

Gleðileg jól kæra fjölskylda. Mikið var gaman að skoða myndirnar. Glæsilegir drengir sem þið eigið.
Vonandi gekk vel í prófunum.
Kveðja, Irena
Hæ hæ frá þingeiry gleðileg jól og farsælt komandi ár
mindirnar eru mjög sædar voruð þið búinn að baga piparkökur?
við erum búinn að baga piparkökur og við hlökkum mikið
til að sjá ykkur bæ bæ
Gleðilega hátíð öll sömul. Takk kærlega fyrir fallegt jólakort og kveðjuna :) Hafið það yndislegt um áramótin.
kv. Jóna og co.
Hæ hæ, vildi bara kvitta fyrir flottum jóla- og desembermyndum!!
Sendum knús á alla!
Bryndís og co
Gleðilega jólahátíð;) Greinilegt að það er líf og fjör á bænum og ekki setið auðum höndum, gaman að kíkja hér á ykkur. Vona að þið eigið ánægjuleg áramót og farsælt komandi ár;)
kveðja úr sveitinni, Sabína Steinunn
Halló fallega fjölskylda og gleðilega hátíð. Æðislegar myndir af ykkur og svo gaman að skoða þær.
Strákarnir orðnir svo stórir og forsíðumyndin af þeim er yndisleg :) Ekkert smá flott!!
VIð kíkjum aftur á nýju ári.
Jólakveðja
Díana, tvíburarnir Tristan og Sveinn og allir hinir
Hæ sæta fjölskylda. Við kíkjum oft en greinilega ekki nógu dugleg að kvitta fyrir okkur.
Þið hafið greinilega haft það notalegt á aðfangadag af myndunum að dæma :)
Knús á línuna Erla og co
Hæ Þórey, Elli og fallegu strákarnir þrír og Gleðilega hátíð!
Takk fyrir jólakveðjur.
Þórey og Elli -Mikið eigið þið fallega drengi :)
Gaman að fá að skoða myndirnar. Ég vona að þið hafið átt gleðileg jól í Lundi sem ég efast ekki um miða við þá gleði sem myndirnar sína.
Bestu kveðjur héðan úr Lyngholti,
Halla.
Hæ sætasta fjölskylda Svíþjóðar..þó víðar væri leitað!!
Við Logi erum strax komin á jólagjöfina og hann er ekkert smá flottur:) Friðrik sofandi svo hann er bara enn í náttfötunum:)
Leit út fyrir að þið hafið haft það gott um jólin... hlakka mikið til að heyra í ykkur!!
Kossar og knús
XXX
Sælir gaurar - gleðileg jól og takk fyrir allt. Vona að þið hafið haft það gott á aðfangadag og verið góðir við mömmu. Ég ætla að reyna að ná á ykkur í dag - elska ykkur endalaust.
knús og kyss ykkar Líney
Mig langar að skoða myndir! Annars bara gleðileg youknow og Þórey ...ert það þú sem skokkar hérna framhjá um hábjartan dag?
Á jólunum?
æ þið flottu :) fallegt oh jólalegt hjá ykkur :) gleðileg jól og takk fyrir okkur og stelpurnar - hér er ein voðavoðavoða kát Hello Kitty stelpa sem er sko ekkert smááááá sátt við frændur sína og frænku í svíþjóð - er sko í sokkunum og litla systir var sko skipuð í sína! ananrs var ungfrúin hæðerX5 í gær... kostuleg - litla ljós var sko alveg geim í þetta - sagði vááááá við hvern einasta pakka og prufaði allt samviskusamlega ;)
stórt knús - elska ykkur líka alltaf alltaf (meina þetta sko líka ;))
XXX
Gleðileg jólin aftur og takk fyrir jólakortin, Valur og Ernir. Já og allar myndirnar (segir Gréta). Við fréttum að sendingin okkar hafi skilað sér á réttum tíma.
Endalaust hugs, hugs, hugs til ykkar.
Kæra Þórey til hamingju með Afmælið og gleðileg jól til ykkar allra Kveðja úr rokinu á Þingeri :)
Gleðileg jól allir í svíaríki. Elsku Þórey mín til hamingju með daginn. Þið eruð frábær. Vonum að þið hafið það ætíð sem allra best.
Jólaknús
Dagga og co
Gleðileg Jól allir og til hamingju með afmælið Þórey :*
og takk æðislega fyrir kortin Valur og Ernir :***
en ég vona bara að þið munuð hafa það gott um jólin þarna.
Gleðileg jól!!
Elsku Þórey Sjöfn okkar. Innilega til hamingju með afmælið þitt. Ég vona að skilaboðið í nótt hafi ekki vakið þig frá vænum lúr. Ég er búin að hugsa til þín í allann dag og langaði svo að skrifa þér smá kveðjur og segja þér hvað mér þykir vænt um þig. Ég vona að jólakortið hafi skilað sér á réttan stað og ég hlakka ýkt til að opna ykkar, ég er búin að sirka út hvaða skrift þú átt væna :-) Strákar veriði góðir við mömmu ykkar og stjaniði við hana. Við erum líka farin að sakna þess að heyra ekkert í ykkur stóru strákar eða sjá ykkur dafna og þroskast og verða svona flottir eins og þið eruð. Vonandi gengur allt vel í skapa ykkar jólahefðir í Útlandinu. Söknum ykkar og sendum ykkur hlýjar hugsanir.
Love you always always(maður á sko alltaf að skrifa 2x ef maður meinar það virkilega) ;-)
XXX Jólasveinarnir í Undralandi
sælir strákar. Það er fínt að frétta úr sveitini, allar kindurnar og hestarnir biðja að heilsa. þetta eru flottar mindir hjá ykkur og ég sé að þið hafið stækkað heilmikið. Arnar Logi og Kristján Eðvald
og líka Ninna og Berglind Inga biðja að heilsa.
