

30. desember - Nýjar myndir :)
3. maí - Vefdagbók






Við erum systkinin Valur Örn, Ernir Elí, Þórir Hrafn og Hekla Malín. Valur Örn og Ernir Elí eru fæddir 22. júlí 2004 á Landspítalanum í Reykjavík, Þórir Hrafn er fæddur 12. ágúst 2007 á sjúkrahúsinu á Ísafirði og Hekla Malín er fædd 26. apríl 2013 á Fjórðungsstjúkrahúsinu á Akureyri. Við eigum heima á Akureyri (síðan ágúst 2012) með mömmu okkar og pabba þeim Þóreyju Sjöfn og Ellerti Erni, eftir að hafa búið á besta stað í heimi, Þingeyri, síðan við eldri bræðurnir fæddust og þar á eftir í draumaparadís Svíþjóðar í Lundi :)
Við erum voða góðir strákar, góðir vinir og enn betri bræður:) Á þessari síðu ætla foreldrar okkar að vera duglegir að setja inn fullt af flottum myndum af okkur og svo ætlum við að vera voða duglegir að segja frá afrekum okkar í vefdagbókinni. Ef það er einhver síða læst hjá okkur þá er ekkert mál að senda mömmu og pabba skilaboð á thorey@elli.is og þá senda þau ykkur leyniorðið um hæl. Munið svo að kvitta fyrir ykkur í gestabókina, okkur finnst svo gaman að fá kveðju - knús og kossar Valur, Ernir og Þórir