charlie af Kaupmannahøfn
charlie af Kaupmannahøfn
 
 
 

bla bla bla bla bla

Mamapabimamapabimamapabi hljómar nú allan daginn hér á Stevnsgade. Hann er svo góður að hann byrjaði bara að segja bæði í einu. Nú situr hann líka bara eins og ekkert sé. Bara búinn að fá einn pínu marblett á ennið. Ég sagði honum að það yrði sá fyrsti af mörgum og honum fannst það ekkert sniðugt. Hann verður bara sætari og sætari með hverjum deginum ef það skyldi koma einhverjum á óvart! Hjúkkan kemur í fyrramálið að taka boel próf á honum. Ég verð nú að viðurkenna að ég hef litlar áhyggjur að því. Hann er svo sósíal að það hálfa væri nóg. Við fórum með Fjólu, Úlfhildi og Daníel Mána að kaupa grímubúninga um daginn. Rosa stuð, Úlfhildur er ástfangin af okkar manni. Var alltaf að kyssa hann og knúsa og hann fílaði það í tætlur, reyndar var hann eitthvað voða að brosa til litlar indverskrar stelpu líka. Hún var voða sæt, komin með göt í eyrun fjagra mánaða. Á morgun ætlum við svo að heimsækja Margréti og skoða nýja barnið. Gaman
7. February 2008 - 00:00



Athugasemdir

Við komum alltaf aftur

Jón afi og ég erum á leiðinni til Danaveldis 15-21 feb. Og það væri gaman ef við gætum hitt ykkur . Við fljúgum út 15 feb. kl 7,15 eigum að lenda kl 11,25 og tökum svo lest til Odens . Við erum að fara að passa .

11. February 2008

Nafn


Texti