

Þá er búið að skíra ungfrúnna og heitir hún Berglind Sara. Ég held að hún hljóti að vera ánægð með nafnið því hún er því sem næst búin að sofa síðan hún var skírð
Stóra systir átti í smá erfiðleikum með að muna þetta nafn því hún var búin að ákveða að litla systir ætti að heita Snæfríður (eins og stelpan í Stundinni okkar). Það var ekki fyrr en á mánudag að þetta var farið að síast inn hjá henni.
Annars er ósköp lítið að frétta af okkur, allir hressir og kátir og ég að reyna að vera skipulögð og byrja að undirbúa jólin (í huganum sko hehehe)
Kveðja í bili, Harpa
Ó já það eru að koma nýjar myndir úr skírninni og þess háttar![]()
Hæ, gaman að fá að sjá myndirnar frá skírnin. Hún Berglind Sara er alveg rosalega sæt, alveg eins og stórasystir!