Tessa sídu á Daníel Holden Magnússon - tvíburi, töffari og all around æðislegur gaur.
Stóri strákurinn Daníel fæddist þann 30. maí 2007 á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn. Hann var þyngsta barnið sem fæddist á spítalanum þann dag med sín 4,2 kíló og 54 cm. Hann var örugglega líka loðnasta og hárprúðasta barnið þennan daginn, þó það að einhverjum ástæðum virðist ekki vera mælt. Daníel var tekinn med keisaraskurði vegna þess ad strax í bumbunni var hann orðinn þrjóskur og neitaði ad snúa sér eins og börn eiga að snúa þegar þau fæðast. Líf hans hefur verið dramatískt strax frá byrjun og ljóst er orðið að það verður engin lognmolla í lífi þessa drengs. Það er bara fínt...
Heimsóknir í dag: 2
Heimsóknir frá upphafi: 20820