

Til hamingju með bestu múttuna þína Magnús Máni! :) Sjáumst svo um helgina á Garðskaga er það ekki? :)
Ji hann verður orðinn ekta beibí áður en ég sé hann! Ekkert lítið flottur strákurinn ;) Ég sá ykkur í skrúðgöngunni í gær.. reyndi að vinka ykkur en þið sáuð mig ekki haha þannig fólk hefur örugglega haldið að ég væri eitthvað klikk útí glugga að vinka öllum =D
Kkv,
Íris Lind
Hæhæ :) flottur strákur og fallegt nafn. Gangi ykkur vel. Gunnhildur og viktor Garri
Þetta eru frábærar myndir eins og alltaf hjá ykkur,það var gaman fyrir Elvu að vera hjá ykkur í nokkra daga og fá að passa Magnús.Ég var rosalega ánægð að fá ykkur í heimsókn á spítalann það stytti daginn mikið fyrir mig.
úff ég er bara farin að skammast mín, verð að fara að koma til ykkar og sjá sæta strákinn fljótlega. Myndirnar eru rosa skemmtilegar, hann er svo fínn á þeim öllum :) Sjáumst vonandi sem fyrst!!!
Hæ hæ allt of langt síðan síðast, erum alltaf á leiðinni annars er ég reyndar frekar rög að fara með bæði litlu í heimsóknir :) En já ætla samt að láta verða að því fyrr en síðar :))
Gaman að sjá allar myndirnar! Hann dafnar svo vel hann Magnús Máni algjör sjarmör! :) Mér finnst hann bara hafa stækkað síðan ég sá hann í fluttningunum :)
Sjáumst!
Sara Hrund & co.
Æðislegar nýju myndirnar og færslan! Svo gaman að heyra hvað hann er mikið yndi drengurinn rólegur og vær, pant fá svona eintak næst ;) Hann er yndislegur á myndunum og orðinn svo stór!! Þurfum að fara að kíkja í höllina ykkar :) Frábært hvað næturpössunin gekk vel!
Sælt veri fólkið..
Greinilega rosa fín nýja íbúðin, Til hamingju með hana.. Mjög skemmtilegar nýju myndirnar.. hann Magnús Máni er sko algjör sjarmör.. hann er allavega að heilla frænku sína uppúr skónum... hehe.. en hvað er að frétta af pakkanum..
Kv Helga afasystir..
Frábærar myndir sérstaklega af Magnúsi Mána í hókus pókus stólnum. Til hamingju með að vera flutt,þetta er frábær íbúð og mjög smart hjá ykkur.
er alltaf að kíkja og vonast eftir nýjum myndum ;)
Það er gaman að sjá nýjar myndir hann Magnús Máni er algjört krútt það er líka svo langt síðan við höfum séð hann.Það verður gaman þegar þið flytjið nær okkur þá er svo stutt að fara í heimsókn.
hæhæ vildum bara kvitta fyrir innlitið.. Magnús Máni þú ert algjör dúlla.. ;)
kveðja Dísa Bubbi og Svavar Þór
ég er mjög glöð að sjá nýjar myndir :) Var líka gaman að sjá hann live í dag, hann er svo rólegur og góður og auðvitað krúttsprengja :)
Það er frábært að sjá hvað þið eruð dugleg að setja inn myndir,við kíkjum daglega en erum ekki nógu dugleg að kvitta sorrý,það er gott að Guðmundur á nóg af dóti til að leika sér með þeir feðgar hafa öruglega gaman meðan mamman er í próflestri.
hæhæ litla sæta fjölskylda. Æðislegar myndir, hann er algjört gull;) en takk fyrir síðast, gaman að fá að sjá litla prinsinn, þrátt fyrir að hann svæfi allan tímann;) en ég kem svo oftar í heimsókn í haust þegar ég er flutt aftur til íslands...kveðja frá danmörku;)
Hæ, ég er löngu búin að skoða skírnarmyndirnar, átti bara eftir að kvitta, þær eru rosalega fínar :)
skuluð! hvaða orð er það! Þetta átti náttúrulega að vera: Ég er enn svekkt yfir því að þið ætlið að flytja úr borginni ;) Þar hafið þið það tvisvar sinnum hehe ;)
B.kv.
Enn & aftur til hamingju með fallega nafnið á prinsinum! Það fer honum ofsalega vel! :) Gangi þér vel í prófunum Kristjana & til lukku með íbúðina(ég er enn svekkt að þið skuluð ætla að flytja úr borginni!!!;))!
Sjáumst vonandi sem allra fyrst!
Knús á ykkur!
Sara Hrund & co.
var að skoða myndirnar af Magnúsi Mána úr skírninni það var gaman
Kvitt :) Var að skoða skírnamyndirnar, rosa flottar ;)
Takk fyrir okkur í gær. Ég spurði Hugrúnu áðan hvort að við hefðum verið að hitta litla krakka í gær og það fyrsta sem hún sagði var "kókó" sem þýðir kökur. Hún hefur semsagt ekki gleymt kræsingunum sem hún fékk í gær :D
Til hamingju aftur með nafnið, það er rosalega flott :)
Til hamingju með nafnið sæti.. bara flott nafn.. og glæsilegur dagur.. fyrsti sumardagurinn er bara flottastur.. :)..
kveðja Dísa bubbi og svavar Þór
Takk kærlega fyrir okkur í dag, við komum sko heim pakksödd og sæl :)
Innilega aftur til hamingju með fallega nafnið, okkur finnst það æði! :)
Elsku fjölskylda..
Til hamingju með daginn og gangi ykkur sem allra best í dag.. erum með ykkur í anda..
kær kveðja frá okkur í DK..
Æðislegar myndir! :) Hlakka til að sjá ykkur á fimmtudaginn og heyra nafnið :)
Flott myndbandið, hann hjalar og brosir eins og engill
Halló fallega fjölskylda
Vá hvað hann stækkar og dafnar mikið.. hann er líka breyst svolítið og sé svolítið rautt í hárinu hans.. yndislegt að skoða myndir af honum..
kveðja fjölskyldan í Óðinsvé..
hæhæ.. bara mesta krútt.. rosa flott myndbandið algjör dúlla. gaman að kíkja hérna inn á ykkur sæta fjölskylda. ;)
kveðja dísa Bubbi og Svavar Þór
Ekkert smá æðislegar myndir =) og myndbandið er bara geggjað ég var sko brosandi og hlægjandi allan tímann! Hann er sko bara flottastur litli kúturinn ykkar ;D