
Hæ frábæra fólk
Ég var á fyrirlestri í gær og þar var sýnd myndin af sorgmædda stráknum. Þessi sem var á "öllum" heimilium fyrir svona 20 árum, ekki þó okkar, en hún var til hjá Elínu - æi manstu ekki, þetta er svona andlitsmynd af sorgmæddum strák í brúnum jakka og gott ef það rennur ekki eitt tár niður kinnina. En allavega mér fannst þessi strákur allt í einu alveg rosalega líkur Dannó. Þó ég viti að hann sé nú ekki sorgmæddur svona alla daga eins og þessi strákur. En ég skora á ykkur að fara á loppemarket og skoða þessa mynd.