Nú verðið þið að gera mér smá greiða , þið verðið að knúsa mömmu ykkar frá mér til hamingju með afmælið og skila kveðju til pabba ykkar .
kveðja úr sveitini okkar. Hákon frændi.
Ekkert smá flottir strákar á jólaballi og í almennum jólaundirbúningi!!
Sendum puss&kram til Svíþjóðar :o)
Bestu kveðjur
Bryndís, Gummi og Katla Dagmar
Þið eruð yndisleg.
Finally!
Strákarnir eru glæsilegir í jólafötunum, sófinn ykkar er ógó kósý og svo er greinilega nóg að gera hjá ykkur. Svona á þetta að vera.
Hugsuðum til ykkar þegar við heyrðum fréttirnar af skjálftanum.
Gaman að finna svona mikið af myndum af sætu fjölskyldunni, takk fyrir mig! ;o)
Knús yfir hafið
Jesús minn hvað þið eruð sætir og svo hómí :-) Þórir Hrafn mig langar bókstaflega að bíta þig í mallann og lærin og naga aðeins, litli naggur þarna ;-) Karen Helga er nú meiri mjónan miðað við þig. Hlakka svo til að knúsa ykkur someday!!
Vonandi koma ekki fleiri skjálftar á ykkur elskurnar, takk fyrir yndislegt bréf Sjöbba mín. Kysstu Dunda frá okkur og gríslingana þrjá og vonandi heyrumst við fljótlega.
Jólaknús frá okkur öllum
XXX
Þeir eru nú meiri dúllubræðurnir og gaman að sjá hvað Þórir Hrafn virðist ekkert gefa eldri bræðrum sínum eftir og fylgir alltaf á eftir þeim. Vonum að þið hafið það gott í Svíaríki :)
P.S. Við könnumst við kollegiið sem þið búið á núna, fórum í heimsókn þangað til Helga Skúla og Beggu fyrir ca 2 árum síðan. Voða kósý og fallegur Lundarbærinn og hæfilega stór fyrir fjölskyldur :)
Loksins kom stund milli stríða á mínu heimili og ég gat skoðað allar myndirnar ykkar! Mér finnst þið alltaf bara vera í ævintýraleik!! Svo gaman h á ykkur alltaf!! Hér eru komnar tennur í hinn munninn minn svo staðan er 2-2...man ekki hvort ég var búin að seg a þér það!! Ætla að hring a við tækifæri!! Er ekki alveg að átta mig á hvað þú ert busy... ég prófa kannski í kvöld!
Sakna ykkar svo mikið...
XXX
p.s. hvaða staf get ég ekki skrifað??:)
Hæ sætu bræður.
Rosa gaman að skoða þessar flottu myndir af ykkur, það er svo gaman hjá ykkur. Stefán Freyr hitti ömmu ykkar um daginn í blómabúðinni og svo hittum við Rut í bakaríinu og hún bað að heilsa öllum í Svíaríki... Værum sko alveg til í að hitta ykkur og leika í dágóða stund en það verður bara að bíða.
Stefán Freyr talar oft um að hann vilji fara til Svíþjóðar og hitta ykkur, áttar sig ekki alveg að það er ekki alveg eins stutt og á Þingeyri.
Bless í bili, hlökkum til að skoða fleiri myndir...
Kveðja frá Ísó,
Hæ hæ kæra fjölskylda,
Langt síðan ég hef kíkt hér inn, en alltaf gaman að skoða myndirnar og sjá hvað heimilislífið er fjörugt og skemmtilegt. Jólakortið er á leiðinni en þangað til - okkar hlýjustu kveðjur af klakanum.
Jóna, Tóti, Arney og Katrín
Búin að fara nokkra hringi, vildi vera viss um að ég hefði ekki misst af neinu.
Vá hvað það er alltaf gaman hjá ykkur.
Ótrúlega duglegir bakardrengir þessir stóru, rosalega flottar súkkulaðibitakökur. Væri alveg til í að fá svona hjálp í eldhúsið mitt, það væri svo munur.
Svo sé ég bara Stefán á myndunum af þeim litla. Eru sko alltaf eins klæddir þessa dagana í LFC peysu og blárri renndri. Það sem hann getur brasast og hljálpað til við eldhúsverkin.Yndislegur alveg hreint.
Mig langar bara að koma aftur í heimsókn og upplifa þetta með ykkur. Fannst æði að sjá Ástu spila á jólaballinu.
Sakna ykkar, en finnst líka frábært að fá svona frábærar myndir til að skoða. Elska ykkur öll endalaust.
xxx
já þú stóðst sko við þitt EN ekki ég - ég svaf bara í allt kvöld og ætla að færa mig inn í rúmið mitt núna!
Frábærar myndir af ykkur öllum og mikið fjör - mig langar í eins og eina súkkulaðibitaköku. Duglegir að teikna og skrifa - svo er bara að fara að lesa! Verða ekki lengi að því.
Bið að heilsa - GM og AM kíkja á myndirnar á morgun - góða nótt. XXX Líney
Hæ Þórey mín.
Endalaust æði! Vá hvað það er gaman að skoða myndirnar af þessum gullmolum. Þeir eru svooooo sætir.
Takk fyrir okkur og ég sé að það er nóg að gera hjá ykkur, sund, jólaball, bakstur, æfingar, teikna og skrifa og ég veit ekki hvað og hvað.
Verðum nú bara að fara að hittast á Skype.
Knús og kossar Erla perla og co