
Fjögurra manna fjölskylda á Solbakken. Drengirnir þurfa að lifa í sátt með bastarðsstimpil eins og er.
Sá fyrri Ýmir Nói: Fæddur, fenginn og færður heim í kotið þann 19. júní kl.7:00. Þetta var drengur og hann er það enn! Hann vó 4076 gr og var 54 cm. Risa yndisleiki en það var ekki að sjá á óléttuvömb móður. Þróun snáða og upplifanir í vefdagbókinni.
Sá seinni Askur Áki kom fjórar mínútur í fjögur aðfaranótt föstudagsins 29. júní. Eins og fyrr hefur komið fram er hann drengur og vó 4205 gr og 54 cm. Yndislegur í alla staði eins og eldri bróðirinn.
Hér er hamingja, hér eru skítugar bleyjur og hér erum við að byrja okkar lífsleið sem fjölskylda.


Tvíburarnir 21. maí - 21. júní
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.
Krabbi 21.júní - 22.júlí
Krabbar eru oft búlduleitir og fölir, eins og plánetan þeirra, Tunglið. Þeir reyna að klæða sig eins og tíðkast í umhverfi þeirra, en fylgjast samt illa með tískunni og velja oft saman óheppilegar flíkur eða föt sem komin eru úr tísku. Krabbinn er trygglyndur, tilfinninganæmur og viðkvæmur og vill vernda aðra og hlú að þeim. Krabbar eru miklir fjölskyldumenn og líður yfirleitt best heima, innan um ættingja og nána vini. Þeir eru fúsir að hlusta á vandamál annarra, gefa góð ráð og miðla af reynslu sinni, en þeir eru líka auðsærðir og spéhræddir og gleyma aldrei því sem gert er á hluta þeirra. Krabbinn býr yfir miklu innsæi og djúpum tilfinningum en honum hættir til tortryggni og drottnunargirni og öðrum finnst oft að hann sé að kæfa þá með tilfinningum. Viðskipti eiga vel við Krabbann, einkum lítil fyrirtæki og þá gjarnan fjölskyldufyrirtæki, en Krabbinn er líka hrifinn af góðum mat og matargerð, svo honum lætur ágætlega að reka veitingahús. Kröbbum hættir til að hafa óþarfa áhyggjur af öllu milli himins og jarðar, og þeir þurfa að læra að gera greinarmun á því og eðlilegri varkárni, svo lífið verði þeim ekki of þungbært.
Ykkar foreldrar,
Rakel Ósk og Jóhannes Ingi








