

Gaman að skoða myndirnar úr ferðalaginu okkar um versló! Þið voruð svaka flottir frændur.
Hæ elskur dúllurnar mínar!
Geggjaðar myndir - þið hafið greinilega haft það gott fyrir norðan um verslunarmannahelgina;)
Vonandi sjáumst við nú eitthvað á næstunni....!
Knús úr Firðinum (næst fallegasta..).
Sæll sæti strákur ! Gaman að sjá myndir :) Var að láta mér leiðast á netinu í læripásu. Ekkert smá ánægð þegar ég rakst á nýjar myndir til að skoða :)
Hafið það gott á fróninu! Njótið ferskleikans
Kveðja úr Spánverjaríki
Hej Daníel,
du vet inte vem jag är, men kanske minns din mamma. Vad bra att se att ni alla mar bra - kanske har din mamma lust att mejla till mig. När du var i hennes mage da var hon i Tyskland och vi hade det ganska roligt tillsammans...
Hej Katrín, hoppas allt är bra - wie geht's? Mejla, om du har tid...
Nadja fran Kiel
Hæ, hæ, mikið var gaman að skoða myndirnar úr ferðalaginu, finn það að ég verð að fara aftur í Ásbyrgi, hef bara komið þangað 1 sinni, hafið það gott elskurnar, kveðja úr Hörpulundi 2. xx
Mamma laumaði að mér lykilorðinu.. Vona að það hafi verið í lagi. Rosalega hefur strákurinn stækkað síðan ég sá hann fyrst... á netinu, hef ekki gerst svo fræg að sjá hann í eigin persónu. Rosalega sætur strákur. Kveðja Sigurveig
Hæ kæra fjölskylda.
Mikið ertu flottur strákur Daníel Friðrik og foreldrar þínir aldeilis heppnir að eiga svona dásamlegan dreng. Það væri nú gaman að hitta þig og leika aðeins og ekki yrði það slæmt fyrir stóra fólkið að hittast og spjalla. Þið eruð alltaf velkomin á Skagann ;).
Bestu kveðjur frá okkur öllum.
Hæ snúlli;) vá hvað er alltoof langt síðan ég sá ykkur! Vonandi sjáumst við sem fyrst:)
Knúskveðja frá Húsavík . . Gulla frænka;*
Hæ hæ sæti strákur :)
við kíkjum hér reglulega og vonast eftir nyjum myndum á síðunni og svonna. En núna erum við flutt á íslandið, þú getur sakt mömmu og pabba það að þið eruð velkomin í heimsókn á skagan hvenar sem er ef þið eigið leið hjá :)
kv Hafdís Ragna, Óskar og Jóhanna Dagný
Vá loksins nýjar myndir!!! þú ert æði!
Kossar og knús frá okkur öllum,
Svava og co
Hæ elskurnar mínar - mikið er langt síðan ég hef kíkt hér inn!!! Oh hvað mig langar austur til að knúsa ykkur - núna!
Vonandi sér maður ykkur eitthvað á næstunni.
Knús.. og fullt af kossum, Kristín.
Hæ sæti og takk fyrir síðast, það var sko notó! Flottur með páskaeggið, kannast við taktana. Knús til ykkar allra og vonandi sjáumst við sem fyrst.
Hæ hæ sæti strákur.
Mundi nafnið á sveitinni svo ég gat skoðað myndirnar videóin og finnst þú bara flottur strákur.
Vidóið þar sem þú færð hláturskastið er alveg frábært, mér fannst það nú dálítið líkt Ellu frænku þinni að hafa verið að geifla sig svona, hún er líka æðisleg kellan.
Bestu kveðjur frá Fáskrúðsfirði.
Halló kæra fjölskylda! Kom í heimsókn og skoðaði myndir!
Hafið það gott og vonandi sjáumst við í sumar!
Þið eruð velkomin í heimsókn ef þið eigið leið niður á firði:)
Sæll frændi! Vonandi gékk baksturinn vel :)
Gaman að sjá hreindýrin svona næstum í garðinum, leiðinlega nálægt ofninum, kartöflunum og sósunni, án þess að vera samt á disknum...
