
Innilega til hamingju með nýju prinsessuna ykkar. Rosalega er hún falleg með þetta mikla og dökka hár! Ragna Hlín hefur stækkað mikið síðan ég kíkti hér inn síðast. Væri gaman að hittast við tækifæri.
Kv. Dagný Ósk og 36vikna bumbubúi
Váááá flott hjá ykkur.....innilega til HAMINGJU :-)
Ragna Hlín ekkert smá krútt...hefur stækkað og fullorðnast svo mikið hahaha
og nýja lillan nottla snilld....svaka hár og bollukinnar....YNDISLEG :-)) gangi ykkur rosa vel.... knús RP, HP og PH.
Innilega til hamingju með sætu drottninguna.
Gaman að sjá myndir.
kveðja úr Grænuhlíðinni.
Innilegar hamingjuóskir. Gaman að sjá myndir.
Snilld að fæða heima í stofu.
kv Hilda
Vá, gaman að sjá myndir. Ég fékk bara kökk í hálsinn og tár í augun, þetta er svo fallegt allt saman :-) Litla systir er svo falleg, eins og stóra systir. Hlakka mikið til að sjá ykkur, bestu kveðjur frá Pétri og Ingva Daníel, knúserí
Til hamingju með prinsessuna! Gaman að sjá myndirnar og hlökkum til að hitta hana :-)
bestu kveðjur,
Inga, Jói og Tómas Már
Elsku Hafdís og Gummi. Innilega til hamingju með flottu litlu prinsessuna, hún er æðisleg!
Elsku Gummi , Hafdís og Ragna Hlín.
Til hamingju með litlu rósina ykkar.Gaman var að fá að rétt kíkja.
Söknuðum samt að sjá eki stóru systur. Sjáum ykkur öll á morgun, þar sem við erum búin að gera vögguna klára á ný.
Knús og kossar til ykkar allra.
Amma og afi.
Elsku Hafdís, Gummi og Ragna Hlín.
Innilega til hamingju með litlu prinsessuna. Algjör knús. Vonandi hafið þið það sem allra best.
Edda og co.
Elsku Hafdís, Gummi og Ragna Hlín
Innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn. Hún er gullfalleg! Hlökkum til að koma og sjá hana.
Elsku fjölskylda, innilega til hamingju með nýjustu prinsessuna. Hún er gullfalleg eins og hinar dömurnar í famelíunni. Njótið lífsins og hafið það gott. Hlökkum til að koma í heimsókn. knús úr Borgarnesi.
Elsku fjölskylda
Innilega til hamingju með þessa gullfallegu prinsessu. Hún er algjört æði. Hlakka til að koma og líta á hana áður en fer aftur :)
Knús og kram
Innilega til hamingju með litlu systir. Hún er algjört yndi. Frábært að sjá myndir komnar inn svona snemma. Kærar kveðjur til fjölskyldunnar.
Elsku Ragna,
Yndislegt að sjá hversu vel þú dafnar og hversu mikil prinsessa þú ert. Nadíu Líf þætti eflaust ósköp yndislegt að knúsa þig enda elskar hún svona krúttileg og falleg ,,minni" börn en hún er sjálf. Sendum ykkur fullt af knúsum og kossum, bæði til þín og litla bumbubúans.
kveðja,
Jóhann, Lilja og Nadía Líf
Vá, dugleg stelpa að ganga hún Ragna Hlín. Gaman að sjá nýjar myndir af þessari fallegu stelpu.
Gangi ykkur sem best kæra fjölskylda, hlökkum til að sjá nýja fjölskyldumeðliminn, knús
Vá hvað þú ert sæt á nýju myndunum. Tekur þig vel út í sandkassanum, alsæl alveg ;) baráttukveðjur til mömmu, þessi vika hlýtur að vera málið!
Stúlkan orðin stór! Greinilega tilbúin til að verða stórasystir.
Beztu kveðjur frá mér til ykkar
Ég sé að vinkona mín er alveg tilbúin að fara að leika með hinum krökkunum hjá dagmömmu :-) Gaman að sjá myndirnar.
Knús Edda og co.
hæ sæta stelpa, vá fullt af nýjum myndum til að skoða. Það hefur greinilega verið mikið fjer í Köben. Þú ert greinilega dugleg að leika þér eins og vinkona þín í Nesinu... allt í rúst !! :) vonandi baðstu að heilsa Palla frá okkur. Knús og kram
Hæhæ. Skemmtilegar myndir af skvísunum.
Takk fyrir samveruna í bústaðinum um helgina.
Áfram ÍA
Flottar myndirnar af sumarskvísunni í Köben, knús
Innilega til hamingju með afmælið á dögunum, vona að mamma og pabbi hafi dekrað við þig.
Hæ elsku vinkona, til hamingju með afmælið um daginn. Hlakka til að sjá þig næst. Knús frá Spáni. Þín vinkona Herdís María
Halló sæta skvísa og takk fyrir síðast, það var nú aldeilis gaman að skoða allt dótið heima hjá þér.
Gaman að skoða myndir af sumarskvísunni, knús
Til hamingju með eins árs afmælið elsku Ragna Hlín. Sjáumst fljótlega :-)
Til hamingju með fyrsta afmælisdaginn þinn litla sæta snúlla, hlökkum til að sjá þig fljótt aftur.
Edda og co.
Halló elsku vinkonur. Er byrjað að skríða. Og hver er að verða braðum 1árs. jahernaher,er þetta fljótt að líða. vá
Kíkjum í heimsókn fljótlega eftir við komum heim fra Hollandi.
Knús Helga og Sóllilja
Halló sæta, Ofsalega ertu orðin stór og fín. Verið að vinna í að fara að skríða. Ja þær verða flottar vinkonurnar í Hummel samfellunum sínum allar 3. must have group hitting very soon.
Knús fra Skaganum
Eitthvað verða nú the three amigos flottar í eins Hummel. Voða í stíl :) Knús úr Borgó
Rosalega er maður sætur. Ég hafði ekki tekið eftir þessum myndböndum áður, frábær. Svo innilegur hlátur á síðasta myndbandinu.
Hlökkum til að sjá ykkur eftir rúman mánuð.
Kv. Edda og co.