ég stefni að því að koma nokkrum myndum inn í dag

 Bless í bili, Harpa og co

26. February 2007 - 13:53



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti