

Halló fallegi prins, þú ert algert æði litli kútur.
Ég verð bara að fá að hitta þig þegar þú kemur heim í sumar.
Fæ að kíkja á ykkur til Ástu ömmu. Kveðja Svava
Sæll Daníel Friðrik.
Takk kærlega fyrir sendinguna. Ég verð voðalega fín í fötunum frá þér og foreldrum þínum. Það er mikið gaman að fylgjast með þér hérna. Vonandi hittumst við í sumar þegar þú kemur til Íslands.
Kveðja, litla frænka á Selfossi og fjölskylda.
Komið þið sæl, er svona mikið að gera í lærdómi að það er ekki hægt að setja inn nýjar myndir? Kveðja Fanney B.
Halló litla fjölskylda.Voðalega er gaman að sjá allar þessu flottu myndir af ykkur og gott að vita að allt gangi vel.Kv frá Fásk
Bara að kíkja og sjá nýjar myndir og myndbandið. Gaman að sjá að apparatið braggast eitthvað.
Kveðja af klakanum
Hæ litla fjölskylda! Mikið er gaman að fylgjast með yngsta meðliminum á þessari siðu. Það verður gaman að sjá ykkur í sumar:) Hann er sko með hökuna frá þér Katrín mín og eyrun frá Bögga:) Hann er ekkert smá sætur:)
Hafi þið það sem allra best þarna úti::)
kveðja Aldís Fernández
Hæ litla fjölskylda. Gaman að þið skylduð vera komin með síðu;) Gaman væri að fá lykilorðið og fá að skoða prinsinn. Kveðja Dagrún í sönderborg
Komið þið sæl og blessuð. Það er nú alltaf verið að kíkja á þig Daníel Friðrik. En erum alls ekki dugleg að kvitta. Eru foreldrar þínir á kafi í lærdómi þessa dagana? Héðan er allt gott að frétta allt á kafi í snjó. Kveðja Fanney
Hæ hæ Elsku frændi!
Við erum alltaf að skoða myndirnar og langaði bara að kvitta fyrir okkur. Mamma var að finna svo mikið af fötum handa þér að ég held að mamma þín þurfi ekki að kaupa handa þér föt fyrr en þú ert 2 ára!
Okkur hlakkar svo til að koma og sjá þig í apríl...held að mamma og pabbi séu alvarlega að hugsa um að koma.
Eigið gleðilega páska og við eigum nú eftir að heyrast fljótlega,
kveðja, Sandra og Högni
Til hamingju með afmælið í gær, Katrín! Ákvað líka að nota tækifærið og kvitta fyrir mig í þetta skiptið því ég laumast stundum hér inn. Gaman að geta fylgst með litla frændanum. Hafðiði það sem allra best, Kv. Guðbjörg Rós
Hæ elsku frænka og til hamingju með gærdaginn!!!!!!!!!! Ég hugsaði til þín í gær en kom hamingjuóskunum ekki á blað fyrr en í dag, ritstífla. Frábærar myndirnar af litla - stóra frænda hann er algjör rúsína, það verður gaman að hitta ykkur öll í sumar. Bestu kveðjur úr Mýrinni.
Innilega til hamingju með afmælið elsku Katrín :) Vonandi hefur dagurinn verið þér góður og náttúrlega karlarnir í lífi þínu líka ;) Bið að heilsa og hafið það gott, Tinna.
Elsku Katrín!
Innilega til hamingju með afmælið! Vonandi verður dagurinn frábær!
Þúsund afmæliskossar frá mér:)
Elsku Katrín mín, innilega til hamingju með 24 ára afmælið þitt í dag :o) Hafðu það sem best og njóttu dagsins með strákunum þínum. Afmæliskveðja, Svava
Elsku Katrín mín - til hamingju með daginn snúlla litla, örverpið orðið 24!! Vona að þið eigið góðan dag, engin lærdómur og kjaftæði... ég skil vel að þú sért ekki á msn/skype, þá er lítill friður:(
Risa afmælis knús frá mér og mínum...Kristín;)
...knúsaðu litla frænda extra vel frá mér...
Hæ sæti - ég er alltaf að skoða myndirnar af þér, þú ert algjör rúsína. Mig langar svo mikið að fara að hitta þig, en það verður líklega ekkert fyrr en í sumar þegar þið komið til Íslands. Hafið það rosa gott - og hvernig væri nú að fara að mæta á skype... ég kíki oft á dag Katrín mín!!
Knús, knús... Kristín
Hæ Hæ
Var að skoða síðuna ykkar, gaman að sjá litla gaurinn, aldeilis flottur strákur.
