

21. mars 2006 - 19. mánaða
Valur og Ernir báðir veikir og frekar slappir 20. mars og borðuðu lítið þann daginn. Þeim var því boðið súkkulaðikex til að fá e-ð í magann, það gekk hins vegar ansi hægt á kexið og því voru þeir beðnir að leggja það á eldhúsborðið þegar átti að fara að bursta tennurnar og fara að sofa sem þeir gerðu, lofað að þeir fengju það þegar þeir vöknuðu. Eftir viðburðaríka nótt þar sem drengirnir skiptust á að vakna, grátandi og leið ekki vel, vaknar mamman við það að Valur hágrætur og stendur úti á gólfið við rúmið. Honum er auðvitað kippt upp í rúm hið snarasta og finnur mamman þekkta súkkulaðikex lykt af honum - hugsar að þetta gæti verið af höndunum síðan kvöldið áður eða hvort hann hafi verið frammi að fá sér kexið sitt... nei varla. Þegar hún svo vaknar næsta morgun og kemur fram þá sér hún að kexið er farið en þar sem pabbinn er farin til vinnu gat hann hafa tekið það!!! Pabbinn kemur þó fljótlega heim og þá púsla þau sögunni sem þau eru bæði að velta fyrir sér saman og komast að því að leyfar af kexinu eru á lakinu þar sem mamman hafði kippt drengunum upp í um nóttina :) Valur hafði sem sagt farið fram án þess að foreldrarnir yrðu þess varir, náð í kexið sem hann vissi af, borðað það með bestu lyst og e.t.v leikið sér e-ð frammi eða reynt að redda sér meiri mat, það vitum við ekki, komið svo inn og haldið áfram að sofa eins og aldrei fyrr :)
3. maí 2006 - 21. mánaða
Í morgun þá vorum við að labba með mömmu til ömmu - áður en mamma fór að vinna - og við spjöllum auðvitað og spjöllum um lífið og tilveruna á leiðinni eins og okkur sæmir. Svo þegar við vorum alveg að koma að húsi Sigga og Siggu (búa við hliðina á ömmu og afa) þá segir Valur ,,Maget detta, mamma Maget detta" ,,Já" svarar mamman, þar sem Margrét hafði dottið fram af gangstéttinni akkurat þarna í gær. Honum er þetta greinilega hugleikið og hann muldara þetta aftur og aftur svo ,, Maget detta, gáta" nokkrum sinnum og svo allt í einu ,,Maget fluvelinnni" en Margrét var einmitt að fara af stað yfir á Ísafjörð til að fara í flug þegar hún datt. Æ svo krúttlegt þegar mar sér allt í einu að þau eru farin að velta fyrir sér einhverjum hlut og spjalla um hann og eitthvað sem gerðist í gær en ekki áðan. Mamman að farast úr stolti
6. maí 2006 - 21. mánaða
Bræðurnir eru tveir einir úti að leika sér, með fyrstu skiptunum sem þeir fara ekki beint í það að hlaupa bara út á götu þegar þeir eru einir. Við Elli fylgjumst með þeim úr glugganum, en þeir hafa frekar mikið rími til að hlaupa á þar sem stór garður sem eitt sinn var leikvöllur á er við hliðinni á lóðinni okkar áður en komið er að brekkunni okkar heim. Nú þeir eru að hlaupa út um allt og oft einkennist leikur þeirra á því að Ernir brýtur ísinn og hleypur og finnur upp á hinu og þessu en Valur eltir. Allt í einu kallar Valur ,,Edi kúka" við glottum að þessu þar sem Ernir kemur yfirleitt og biður um að kúka (reynist honum erfitt) og hann fer á klósettið. Svo halda þeir áfram að leika sér Ernir hlaupandi á undan og svo Valur. Valur nær svo loks Erni þar sem Ernir stendur kyrr eitthvað að bauka. Þegar Valur kemur að honum hallar hann sér yfir bróðir sinn og þefar af bleijunni - við náttúrulega sprungum úr hlátri þar sem við gerum þetta jú til að athuga hvort þeir eru búnir að kúka, þeir standa úti á túni - Ernir alveg grafkyrr og Valur að þefa úr bleijunni. Í framhaldinu hreyfir Ernir sig ekkert þar sem hann kann ekki að hafa kúk á rassinum svo við hlaupum út og jú það var komin kúkalykt :)
10. febrúar 2008 - 3 ára og 6 mánaða VÖE
Mamman var á leið í skúringavinnuna sína og tók strákana 3 með sér þar sem hún ætlaði að dunda við þetta á góðum sunnudegi. Komum við í sjoppunni þar sem leið okkar liggur mjög sjaldan þangað og keyptum nammi í poka (einn poki á mann). Þeir voru svaka spenntir yfir nammipokanum og uppteknir af honum til að byrja með í vinnunni og borðuðu nokkur nammi milli þess sem þeir sprettu um skólann (má ekki á skólatíma svo um að gera að nýta tækifærið ;) ). Þegar mamman var búin að þrífa sá hún nammipokana liggja á bekk í skólanum með smá nammi í hvorum poka og spyr hvort þeir ætli ekki að klára nammið eða taka það með sér? jú segir Ernir en Valur svarar af mikilli einlægni að Karíus og Baktus vinni svo mikið í tönnunum sínum þegar hann borðar svona nammi að hann ætli ekki að borða meira og vilji ekki eiga það sem eftir er... Karíus og Baktus vinsæl bók fyrir svefninn og þeim bræðrum mikið velt fyrir sér.