Eyvindur, Birgir Steinn og Sigrún Eskja H. Warén
 

Fæðingarsaga Eyvindur

Við keyrðum norður á Akureyri miðvikudagskvöldið 22. ágúst, en þú áttir að koma í heiminn þann 28. ágúst samkvæmt öllum útreikningum. Ég var búin að panta íbúð í Hrafnagilsstræti sem við ætluðum að hafa það notalegt í og fá smá sumarfrí. Eitthvað var ég óvenju þreytt eftir ferðalagið norður en við pabbi þinn spókuðum okkur um Akureyri á fimmtudeginum, kíktum í búðir og út að borða. Við vorum alveg að gera ráð fyrir að þurfa að dvelja marga daga fyrir norðan að bíða eftir þér. Við skoðuðum hvaða tónleikar og bíómyndir væru í boði og vorum með prjóna, bækur og gítar sem við ætluðu að stytta okkur stundirnar með í íbúðinni í Hrafnagilsstrætinu.

En strax á föstudagsmorgninum byrjuðu fyrstu verkirnir, samt voða vægir og ég tók því bara rólega og fór í smá göngu. Afi Birgir og amma Dóra voru komin til að eyða helginni með okkur og þau trúðu því ekki hvað þau voru heppin að ná kannski að hitta þig líka. Um kvöldið kíktum við aðeins á fæðingadeildina þar sem ljósmóðir sagði okkur að við kæmum sennilega aftur um tvö leitið um nóttina. Mér fannst það nú eitthvað ósennilegt en viti menn klukkan hálf þrjú fór vatnið og við drifum okkur upp á fæðingadeild og vorum sett inn á fæðingastofu. Við sváfum bæði í fæðingarúminu um nóttina, þar sem þú varst ekkert að flýta þér. Það var örlítið þröngt á þingi í rúminu og vorum við pínu skökk og skæld á laugardagsmorgninum. Pabbi þinn sem ætlaði að fara á spila á balli í Valaskjálf um kvöldið var farinn að átta sig á að hann hefði mikilvægari störfum að gegna norðan heiða.

Þar sem þú varst hinn rólegasti inn í maganum á mér var farið að tala um að setja mig af stað en ég fékk frest fram á hádegi til að reyna að fara sjálf af stað... Ég labbaði, pabbi nuddaði mig, ég drakk kaffi, át sykurmola.... ekkert gerðist svo þá var tengt dreypi í mig til að koma hríðunum af stað. Þær byrjuðu um 3 leitið og jukust svo fram eftir degi og voru orðnar nokkuð kræsnar eftir kvöldmat. En ég reyndi að vera dugleg að labba, sitja á bolta, raula, hlusta á tónlist, anda og aftur anda og pabbi var voða duglegur að stjana við mig, strjúka og vera til staðar. Undir lokin var ég næstum búin að breytast í kirjandi indjánakerlingu en þá voru hríðirnar svolítið harðar en ég var svo flink að taka engin verkjalyf fannst mér, nema ég reyndi að prufa glaðloftið en það var lítil hjálp í því. Svo kom nú að því að ég vildi fara að kreista þig út, það var um það leiti sem flugeldasýningin á Akureyrarvökunni byrjaði. Rétt fyrir tólf varst þú alveg að koma og þá sagði Edda Guðrún ljósmóðir að ég gæti valið um dagsetningu ef ég myndi rembast vel næst þá kæmir þú og viti menn keppnisskapið sagði til sín og þú fæddist þann 25. ágúst kl. 23:56 og pabbi klippti stoltur á naflastrenginn.

Þú fæddist með vinstri hendina á undan eins og verkalýðsforingi, belgurinn var yfir þér eins og kufl alveg niður á mitti, "sigurkufl" sögðu ljósmæðurnar að það kallist og að slíkt sé heillamerki. Skömmu seinna fæddist svo hjartalaga fylgja, þetta var allt eitthvað svo táknrænt. Þú mældist 50 cm og 4230 grömm sem eru tæpar 17 merkur. Augun þín voru blá og hárið dökkt og nebbinn var svolítið klesstur niður þannig að þú leist pínu út eins og lítill boxari. Þú varst mjög vakandi og sprækur strax á eftir og skoðaðir foreldra þína undrandi, eiginlega veit ég ekki hvert okkar var meira undrandi við eða þú. Um nóttina fengum við smá að borða og við sváfum öll eins og rotuð fram á morgun. En þá tók við fyrsti dagurinn okkar saman og höfðum við ekki undan að taka á móti heillaóskum allsstaðar af.

Um nóttina þegar fæðingin var búin sagði ég nokkrum sinnum við pabba þinn; "Ég trúi ekki að þetta sé búið" og pabbi svaraði mér alltaf; "Agnes, þetta er rétt að byrja". Og það er alveg satt, þetta er rétt að byrja.

Amma og afi Birgir, Eyrún og Bogga og Eðvald kíktu á okkur á fæðingadeildina.

Við þurftum fljótlega að færa okkur um herbergi og fara í herbergi með mörgum konum og nýfæddum börnum. Ástæðan var rútuslys í Bessastaðabrekkunni í Fljótsdal en svo fór að engin slasaðist. Miklar framkvæmdir voru á fæðingadeildinni og töluvert ónæði svo við ákváðum að flytja okkur yfir í íbúðina í Hrafnagilsstræti og fengum ljósmóðir heim. Þú varst seinn að taka brjóstið og var ég orðin hálförvæntingarfull að brjóstagjöfin gengi ekki en að lokum tókst það og þú braggaðist vel. Ljósmæðurnar, Eyrún systir, Íris frænka og Hjalti bróðir komu öll með góð ráð. Þegar heim kom fengum við Gunnþóru ljósmóðir til okkar.

 

 

Við keyrðum heim yfir fjöllin í rigningu, við Vopnafjarðarafleggjarann sprakk dekk og þurftum við að skipta - ég var nú dálítið stressuð með þig 4 daga þarna á fjöllum en pabbi þinn stóð sig vel og svo komum við heim með þig í Eyvindará þar sem beið falleg vagga og heklað teppi, Amma Sigga og Erla frænka voru búnar að gera svo fínt.