

Hæhæ
Ég fæ víst seint verðlaun fyrir að vera dugleg að skrifa inn á þessa blessuðu síðu eða bæta við myndum
Hér er allavega smá tilraun til að bæta það upp. Við Berglind Sara erum búinar að vera á ungbarnasunds námskeiði (hún er búin að fara í 8 skipti en á 2 eftir) Námskeiðið er í raun búið en hún var veik síðustu vikuna svo við megum bæta það upp á næsta námskeiði sem er nú þegar byrjað. Berglindi finnst þetta æðislegt hún brosir, hlær og skríkir allan tímann sem hún er í lauginni. Hún verður sennilega vatnakrabbi eins og systir hennar![]()
Ásdís Eva er enn í ballett og á skíðaæfingum (þegar snjórinn er til staðar) og gengur alveg ágætlega en er með einhverja gelgjustæla um að vilja hætta í öllu...mamma hennar er bara svo erfið því hún segir að þegar búið sé að taka ákvörðun og borga æfingagjöldin verði maður að klára þetta
Og þar sem daman er bara 5 þá ræð ég ennþá.
Annars er svosem ekki mikið af okkur að frétta nema að við stefnum að því að fara fjölskylduferð suður til Reykjavíkur í mars og verðum svo fyrir norðan um páskana.
Aldrei að vita nema mér takist að skrifa eins og einn pistil áður en ég fer suður!!!!! Nei djók ekki reikna með því allavega![]()
Allavega...chiao í bili reyni að koma fleiri myndum inn fljótlega,
Harpa
Skrifa athugasemd