Kveðja úr sólinni
Hæ sæti minn.
Vildum bara kvitta og segja þér að okkur finnst þú sætastur í heimi.
Kveðja úr brekkunni,
Sandra og co
Hæ hæ! Langt síðan ég kíkti hingað síðast :) Gaman að kíkja á myndirnar af þér sætilíus. Knús frá Reyðó!
halló sæti!
Við vorum bara aðeins að kíkja á hvernig fjölskyldan hefur það og þið lítið út fyrir að hafa það rosalega gott. Við sjáumst vonandi í sumar.
Kær kveðja frá Köben Ingunn , Arnar og Viktor Bjarkar.
Hæhæ flotti strákur, alltaf brosandi og sætur :) kveðja frá Fásk
Hæ litli sveitafrændi;) oo þú ert svo knúsulegur og sætur:) Alltaf svo gaman að kíkja á þig og skoða myndirnar ;o)
Hlakka til að sjá ykkur ... vona að það verði sem fyrst:)
Bið að heilsa í Steinholt ;o) Kveðja Gulla frænka***
Hæ litli kútur. Æðislega fínar allar þessar myndir frá páskunum, ég sé að þú ert efnilegur í að verða sami nammigrísinn og hún mamma þín :) Högni Sæberg og Sandra Rós eru líka búin að fá "sinn skammt" af páskasúkkulaði... Hlökkum til að sjá ykkur vonandi fljótlega. Bestu kveðjur að sunnan.
Æðislegt að sjá nýjar myndir frá jólum og páskum! Alltaf jafn sætur :)
Kveðja frá Spáni
Gummi, Katrín og Bergrós Ásta
Hæ,hæ!
Alltaf jafn sætur og flottur. Skilaðu kveðju í bæinn frá okkur.
Kveðja Imba og fjölskylda.
Hæ hæ....
Ekki neitt smá gaman að sjá allar myndirnar af þér! Þú hefur sko stækkað mikið á Íslandinu ;o).
Annars bara gleðilega páska til ykkar í sveitinni.
Viktor Daði í vetrarríkinu Danmörk.
Sæll litli frændi alltaf gaman að sjá þig, kærar kveðjur til mömmu og pabba
Hæ hæ vinur....
Hvernig er það er enn snjór hjá þér í sveitinni. Hérna hjá okkur í Odense er bara vor í lofti og ég er búinn að taka hjólið mitt og hjálminn fram og fer út um allt.
Vona að þið hafið það gott um páskana og að þú fáir nú páskaegg, því þau eru bara svo góð á bragðið.
Bið að heilsa mömmu og pabba.
Viktor Daði, mamma og pabbi.
Hæ frændi!
Ætluðum nú að kíkja í heimsókn til þín þegar við vorum á ferðinni fyrir austan um daginn en varð aldrei neitt úr því vegna leiðinda veðurs og ófærðar... kannski í næstu ferð ;)
kærar kveðjur í kotið
Helga og Jóel litli frændi
Halló elsku frændi. Vonandi fer þér nú að batna
og mömmu og pabba líka, þetta er nú meira bælið !
Það væri voða gaman að fá nýjar myndir fljótlega því
við hittumst svo sjaldan. Sjáumst vonandi sem fyrst,
kannski um páskana, hver veit ?
Knús til ykkar allra úr Hjallanum.
Voðalega er nú langt síðan ég kíkti hingað inn, en ég er nú að bæta úr því! :) Þú ert orðinn svo stór að það er nú bara ótrúlegt, finnst eins og þú hafir bara fæðst í haust! Ég þarf líka endilega að fara að kíkja á ykkur þarna upp í Steinholt, afsakanirnar eru að verða uppurnar... Knús á ykkur, Tinna.
Sæll frændi, var bara að kíkja hvort ég sæi jólamyndir af þér. Lít við reglulega og sé að það er gestabókin sem er mest spennandi hjá þér. Sparkaðu í endann á settinu, væri voða gaman að sjá jólin í sveitinni.
Kveðja í bæinn frá Jaén, Spáni