

Til hamingju með fögru prinsessuna. Hlakka til að fylgjast með ykkur. Kveðja, Erla (úr Engjaselinu :)
Elsku Anna og Abbi!!
Hjartanlega til hamingju með fallegu stelpuna ykkar. Hún er algjör prinsessa. Hlakka til að sjá hana. Njótið þess nú að vera orðin 3ja manna fjölskylda...það er nefnilega alveg æði :)
Kveðja,
Berglind og co
Bestu heilsur héðan frá Nýja Sjálandi og innilega til hamingju með littlu stelpuna.
Innilega til hamingju með þessa glæsilegu dömu. Vonandi hafið þið það sem best. Við biðjum að heilsa ykkur öllum
Elsku Abbi og Anna mín. Innilegar hamingjuóskir með litlu fallegu prinsessuna ykkar. Vá hún er æðigæði;-)
Það er frábært að hafa getað séð hana svona fljótt þið eruð svo dugleg. Elsku Anna mín þú ert alger hetja. Hlakka til að sjá ykkur ætla að reyna að koma með Kristófer til ykkar í júlí. 1000 kossar og knús
Tinna og Kristófer
Til hamingu með dóttirina.
Þetta er myndar stúlka enda ekki við öðru að búast miðað við foreldrana :) :)
hæ elsku Anna og Abbi
Innilega til hamingju með yndislega fallegu stelpuna ykkar, hún er bara fallegust. Njótið nú fyrstu dagana í botn með henni. Að vera foreldri er skemmtilegasta hlutverk í heim, ég komst að þvi fyrir 8 vikum síðan :o)
knús og kram
Gréta Rún og Adam Ernir
Til hamingju með litlu skvísuna - hún er ofsalega sæt :)
Heil og sæl
Hjartanlega til hamingju með litlu prinsessuna, mikið er hún nú sæt og fín! Kemur á afmælisdag mömmu, þjóðhátíðardegi Svía og smánardegi íslenskrar knattspyrnu. Hafið það sem allra allra best og njótið foreldrahlutverksins, börnin eru það besta! Guð geymi ykkur. Bestu kveðjur frá okkur.
Fyrir hönd fjarskyldra ættingja í Kópavogi og nágrenni óska ég ykkur innilega til hamingju med dúlluna. Maríus minn varð einmitt 7 ára þennan dag og því get ég fullyrt að þetta er mjög góður afmælisdagur (auðvelt fyrir ættingja að muna). Hann var einmitt kallaður Litli-Sven þegar hann fæddist og er ég mjög ánægð með að það hafi ekki fest við hann...
Þið báðuð um tillögur. Mér finnst dóttir ykkar ekki ólík frænku sinni í Ameríku nýfæddri, smá Emblusvipur á henni.
Ég (Tinna) er búin að skoða myndirnar margoft í dag og get ekki hætt að dást að litlu dúllunni. Hún er svaka sæt með falleg eskimóaaugu :). Við Jói vorum að enda við að skoða þær og lýst okkur vel á textann við myndirnar.. Hmm.. Ætli Abbapappi hafi skrifað hann?!
Kveðja
Tinna og Jói.
Innilega til hamingju með prinsessuna. Hún er æðisleg
Kveðja, Sigrún
Elsku Anna og Abbi!
Innilega til hamingju með prinsessuna, hún er algjör dúlla
kv Halla Björk
Hæ sæta prinsessa! Við heyrðum í Ástu áðan og hún sagði okkur að þú værir komin í heiminn og við urðum að fá að kíkja aðeins á þig því við sáum nú fínu bumbuna =)
Þú ert nú ekkert smá sæt og fín! Velkomin í heiminn og til hamingju með foreldrana sem þú valdir þér! =)
Knús frá Álaborg í Danaveldinu - Anna Sigga, Friðgeir & Ninja Tíbrá
Velkomin í heiminn litla prinsessa, vonandi náum við að sjá þig í alvörunni áður en að við höldum á klakann. Þú ert alveg yndislega falleg á myndunum.
Kærar kveðjur af ellefunni.
Hún er lík Eyrúnu svona í fyrstu tilraun
Innilega til lukku með skvísuna aftur. Var nú bara að sýna Ragnheiði síðuna en þá voru bara komnar inn myndir, þið eruð ekkert smá dugleg. Hún er algjör sjarmur og með þessar fínu bollukinnar en ég get ekki séð hverjum hún líkist, mér bara held ég:) Það kemur í ljós. Vona að þú sért að jafna þig Anna mín og hlökkum mikið til að hitta ykkur. Bjalla á þig úr sveitinni og æðislegt að vera búin að sjá myndir þar sem við komumst ekkert í tölvu næstu daga. Hafið það gott. Kv. Harpa, Helgi og Sölvi
OMG innilega til hamingju með prinsessuna (vissi það). Hún er ekkert smá falleg, bara 3 mánuðir akkurat á milli hennar og Sölva, verða pottþétt leikfélagar. Njótið þessa yndislega tíma sem er framundan hann er alveg frábær..
Innilegar hamingjuóskir með þessa litlu fallegu stelpu..hún er algjört æði.
Knús Tinna
Ó mæ good hún er nú bara algjört æði, svona líka gulllllfalleg. Það hlýtur að koma úr Pálsættinni!! Ekki satt Anna?! ;-)
Ég segi bara enn og aftur innilega til hamingju með hárprúðu og æðislegu prinsessuna ykkar.
Kv. Lilja og co
Jiii.... hún er gorgeus :o) ekkert smá sæt litla snúllan ykkar.
Ég er ekki að sjá hverjum hún líkist, en hún er samt mjög svipsterk skvísa.
Gangi ykkur sem allra best,
Jóhanna
Kæru foreldrar, innilega til hamingju með prinsessuna. Ég var nú alveg með þetta á hreinu, stelpa sko.
Sjáumst sem allra fyrst.
Talaði við Afa Urðó í gær og hann er að rifna úr gleði yfir að vera orðinn langafi.
Knús, Bizguta
Hún er alveg dásamleg- Algjör Ronja ;) og svo ákkúrat passleg. Mig langar bara svo mikið til að koma og kyssa ykkur og knúsa...
Gaf mér svo leyfi til að birta myndir á síðunni hjá Hsg
kv.montna vínkonan
Kæru foreldrar innilega til hamingju - hún er algert æði
Rósa og Anders
Hún er æðisleg, sit hér með tárin í augunum, ekki hægt að leggja svona dásemdir á svona ólétta konu.
Mér finnst hún samt bara ekkert "liten" löng og alveg passleg í þyngd.
Dásamleg bara!!
Innilega til hamingju með skvísuna!!
Tapaði ég þá bara 25 kr??
Hlakka til að sjá og heyra meira :D
Elsku Anna mín og Abbi.
Innilega til hamingju með stóru prinsessuna. Hlakka svo til að sjá mynd af dömunni með allt hárið : )
Vona að þið hafið það osssa gott og að þú náir að hvíla þig aðeins eftir átökin.
Knús og kossar til dömunnar og ykkar líka.
Kv. Lilja og co
ps. talvan var eitthvað að hrekkja mig þannig að það sendist of fljótt áðan....klaufi ég... ;-)