Aron Örn og Rakel Anna
 

Gullkorn

Aron Örn: "Pabbi, þegar þú varst lítill, þá voru ekki til símar!"

Pabbi: "uuu......."

( 21.05.2015. )

 

Mamma: "Það er ekki alltaf hægt að hafa uppáhaldsmatinn í matinn..."

Aron Örn: "Þú hefur ábyggilega alltaf fengið uppáhaldsmatinn þinn í matinn þegar þú varst lítil!"

Mamma: "Af hverju heldur þú það?"

Aron Örn: "Vegna þess að þú áttir heima hjá ömmu og afa og þau eru alltaf að dekra við mig, svo þau hljóta að hafa dekrað alltaf við þig líka!"

Aron að tuða yfir að honum þætti kvöldmaturinn ekki góður! ( 20.05.2015. )

 

Amma: "Ég kann ekki að hjóla á svona fínu hjóli"

Aron Örn: "Nú, heldur þú að þú þyrftir hjálpardekk?!"

Aron að sýna ömmu nýja hjólið sitt. ( 25.04.2015. )

 

Aron Örn við litlu systur sína: "Sko, þegar mamma verður amma, þá hættir hún að kreista bólur!"

Þar höfum við það! ( 28.11.2014. )

 

Aron Örn: "Mamma, í rauninni eru allir í heiminum krakkar."

Mamma: "Ha?"

Aron Örn: "Já sko, amma og afi eru krakkar mömmu sinnar og pabba, þú og pabbi eru krakkar ömmu og afa og ég og litla systir erum krakkarnir ykkar. Svo að allir eru krakkar einhvers!"

Heimspekilegar vangaveltur í gangi! ( 02.10.2014. )

 

Amma: "Nennir þú að hjálpa mér að leggja á borðið?"

Aron Örn: *dæs* "Æ amma, ég ætlaði nú bara að hafa það rólegt á meðan ég er í heimsókn!"

( 25.07.2014. )

 

Aron Örn: "Ég ætla sko að vera góður stóri bróðir og aldrei að rífast við litla barnið í bílnum".

Gott að muna þetta í framtíðinni! ( 10.03.2014. )

 

Aron Örn: "Karíus og Baktus eiga enga tannbursta, svo þeir hljóta að fá Karíust og Baktus í sínar tennur!"

Mamma: "En hvernig geta þeir farið í sýnar eigin tennur?"

Aron Örn: "Núh, Karíus fer bara í tennurnar hans Baktusar og svo fer Baktus í tennunar hans Karíusar!"

Þetta er ekkert flókið. ( 04.02.2014. )

 

Aron Örn: "OOOOOJJJJJ.... af hverju er klósettsetan opin??"

Vel uppalinn drengur hér á ferð! ( 17.12.2013. )

 

Aron Örn: "Hvenær eignumst við lítið barn?"

Mamma: "Nú veit ég ekki hvort og þá hvenær það verður."

Aron Örn: "Sko.. það er orðið ansi langt siðan ég bað um lítið barn og það er ekki ennþá komið!"

Óþolinmæði eftir litlu systkyni... ( 04.12.2013. )

 

Mamma: "Aron, nennir þú að hjálpa mér aðeins?"

Aron Örn: "Mamma ég get sko gert allt fyrir þig! ...nema kannski lyft húsinu, ég er ekki nógu sterkur í það"

( 28.11.2013. )

 

Aron Örn: "Amma.. finnst þér ekki skemmtilegt að hafa mig aleinan hjá þér svona lengi?"

Drengurinn búinn að vera í nokkra daga án foreldrana hjá ömmu og afa á Hellu. ( 30.10.2013. )

 

Mamma: ".....og svo er lifrin hérna...."

Aron Örn: "Já lifur, eins og að lifa! Það verða allir að hafa LIFur til að LIFa!"

Aron Örn var í miklum pælingum um líffærin og hvar þau væru staðsett, mamman reyndi sitt besta í að svara spurningum drengsins. ( 16.10.2013. )

 

Afi á Hellu. "Aron, þú mátt eiga þennan 500 kall."

Aron Örn: "Æh, notaðu hann bara upp í viðgerðina á bílnum!"