Gangi ykkur vel. kv.Sigga
Hæ hæ! Hvar fékkstu eiginlega þessi STÓRU AUGU??? Vá! :) Gott að heyra að þú sért sprækur og hraustur elsku kallinn og hvernig er það, ertu alltaf kátur? Hlakka til að sjá þig (vonandi) í sumar. Kveðja, Tinna.
Hæ Daníel Friðrik var að kíkja á þig, mig hlakkar til að hitta þig í sumar þú mannst örugglega eftir mér ég var svo dugleg að gefa þér snuðið um jólin. Núna er ég búinn að vera heima þessa vikuna lasin, hef verið dugleg að æfa mig að hjóla á hjólinu sem mamma og pabbi komu með frá DK. Það verður gaman að leika við þig í sumar. Kveðja Elva Dögg frænka
Hæ! Erum bara að kvitta fyrir okkur. Núna sitjum við mæðgurnar að skoða myndir á meðan Högni er á leikskólanum.Öfundum svolítið Ellu frænku og Valla að koma um páskana til að knúsa þig en við verðum bara að fara að drífa okkur að koma!!
Eigið góða páska,
Kveðjur frá London
Hæ hæ.. mikið var nú gaman að heyra í ykkur í morgun:o) Frábærar nýju myndirnar af þér Daníel Friðrik!
Kveðja úr snjónum... auður
Hæ elsku frændi... það er svo gaman að fá nýjar myndir - þú ert alveg frábær, yndislega mikið krútt:)
Nú bíða allir spenntir í Hjallanum eftir gamla settinu að austan, já amma og afi eru að mæta í stórborgina!!
Knús til ykkar allra, þið væruð betur komin til okkar...
Kristín og co
Þú ert svo flottur litli prinsinn minn! Algjör moli. Þið pabbi þinn svo sætir þarna að baðast. Ég verð nú að segja að þessi mynd sem foreldrar þínir tóku m.a. fyrir okkur Halla vekur blendnar tilfinningar. Við erum vissulega fegin að sjá að við getum fengið eitthvað gott að borða næst þegar við komum en hins vegar verð ég að skipta upp peysu þar munnvatnsmyndunin varð meiri en ég réði við. Knúsaðu foreldrana þína og segðu þeim að vera dugleg að læra. Eins og alltaf hlakka ég til að sjá ykkur í sumar.
Hæ hæ litli prins
Við heyrum nú alltaf fréttir af þér í gegnum hana Birnu Björk og nú ákváðum við mæðgur að kíkja á síðuna þína. Þú ert nú meiri gaurinn.
Það er aldrei að vita nema að þig Birgitta munuð einhvern daginn verða vinir.
Kveðja Sandra (fyrrverandi skólafélagi) og Birgitta
Takk fyrir allar nýju fínu myndirnar, þú ert ekki orðinn neinn smá töffari, átt sennilega eftir að koma röltandi á móti okkur þegar við komum(eftir aðeins 3. vikur) Já það er alveg óhætt að segja að við erum oriðn verulega spennt, þetta verða frábærir páskar. Hafið það bara sem allra best þangað til. Kveðja frá öllum í Engihjallanum.
Það er gaman að sjá hvað þú hefur breitt og fallegt bros. Góða skemmtun í bíó hlakka til að lesa um það. Kveðja úr Hveró Alma Rún og fjölskylda:)
Hæhæ SÆTI strákur!! V'A hvað þú ert eitthvað sætur :) En það er frábært að allt gangi svona vel hjá ykkur. Vonandi rekst maður nú eitthvað á ykkur í sumar. Kveðja frá fásk Erla, Sverrir og Viktor Már
Æðislegar nýju myndirnar! Þú ert flottasti frændinn í DK.
Knús og Kossar
Hæ krúsímús. Þvílíki fegurðarprinsinn sem þú ert! Algjör moli. Gott að heyra hvað þú ert hraustur og duglegur strákur, stækkar og dafnar og verður sætari með hverjum deginum... ekki svo sem langt að sækja það :)
Ástarkveðjur til ykkar allar,
Bryndís Ýr
Halló sætastur,
ég er alls ekki búin að vera nógu dugleg að skoða síðuna þína, mikið ofsalega ertu orðinn stór og fallegur...
Ég vona nú að ég fái að sjá þig þegar þú kemur til Íslands í sumar, þá verð ég örugglega flutt til Reykjavíkur
Segðu mömmu þinni að mér þyki alveg ofsalega vænt um hana ;o)
Kveðja frá Eskifirði
Sigga Rósa