Alexander og Gunnar Orri
Alexander og Gunnar Orri
 
 
 
Velkomin á heimasíđuna okkar


Ég er frumburður mömmu og pabba og fæddist þann 21. júní 2001 á lengsta degi ársins kl. 05.06. Ég var 3560 grömm og 50 cm eða 14 merkur, með fullt af rauðbrúnu hári. Ég lét ekkert bíða eftir mér heldur mætti á svæðið degi á undan. Mömmu og pabba finnst ég auðvitað flottastur og sjá ekki sólina fyrir mér. Ég er rosalega duglegur strákur og er búin að æfa fiðlu í 4 ár og æfi einnig fótbolta með 6. flokki hjá Þrótti.



Litli bróðir minn fæddist þann 15. mars 2008 og var skírður Gunnar Orri. Hann var heldur stærri en ég eða 3895 grömm og 51,5 cm, eða 15 og hálf mörk. Hann var hinsvegar ólíkt mér ekki með mikið hár. Hann lét bíða eftir sér í 13 daga og voru allir orðnir mjög þreyttir á að bíða. En þegar hann ákvað að mæta á svæðið, þá tók það ekki langan tíma. Mamma fór uppá spítala rétt eftir miðnætti og hann fæddist kl. 03.39.

Þann 10. júní 2010 bættist í bræðrahópinn þegar við eignuðumst lítinn bróður sem nefndur var Einar Breki. Hann fæddist kl. 23.15 og var stærstur af okkur bræðrum eða rétt tæpar 17 merkur og 54 cm!. Nú erum við orðnir þrír bræðurnir og því nóg að gera hjá mömmu og pabba.