( 04.07.2013. )

 

Aron Örn: "Ekki vera hrædd mamma mín, ég er hérna hjá þér og passa þig".

Drengurinn tók stöðu karlmannsins á heimilinu mjög alvarlega í fjarveru pabbans í eina nótt. ( 18.05.2013. )

 

Aron Örn: "Mamma, ég get verið á hárinu... það er svo gott veður!"

( 13.05.2013. )

 

Aron Örn: "Ég er eitthvað slappur og held ég sé með hita, viltu ná í hitamælinn til að mæla eyrað mitt?"

Það reyndist vera rétt, Aron Örn var eitthvað slappur með hátt í 39 stiga hita og mamman ekki búin að taka eftir hitanum. ( 16.04.2013. )

 

 

Aron Örn: "Þetta var svo vont, að ég held að ég þurfi að vera heima í tvo daga á meðan þetta batnar!"

Drengurinn datt í leikskólanum og fékk skrámu á vörina, það mátti reyna að fá auka frídaga. ( 15.04.2013. )

 

Aron Örn: "ég gleymi aldrei hvað þú elskar mig endalaust mikið mamma".

( 22.02.2013. )

 

Aron Örn: "Þegar mömmum og pöbbum langar í lítið barn, þá þarf að byrja á að fá leiðbeiningar og fullt af legókubbum og svo setur maður alla kubbana saman og þá er komið lítið barn!"

Einn alveg með á hreinu hvaðan litlu börnin koma... ( 05.02.2013. )

 

Aron Örn: "Ég ætla ekki að borða saltkjöt og baunir á sprengidaginn."

Mamma: "Af hverju ekki?"

Aron Örn: "Því ég vil ekki springa!"

Einn sem hélt að maður myndi bókstaflega springa við borðhaldið á saltkjöti og baunum. ( 03.02.2013. )

 

Aron Örn: "OOOOJJJJJJJ, þessi er að reykja..... og hann HENTI ruslinu út um gluggann!!"

Aron Örn að horfa á ökumanninn í næsta bíl á rauðu ljósi. Við sem héldum að barnið vissi ekki einu sinni hvað reykingar eru. ( 07.01.2013. )

 

Amma: "Jæja, nú er kominn tími til að fara að sofa"

Aron Örn: "Sko, ef maður er óþekkur, þá fer maður bara fram".

Amman að svæfa stubbinn og hann ekki alveg tilbúinn að fara að sofa.

( 09.12.2012. )

 

Mamma og Aron Örn eru á leiðinni í bæinn frá Hellu. Amman hafði laumað m&m í poka handa drengnum og á miðri leið laumar mamman hendinni aftur í og spyr hvort hún megi fá smá m&m. Aron Örn flýtir sér að opna prins póló sem var líka ofan í pokanum hans og réttir mömmu sinni.

Mamma: "nei, mig langar í m&m, má ég fá svoleiðis?"

Aron Örn: "Ég gat bara ekki stoppað mig og m&mið er bara allt búið, en þú mátt fá bita af prins pólóinu".

Ekki er hann nískur þessi elska. :) ( 10.12.2012. )

 

 

Aron Örn: "Mamma, ef ég verð feitur, þá er ég orðinn gamall".

Mamma: "Ha? Af hverju segiru það?"

Aron Örn: "Pabbi segir að hann sé gamall og feitur!"

( 10.09.2012. )

 

Aron Örn: "Mamma, ef það kemur allt í einu gat á gólfið okkar, þá dettum við beint niður í húsið hjá fólkinu fyrir neðan okkur!"

Pæling dagsins hjá Aroni Erni. ( 07.06.2012. )

 

Aron Örn: "Mamma, það er til fugl sem heitir Aron Örn, alveg eins og ég og hann er risastór!"

Einhver hefur verið að segja drengnum að hann bæri sama nafn og fuglinn Örn. ( 23.05.2012. )

 

Aron Örn: "Mamma, við pabbi erum snillingar, við erum harðir!"

( 12.11.2011. )

 

Mamma: "Nei, hvaða hvaða, það er enn dimma úti"

Aron Örn: "Þá eiga allir krakkar að sofa lengur!"

