Viktor Smári og Valgeir Orri Þrastarsynir
Viktor Smári og Valgeir Orri Þrastarsynir
 
 
 

Tvíburinn

21. Maí - 21. júní

 

 

Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið

hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja

snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun.

Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni.

Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga

mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum

viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt.

Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu

margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem

púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem

tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir

elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika.

Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn

bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna

þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d.

spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar)

og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir

en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm.

Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu

því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.

 

 

 

Vogin

23. september - 23. október

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins.Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum.

Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig.

Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk.

 Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun.

Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.