Ég er eins árs gamall strákur og heiti Vilhjálmur Árni. Ég var skírður í höfuðið á nokkrum góðum mönnum. Afi minn heitir Vilhjálmur og líka frændi minn og fékk ég Vilhjálms nafnið sem fornafn. Ég var líka skírður eftir Árna Huldari vini hans Pabba. Ég er ótrúlega ánægður með fallega nafnið mitt.
Ég elska að vera úti að leika og vera með hestunum okkar. Ég er ótrúlega dulegur strákur enda eru mamma og pabbi ótrúlega stolt af mér. Endilega kvittið í gestabókina ef þið kíkið í heimsókn.
Blessað litla barn - sem áður varst aðeins von,
fjarlægur draumur. Nú ertu til, raunverulegt.
Þú breytir öllu því sem áður var.
Svo undur smátt, eins og stjörnuryk.
Hugur sem spannar himingeima.
Ást sem geymir hjörtu okkar um alla eilífð.
(charlotte gray)
Ef þið viljið kíkja í heimsókn og vitið ekki leyniorðið getið þið sent póst á siggi.halldors@gmail.com eða joninabjork@gmail.com