Mamman var að draga gardínuna frá glugganum kl. 8:05. ( 25.10.2011. )

 

Aron: "Það er ekki til M&M, en þið megið fá sykur."

Aron var að kveðja frænkurnar út Kópavoginum og fannst þær hafa fengið eitthvað lítið og borða og vildi endilega gefa þeim eitthvað áður en þær færu. ( 05.10.2011. )

 

Aron: "Mamma, ertu búin að skrifa á vegginn??"

Mamma: "já, ég er að búa til tré"

Aron: "Gott hjá þér mamma"

Mamman er að búa til veggskraut að vegginn og þurfti því að nota blýant á vegginn. Drengurinn rak augun í verkið og fannst ansi undarlegt að mamma fengi að skrifa á vegginn en ekki hann. ( 30.09.2011. )

 

Aron: "Hvað ertu að hugsa maður, ertu klikkaður!"

Kári og Logi stóðu saman og voru eitthvað að dunda við hjólin heima hjá Kára þegar Aron labbaði að þeim. ( 09.08.2011. )

 

Mamma: "Viltu meiri jarðaber?"

Aron: "Bíddu mamma, ég er í símanum"

Stubburinn í miðjum leik með símann sinn :) ( 24.05.2011. )

 

"Pabbi, hengja skyrtuna inn í skáp, það er pláss þar!"

Drengurinn að siða pabba sinn til, en hann hengdi skyrtuna sína á stólbakið frammi í eldhúsi. ( 05.04.2011. )

 

"Mamma leika inni í herbergi að lestarteinum, pabbi leika með Dóa í bíló"

Pabbinn var nýkominn heim úr vinnunni og þá var víst ekki spennandi að leika lengur við mömmuna. Hún átti bara að leika sér inni í herbergi í staðinn. ( 04.04.2011. )

 

"Váááá.. þú ert fín mamma!"

Mamman var að máta nýja skyrtu og stubbinum finnst hún allavegana fín. Smile ( 29.03.2011. )

 

"Ekki syngja mamma, ég horfa á sjónvarpið!"

Mamman var að horfa á tónlistarmyndbönd á youtube og raulaði með. Sönghæfileikar mömmunnar pössuðu greinilega ekki með barnatímanum í sjónvarpinu.. ( 18.03.2011. )

 

"Pabbi, það eru dekk á brauðinu!"

Pabbinn var að borða Subway bát með svörtum ólífum.... ( 06.03.2011. )

 

"Mamma, nágrannar að byrja í sjónvarpinu!"

Drengurinn er sko vel uppalinn!  ( 21.02.2011. )

 

"Mamma loka glugganum, Dóa er kalt!"

Mamman var frammi í eldhúsi þegar stubburinn kom labbandi innan úr herberginu sínu og var honum greinilega eitthvað kalt! :) ( 21.02.2011. )

 

"Dói kíkja aðeins á facebook"

Hversu mikið er maður á facebook þegar þetta er með fyrstu hugsunum stubbsins þegar hann vaknar á morgnana? Stubburinn var semsagt nývaknaður og settist beint fyrir framan tölvuna. ( 12.01.2011. )

 

Aron Örn: "pabbi keyra mömmubíl hratt í leikskólann, löggan kom að stoppa!"

Pabbinn gaf aðeins í, í morgun og sagði við stubbinn að hann væri að keyra hratt. Stubburinn var síðan aðeins að krydda söguna fyrir mömmu sína þegar hún kom að sækja hann, þar sem hún var að segja honum um daginn að ef maður keyrði hratt þá kæmi löggan og stoppaði mann! {#emotions_dlg.smile}  ( 05.01.2011. )

 

Aron Örn: "Margrét, MARGRÉT....MAGGA!"

Mamman og Aron voru stödd á Hellunni og afinn var að kalla á mömmuna. Hún heyrði ekki í honum og Aron var ekki lengi veita afanum aðstoð við kallið! ( 30.11.2010. )

 

Mamman: "Hver er sætastur?"

Aron Örn: "Dói er krúttið hennar mömmu"

( 04.11.2010. )

 

Aron Örn: "Kisa með skott.. tígrisdýr með skott.. Dói hafa bossa!"

Aron nývaknaður að pæla í líkamspörtunum á böngsunum sínum. ( 25.08.2010. )